Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Page 41
12. júlí 2019 FRÉTTIR 41 Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS B andarískur ferðamaður varð lands- þekktur á einni nóttu í febrúar 2016 þegar hann ætlaði að fara á Hótel Frón við Laugaveg í Reykjavík en endaði á Laugarvegi á Siglufirði. Maðurinn hafði komið til landsins með flugi frá New York og átti bókað hót- elherbergi í Reykjavík. Sló hann inn heim- ilisfangið Laugarvegur 22a í GPS-tæki sitt. Eitt auka „r“ varð þannig til þess að hann keyrði alla leið norður á Siglufjörð og tók það rúmlega fimm klukkustundir. Fram kom í frétt DV að hugsanleg út- skýring gæti verið að Hótel Frón væri skráð á Laugarvegi, en ekki Laugavegi, á nokkrum erlendum bókunarsíðum, til að mynda booking.com og hotels.com. Bandaríkjamaðurinn gerði sér grein fyrir mistökunum eftir að hann hringdi dyrabjöllu hjá íbúa á Siglufirði og spurði til vegar. Hann bókaði þá hótelherbergi á Hótel Sigló í stað þess að keyra til baka. Í apríl á seinasta ári greindi DV frá því að pítsusendill hjá Domino’s í Spönginni hefði verið rekinn úr starfi eftir að hann olli tjóni á bílaleigubíl sem staðurinn var með á leigu. Það sem vakti hvað mesta athygli var að umræddur sendill hafði aldrei tek- ið bílpróf og kunni að eigin sögn ekki að keyra beinskiptan bíl. „Það var ekki ég sem bað um vinnu sem sendill, ég sótti bara um og átti von á að fara að vinna við að baka. Ég var aldrei spurður um ökuskírteini eða hvort ég kynni að keyra. Ég fór inn á klósett til að læra hvernig á að keyra beinskiptan bíl, svo fékk ég líka hjálp frá hinum sendlun- um,“ sagði maðurinn í samtali við DV. Maðurinn sagði jafnframt að eftir að hann lét af störfum hefði hann verið boð- aður á fund með stjórnendum Domino’s þar sem hann var rukkaður um tjón- ið á bílnum, sem nam um hálfri milljón króna. „Ég var boðaður á annan fund sem ég mætti ekki á, þá fékk ég skilaboð sem minntu á eitthvað frá handrukkara. Sagt að ég hefði svikið þá um fund og ég þyrfti að borga 400 til 500 þúsund. Hvernig á ég að borga ef ég er ekki með vinnu?“ spurði maðurinn síðan. H allgerður Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri og myndlistarmaður, var í viðtali við kanadíska fjölmiðilinn VICE árið 2009 og ræddi þar um kynlíf sitt með álfum. Hall- gerður hafði nokkrum árum áður gefið út bókina Please Yours ELF þar sem finna mátti hispurslaus- ar lýsingar á kynlífi álfa með mennskum konum. Í viðtalinu við VICE lýsti Hallgerður nokkuð nákvæmlega atlotum sínum og álfanna og sagði þá alltaf standa sig vel í rúminu. Líkti hún álfasæði við glimmer. „Þú munt 100 prósent fá fullnægingu. Ég fékk alveg nóg af því að minnsta kosti.“ Hallgerður sagði kynlíf með álfum „það örugg- asta sem fyrirfinnst á jörðinni“, enda bæru álfar ekki með sér kynsjúkdóma. Þá væri ekki hægt að gera álfkonu ólétta eða verða ólétt eftir álf. Annað viðtal við Hallgerði birtist á vefsíðunni vbs.tv og þar sagði hún meðal annars að álfar væru ansi góðir í að klæmast. „Álfarnir koma bara og hvísla í eyrað á þér.“ Á öðrum stað kom fram að Hallgerði fyndist kynlíf með venjulegum mönnum hreinlega leiðinlegt. „Ég held að heimurinn yrði betri ef fleiri svæfu hjá álfum.“ Ætlaði á Laugaveg en endaði á Siglufirði Æfði sig að keyra inni á klósetti Dásamaði kynlíf með álfum Í desember 2004 ræddi DV við Ólaf Berg- mann Sigurðsson, íbúa á Sauðárkróki, en hann var á þeim tíma í sambúð með upp- blásinni kynlífsdúkku sem hann kallaði Pamelu. Fram kom að Ólafur væri yfir sig ástfanginn af Pamelu og hefði meðal annars farið með hana í gönguferðir um bæinn og tekið hana með sér á barinn. Þá hafði hann farið með Pamelu í búðir og keypt á hana föt. „Hún er voðalega sæt stúlka og til í allt, en það er bara verst að hún lekur,“ sagði Ólafur meðal annars. „Mér finnst samt verst að hún er ekki með neina kennitölu. Ég hef reynt að fá hana skráða til heimilis en það gengur því miður ekki vel.“ Fram kom að Ólafur ætti við geðræn vanda- mál að stríða og að íbúar á Sauðárkróki hefðu lýst yfir miklum áhyggjum yfir þessu hátterni hans. Töldu þeir augljóst að Ólafur þyrfti á hjálp að halda. Nokkrir íbúar höfðu kvart- að til lögreglu. Í samtali við DV sagði Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri á Sauðárkróki, að Ólafur væri sjálfráða einstaklingur og því væri lítið sem yfirvöld í bænum gætu gert. Ástfanginn af kynlífsdúkku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.