Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 39
SAKAMÁL 3912. júlí 2019
glæpahlaðvörpin. My Favorite Murder er stjórnað af
grínistunum Karen Kilgariff og Georgiu Hardstark.
Markmið þáttarins er að gera áhuga á raunveruleg-
um glæpum eðlilegan þannig að áhugafólk um glæpi
sé ekki talið skrýtið eða sjúklegt. Þá hafa Karen og
Georgia báðar sagt að hlaðvarpið sé eins konar með-
ferð við kvíða vegna morða sem þær kljást báðar við.
Í leiðinni velta þær upp alls kyns andlegum kvillum
og tala af virðingu um bæði fórnarlömb og gerend-
ur til að stríða gegn fordómum í garð geðveikra,
vændisfólks, hinsegin fólks og ýmissa kynþátta.
árið 1922. Hann fékk málið á heil-
ann og fór í gegnum öll gögn. Loks
fann hann misræmi á milli bit-
fara á líkinu og myndum af tönn-
um Leos. Hann komst að þeirri
niðurstöðu að Leo hefði ekki get-
að verið morðinginn vegna þessa.
Pierre vann hjá blaðinu Atlanta
Constitution sem neitaði að birta
uppgötvanir hans í málinu vegna
hræðslu við að ýfa upp enn meiri
andúð í garð gyðinga. Pierre birti
því ekki þessar upplýsingar fyrr en
árið 1964, í endurminningum sín-
um, To Number Our Days. Þess-
ar upplýsingar breyttu hins vegar
engu.
Lögfræðingurinn Arthur Powell
í Atlanta fullyrti að hann væri með
upplýsingar sem myndu hreinsa
nafn Leos, í bókinni I Can Go
Home Again frá árinu 1943. Sam-
kvæmt upplýsingum Arthurs var
morðinginn Jim Conley. Gyðinga-
samfélagið í Atlanta lagðist gegn
því að þessar upplýsingar yrðu
birtar og þrýsti annar lögfræðing-
ur, Max Goldstein, á dómara í Atl-
anta að hunsa þessar sannanir
Arthurs.
Lögfræðingarnir Charles
Wittenstein og Dale Schwartz
reyndu árið 1982 að fá Leo náð-
aðan, en sú bón var byggð á fram-
burði Alonzos Mann, þá 83 ára.
Hann hafði unnið á skrifstofunni
hjá Leo á þessum tíma. Hann var
fjórtán ára og að hans sögn kom
hann inn í anddyri verksmiðjunn-
ar daginn sem Mary lést og sá Jim
Conley bera lík Mary. Alonzo sagð-
ist ekki hafa sagt frá þessu fyrr því
Jim Conley hefði hótað að drepa
hann ef hann leysti frá skjóðunni.
Frásögn Alonzos var dramatísk en
leiddi í ljós lygi í framburði Jims
Conley frá þessum tíma. Jim hélt
því fram að Leo hefði myrt Mary á
annarri hæð hússins, eftir að hún
vildi ekki stunda með honum kyn-
líf. Jim sagði að Leo hefði fengið
hann til að fela líkið fyrir sig með
því að fara með það í lyftunni niður
í kjallarann. Að sögn Jims fór hann
aldrei í anddyri verksmiðjunnar,
en Alonzo staðhæfði að það hefði
hann gert. Leo var hins vegar ekki
náðaður þar sem náðunarnefndin
gat ekki sannað sakleysi Leos og
taldi vel líklegt að Jim hefði logið
um hvernig líkið hefði verið fært í
kjallarann. Lögfræðingarnir komu
aftur fyrir nefndina árið 1986,
þá til að fá afsökunarbeiðni frá
Georgíufylki fyrir að vernda ekki
Leo fyrir hópnum sem rændi hon-
um og hengdi. Sú beiðni var sam-
þykkt en Leo er enn talinn sekur.
Svarið liggur hjá Roy Barnes
Það er því eðlilegt að spyrja sig
hvað sé breytt núna? Af hverju er
verið að taka þetta aldargamla mál
upp aftur? Svarið liggur í hlutdeild
Roys Barnes. Hann er fæddur og
uppalinn í bænum þar sem Leo
var hengdur, Marietta, og eigin-
kona hans er afabarn eins manns-
ins sem tók þátt í hengingunni.
Roy hefur djúpan skilning á því
hvaða áhrif þetta mál hafði á sam-
félagið í Georgíufylki og vill fátt
meira en að sannleikurinn líti
dagsins ljós. Hvort það tekst á svo
eftir að koma í ljós. n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
MORÐMÁLIÐ SEM BLÉS LÍFI Í KU KLUX KLAN
n Þrettán ára stúlka var myrt árið 1913 n Málið tekið upp aftur n Uppspretta gríðarlegs gyðingahaturs í Bandaríkjunum
Er hann saklaus? Leo Frank, vinnuveitandi Mary.Hugsanlegur morðingi Jim Conley.
Mikil athygli Umfjöllun um mál Mary Phagan var í fjölmiðlum um gjörvöll Bandaríkin.
Hörmuleg örlög Mary Phagan var
aðeins þrettán ára þegar hún var myrt.