Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 46
46 12. júlí 2019
Lesið í tarotspilin
stjörnurnar
Spáð í Afmælisbörn vikunnar
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
Vigdís
og Garðar
N
ýlega bárust af því fregnir að borgarfull
trúinn Vigdís Hauksdóttir og athafna
maðurinn Garðar Kjartansson væru
byrjuð að stinga saman nefjum. Stjörnu
merki geta sagt ansi margt um hvernig folk á
saman og því ákváðum við að lesa í stjörnur nýja
parsins.
Vigdís er fiskur og Garðar hrútur, en þessi
stjörnumerki geta reynst hvort öðru vel. Fiskar
eru draumórafólk á meðan hrútar eru hvatvís
ir. Í þessu sambandi taka fiskar að sér hálfgert
móðurhlutverk og reyna að láta hrútana hugsa
áður en þeir gera eða tala. Fiskar skilja hrúta
betur en flest stjörnumerki og saman getur þetta
orðið dýnamískt dúó sem getur gert stóra hluti
saman, að því gefnu að þau hlusti á tilfinningar
hvort annars. Annars getur vatnsmerkið fisk
arnir slökkt eldinn sem býr innra með hrútnum.
Á góðri stundu Garðar
og Vigdís.
K
okkurinn Magnús Ingi Magnússon, eða Texas
Maggi eins og hann er oftast kallaður, komst í
fréttir í vikunni vegna nýs veitingastaðar sem
hann er að opna í miðbæ Reykjavíkur. Spá
konu DV fannst því tilvalið að spá í tarotspil fyrir
Magga, sem er líklega einn frægasti kokkur landsins
og hefur víða komið við á löngum ferli.
Veitingamenn leggja gildrur
Ef marka má fyrsta spilið sem
kemur upp fyrir Magga, Bikargos
ann, þarf kokkurinn ekki að hafa
áhyggjur af framtíð Matbarsins.
Bikargosinn táknar eflingu á eig
in þroska og sköpunarhæfileikum
og það að listrænir hæfileikar þess
sem spáð er fyrir muni njóta sín, svo
lengi sem viðkomandi hlustar á sín
ar langanir. Maggi hefur fylgt hjartanu með opnun
Matbarsins, þar sem hann býður heimilismat á hag
stæðu verði til að vega á móti græðgi í veitingahúsa
rekstri, að eigin sögn. Þessar breytingar munu gera
Magga gott ef marka má tarotspilin, en þótt hann
virðist vera harður og málglaður út á við býr við
kvæmt blóm innra með honum sem fær að blómstra
í nýjum veitingastaðarrekstri. Hann þarf því að temja
sér það hugarfar að taka ekkert persónulega. Gagn
rýni hans kemur flatt upp á veitingamenn og munu
þeir vinna að því að leggja fyrir hann gildrur.
Aðstoð frá æðri máttarvöldum
Enginn er eyland, eins og ft er agt, og er Maggi
engin undantekning. Næsta spil í tarotspánni hans
er Æðsti prestur, göfugt spil sem skal taka af mik
illi alvöru. Þótt Maggi telji sig kunna listina að reka
veitingastað og vita hvað fólk vill
þá þarf hann að leita sér aðstoð
ar frá sér æðri mönnum – nú eða
æðri máttarvöldum. Hann þarf
að hlusta á þær ráðleggingar sem
hann fær og taka þær alvarlega svo
að framtíð Matbarsins sé tryggð.
Hann þarf hins vegar að velja vel það fólk sem hann
talar við. Þá vill Æðsti presturinn segja við Magga
að enginn er fullkominn og að fullkomnunarárátta
hindrar vöxt. Maggi á að standa fastur við sína hug
sjón og þá munu draumar hans rætast.
Andlegur neisti
Loks er það heillaspilið Töframaðurinn, sem er tákn
um hinn andlega kraft og neista sem býr innra með
Magga og þarf að leysa úr læðingi. Þar skiptir mestu
hve einstaklega fær Maggi er í samskiptum við dýr og
menn, hvernig hann nær að tala við allt og alla og að
allir séu jafnir í hans augum – eða allavega næstum
því allir. Þetta á eftir að koma honum langt og þessi
félagslegi máttur á sér engin takmörk. Hann verður
hins vegar að huga ð því að fara ekki of langt fram
úr sér og taka ekki meira að sér en hann ræður við. n
Stórhuga Texas-Maggi opnar nýjan stað.
Viðkvæmt, lítið blóm sem stefnir hátt
Svona eiga þau saman Vigdís
Fædd: 20. mars 1965
Fiskur
n Listræn
n Vitur
n Getur spilað sig
sem píslarvott
n Besservisser
n Elskuleg
n Andleg
Garðar
Fæddur: 25. mars 1951
Hrútur
n Hugrakkur
n Ákveðinn
n Öruggur
n Frestunargjarn
n Hvatvís
n Skapstór
Naut- 20. apríl – 20. maí
Fiskur - 19. febrúar – 20. mars
Vatnsberi -
20. janúar – 18. febrúar
Steingeit -
22. desember – 19. janúar
Bogamaður -
22. nóvember – 21. desember
Sporðdreki -
23. október – 21. nóvember
Vog - 23. sept. – 22. október
Meyja- 23. ágúst – 22 .sept.
Ljón - 23. júlí – 22. ágúst
Krabbi - 22. júní – 22. júlí
Tvíburi - 21. maí – 21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 14. til 21. júlí
Rómantíkin er alls ráðandi í vikunni og
þú finnur fyrir aukinni væntumþykju og
hrifningu í garð maka þíns. Einhleypir
hrútar kolfalla fyrir manneskju sem þeir
áttu síst von á að falla fyrir. Gamalt mál
skýtur uppi kollinum. Má sem þú hélst
að þú værir búinn að gera upp en ýfir upp
gömul sár. Þú þarft að takast á við það og
ljúka því í eitt skipti fyrir öll.
