Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 49
KYNNING Háþrýstiþvottur er óhjákvæmilegur undanfari stórra málningarverkefna utanhúss og ákaflega skilvirk aðferð til að gera hús og byggingar klárar undir málningu. Fyrirtækið ÁÁ Verktakar ehf. er leiðandi á sviði háþrýstiþvottar hér á landi og hefur yfir að ráða afar öflugum búnaði til slíkra verka, sem er allur í eigu fyrirtækisins. Til að hreinsa málningu af hús­ um er notast við 500 bara hita­ dælur sem geta hitað vatn upp í 100 gráður. Slíkar dælur eru einnig notaðar í alls konar fitu­ og olíu­ hreinsanir og víðar þar sem við á. „Íbúðarhús eru oft hreinsuð með um 300 til 500 bara þrýstingi og köldu vatni sem dugar til að hreinsa óhreinindi og gróður af húsum. En svo geta verið öndunarvandamál og vatnspokar og þá þarf að hreinsa gömlu málninguna alla af, þ.e. alhreinsun. Þá þarf að nota heitt vatn,“ segir Áslaugur Einarsson, framkvæmdastjóri ÁÁ Verktaka. Fyrirtækið var stofnað árið 1991 og hefur það vaxið og dafnað allar götur síðan. Auk háþrýsti­ þvottar sérhæfir ÁÁ Verktakar ehf. sig í viðhaldi fasteigna, til dæmis múrviðgerðum, málningarvinnu, trésmíðavinnu og annarri viðhalds­ vinnu fasteigna. Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ Verktaka til háþrýstiþvotta afar öflugur: „Við erum með 3.000 bara dælur sem eru notaðar til að hreinsa málningu af stáli. Enn fremur við hreinsanir á túrbínuhjólum og ýmsu öðru. Þrýstingurinn á þeim er afar hár og þær mjög öflugar. Enn fremur erum við með 1.500 bara dælur, mjög vatnsmiklar, þær eru meðal annars notaðar í virkjanir, til að hreinsa úr borholum og rörum og vörmum,“ segir Áslaugur. Háþrýstidælurnar koma annars vegar frá Þýskalandi, frá framleiðandanum Falch, og hins vegar frá Bandaríkjunum, frá fyr­ irtækinu Garden Denver, en báðir aðilar eru afar öflugir framleiðendur háþrýstidæla. ÁÁ Verktakar ehf. er í Reykjanes­ bæ en að sögn Áslaugs eru lang­ flest verkefni þeirra á höfuðborgar­ svæðinu. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru af ýmsu tagi, til dæmis almennir húseigendur sem ætla að mála hús sitt og þurfa á háþrýstiþvotti að halda til að gera klárt und­ ir málningu. Einnig er algengt að málarameistarar leiti til fyrirtækisins eftir tilboðum í háþrýstiþvott. Háþrýstiþvotturinn er einnig oft hluti af stærri verkefnum fyrir­ tækisins enda sinnir það margs konar húsaviðgerðum og er með fjölda múrara í vinnu. Einnig hefur fyrirtækið unnið mikið fyrir orku­ fyrirtæki við að beita hinum öflugu háþrýstidælum við hreinsanir úr borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ Verktakar ehf. unnið mikið fyrir útgerðar fyrirtæki og sinnir öllum þvotti fyrir Stál smiðjuna Framtak, sem rekur Slippinn í Reykjavík. Sem fyrr segir hefur verið mikil vöxtur í starfseminni: „Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt frá því við byrjuðum og tækja­ kosturinn hefur fylgt með. Það varð vissulega dálítið stopp eftir hrunið eins og hjá mörgum en síðan hefur þetta legið upp á við. Sem dæmi um það keyptum við 3.000 bara há­ þrýstidæluna árið 2013 og var það fyrsta dælan af slíku tagi sem seld var frá Þýskalandi innan Evrópu. Einnig höfum við bætt við okkur skæralyftum og spjótum til að nota þegar unnið er við hærri byggingar,“ segir Áslaugur að lokum. ÁÁ Verktakar ehf. Fitjabraut 4 260 Reykjanesbær Símar: 421-6530 og 898-2210 aaverktakar@aaverktakar.is Heimasíða: www.aaverktakar.is Myndin hægra megin sýnir einbýlishús eftir háþrýstiþvott ­ vinstra megin er sama hús eftir pússningu og fíltun. Háþrýstiþvottur á fjölbýlishúsi. Háþrýstiþvottur á bárujárnshúsi. ÁÁ Verktakar eru leiðandi í háþrýstiþvotti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.