Þú færð spennandi tækifæri sem getur
gefið vel í aðra höndina ef þú heldur rétt á
spilunum. Þér finnst þú vera skynsamari
með peninga og átt allt í einu meira í
veskinu en vanalega. Þú ákveður að taka
heilsuna föstum tökum og finnur þér
hreyfingu sem þú gætir enst í, jafnvel
keppt í. Passaðu upp á samskipti við þína
nánustu – ekki tala undir rós.
Þú finnur fyrir sterkri löngun að koma á
röð og reglu í lífi þínu. Þú vilt berjast fyrir
því sem þú átt og ekki láta fólk vaða yfir
þig, hvorki heima fyrir né í vinnunni. Þú
þarft að fara að vinsa þá út úr lífi þínu
sem gera þér ekkert gott. Svo kemur upp
eitthvað leiðindamál tengt fjölskyldunni
sem þú neyðist til að horfast í augu við,
þó það sé erfitt.
Svo virðist sem krabbinn sé aðeins að
hreinsa til í kringum sig. Þú hefur átt í
sambandi við manneskju um langa hríð,
annað hvort vinasambandi, í atvinnu-
tilgangi eða í einkalífinu, og þú ákveður
að losa þig við þessa manneskju úr lífinu
þínu. Í framhaldinu ert þú minna opinn og
móttækilegur fyrir nýju fólki. Það er þó
bara um tíma.
Þú ert búinn að halda einhverju fyrir þig
í svolítinn tíma, einhverju sem þú hefur
ekki þorað að deila með öðrum. Þetta
leyndarmál tengist þér óbeint og loks í
þessari viku finnurðu kjark til að létta af
þér. Þú átt fullt af góðu fólki í kringum þig
sem styður þig og þér líður margfalt betur
þegar þú ert búinn að losa um leyndar-
málastífluna.
Það er ofboðslega mikið slúður í kringum
þig og baktal, sem fer einstaklega mikið
í taugarnar á þér og hefur alltaf gert.
Þú hagar þér ekki svona sjálf en mundu
að það er erfitt að breyta öðrum. Þú
getur aðeins breytt þér. Þú finnur það
vel í þessari viku hverjir eru vinir þínir og
hverjum þú getur treyst í gegnum þykkt
og þunnt. Erfið lexía en mikilvæg.
Það er gríðarlega miklar breytingar í
kortunum hjá þér og þér fallast pínulítið
hendur yfir þeim. Hugsaðu frekar um þær
sem jákvætt skref fram á við því hugs-
anlega er eitthvað sem bíður þín handan
við hornið. Þetta er einnig góður tími til
að líta inn á við og vinna í þér sjálfri til að
bæta líðan þína almennt.
Þér finnst þú vera einn á báti um þessar
mundir. Það eru breytingar allt í kringum
þig sem leiða þig að þeirri hugsun að þú
vitir í raun ekkert hvað þú átt að gera
við líf þitt. Heimurinn er samt að öskra
á þig að hugsa um þig sjálfan, ekki láta
utanaðkomandi breytingar koma þér úr
jafnvægi og einblína á það sem skiptir þig
mestu máli í lífinu.
Þú virðist vera að jafna þig á ástarsorg
eða að læra að elska á nýjan leik. Þig
langar að elska einhvern af öllu hjarta en
þetta er ekki rétti tíminn. Svo skaltu alls
ekki taka á þig meiri vinnu en þú hefur
nú þegar gert. Þú þarft að fría meiri tíma
fyrir sjálfan þig og einfaldlega hvílast. Ef
þú heldur áfram á sama hraða gætir þú
slasað þig, andlega eða líkamlega.
Þú ert að keppast um eitthvað starf sem
þig langar mikið í. Því leggur þú gífurlega
hart að þér svo fólk taki eftir þér. Þú
hvetur einnig fólkið í kringum þig og býrð
til skemmtilegt andrúmsloft hvert sem
þú kemur. Sambandið við fjölskylduna
er afar gott og þú nærð að ná góðu
jafnvægi á milli þessarar miklu vinnu og
einkalífsins.
Vatnsberinn ætlar svo sannarlega að lifa
lífinu í þessari viku. Þú breytir til og nýtur
góðs matar, drykkja og ferðalaga. Þú
verður sífellt öruggari með að prófa nýja
hluti og þetta uppbrot úr hversdagsleik-
anum gerir þér mjög gott. Þú hugsar vel
um þig sjálfan og mæ tir halda því áfram
um ókomna tíð.
Þú stendur frammi fyrir stórri ákvörðun í
þessari viku og tekur mjög skynsamlega
ákvörðun. Þú hættir að hugsa allt með
hjartanu og leyfir þér að verða pínulítið
Excel-skjal í smá tíma. Það á eftir að
koma sér vel. Þú ert aðeins orkuminni en
vanalega og þarft hugsanlega að breyta
þeirri hreyfingu sem þú hefur stundað
upp á síðkastið. Minnka hana aðeins.
Hrútur - 21. mars – 19. apríl
n 14. júlí: Kjartan Hreinn Njálsson,
aðstoðarmaður landlæknis, 32ja ára n 15. júlí:
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, 71
árs n 17. júlí: Hanna Rún Bazev Óladóttir,
dansari, 29 ára n 19. júlí: Aron Pálmarsson,
handboltamaður, 29 ára n 20. júlí: Edda Sif
Pálsdóttir, sjónvarpskona, 31 árs