Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 2
2 19. júlí 2019FRÉTTIR
Pia Kjærsgaard
Íslenskir alþingismenn virðast
elska Piu og hennar hugsjónir,
allavega sumir, og því á hún
nóg af vinafólki hér á landi.
Réttast væri þó að Pia keypti
sér jörð í óbyggðum Íslands,
hæfi þar búskap og básúnaði
þjóðernishyggju sína yfir
mállausa ferfætlinga. Layna Landry
Klámmyndaleikkonan hefur
ratað í fréttir á Íslandi þar sem
hún hefur tekið upp svæsin
klámmyndbönd á vinsælum
ferðamannastöðum, þar með
talið í Reykjadal og í Bláa
lóninu. Best væri fyrir Layna
að hreinlega kaupa sér hér jörð
sem hún gæti skipulagt að vild
og tekið upp sín myndbönd án
þess að særa blygðunarkennd
gesta og gangandi.
Tom Cruise
Leikarinn eyddi dágóðum
tíma á Íslandi árið 2012 við
tökur á myndinni Oblivion.
Fyrrverandi eiginkona hans,
Katie Holmes, heimsótti
hann á klakann og í kjölfarið
skildu þau. Ísland varð vondi
kallinn og krúsarinn á súr-
sætar minningar frá landinu.
Hann gæti hins vegar breytt
sorg í gleði, sest hér að og
fundið ástina.
Natasha Lyonne
Leikkonan er hvað þekktust
fyrir hlutverk sín í Russian
Doll, en hún sótti Ísland
heim fyrir nokkrum árum.
Eftir ferðina íhugaði hún að
kaupa hér sumarhús þar sem
hún hatar hita og bert hold.
Gæti hún því orðið fyrir eilitl-
um vonbrigðum með Ísland
að sumri til þar sem má ekki
sjást til sólar án þess að fólk
rífi sig úr.
sem mættu endilega kaupa jarðir á Íslandi
Á þessum degi,
19. júlí
1903 – Fyrstu keppni Tour de France
lauk, hinn franski Maurice Garin sigraði.
1941 – Tom & Jerry (Tommi og Jenni)
komu fram í fyrsta sinn undir þeim
nöfnum í teiknimyndinni The Midnight
Snack.
1941 – Breski forsætisráðherrann
Winston Churchill hóf „V For Victory“ (V
fyrir sigur) herferð sína.
1960 – Frank Sinatra, þá 50 ára, gekk
að eiga Miu Farrow, 21 árs, í Las Vegas.
1994 – Leonid Kvetjsma sór embættis-
eið sem fyrsti forseti Ukraínu.
Síðustu orðin
„Oh wow. Oh wow. Oh
wow.“
– Athafnamaðurinn Steve Jobs
þegar hann leit á fjölskyldu sína.
David Beckham
Besti vinur Björgólfs Thors er hvort
sem er fastagestur í helstu veiði-
vötnum landsins og getur því allt eins
sest hér að. David gæti þjálfað yngri
flokka KR, liðs Björgólfs og föður hans,
Björgólfs Guðmundssonar, og Victoria
Beckham gæti blásið nýju lífi í frekar
óspennandi skemmtanalíf í miðbæ
Reykjavíkur.
Þ
urý Bára Birgisdóttir er
ein af tæplega níu þúsund
Íslendingum sem gerst
hafa styrktarforeldri barns
í SOS barnaþorpunum víða um
heim. Hún gekk skrefinu lengra
á seinasta ári þegar hún ferðaðist
til Indlands og heimsótti styrktar-
barn sitt, indverskan pilt. Fundur-
inn átti eftir að hafa djúpstæð áhrif
á hana.
Tvístígandi í fyrstu
Þurý var nýskilin og í djúpri sjálfs-
skoðun þegar hún ákvað að ger-
ast styrktarforeldri árið 2014. Hún
vildi að eigin sögn „gera eitthvað
gott í heiminum.“ Í kjölfarið fór
hún að styrkja dreng í barnaþorp-
inu Buhj á Indlandi og fékk reglu-
lega sendar af honum myndir og
fréttir úr lífi hans.
„Ég hélt reyndar fyrst að ég væri
að fara að styrkja eitthvert lítið og
dúllulegt barn en fékk svo senda
mynd af slánalegum unglingsstrák
sem leit út eins og kóngulóarmað-
ur,“ segir Þurý og hlær en bæt-
ir svo við að auðvitað eigi maður
ekki að vera „pikkí“ þegar maður
er að hjálpa öðrum. Það var sein-
asta haust að Þurý og systur dóttir
hennar, Ingibjörg Björnsdóttir,
ákváðu að leggja leið sína til Ind-
lands. Þær frænkur hafa áður ferð-
ast saman víða um heim, flakkað
um Evrópu og heimsótt Suður-
-Afríku og Suður-Ameríku.
„Ég sagði strax að ég vildi fara
til Buhj og hitta þennan strák,“
segir Þurý sem hafði í kjölfar-
ið samband við fulltrúa SOS á Ís-
landi sem reyndust allir af vilja
gerðir. Henni var í kjölfarið komið
í samband við indverskan tengil-
ið samtakanna. Í nóvember síð-
astliðnum flugu frænkurnar til
Múmbaí, með millilendingu í
London. Framundan var mikið
ævintýri en Þurý viðurkennir að
á leiðinni út hafi hún verið tvístíg-
andi. „Ég hugsaði með mér: „Hvað
er ég eiginlega að fara að gera?“ og
ég var alveg við það að hætta við
allt saman,“ segir hún og bætir við
að þar hafi einfaldlega verið á ferð
hræðsla við hið óþekkta. „Ég vissi
einhvern veginn ekkert hvað ég
var að fara út í.“
Þakklátur og auðmjúkur
Þegar komið var til Indlands tók
leiðsögumaður á móti frænkunum
og í Buhj fengu þær höfðinglegar
móttökur. Frænkurnar fengu að
sjá heimilið þar sem pilturinn ólst
upp og þar reyndust aðstæðurnar
prýðilegar, allt hreint og snyrtilegt
og andrúmsloftið hlýlegt. „Eftir
að hafa dvalið á Indlandi í stuttan
tíma þá sér maður að það er mun-
aður sem ekki allir hafa.“
Þeim var síðan fylgt á skrifstofu
samtakanna þar sem þær hittu
piltinn, sem í dag er 19 ára gam-
all. „Við tókumst í hendur og þetta
er var dálítið skrítin upplifun, og
ég vissi satt að segja ekki alveg
hvernig ég ætti að haga mér í
þessum aðstæðum.“
Pilturinn talar smávegis ensku
og hann og Þurý gátu því átt dálítil
samskipti sín á milli. „Hann kom
mér fyrir sjónir sem feiminn og
ljúfur og það er augljóst að hann
er góð sál. Hann var ofboðslega
auðmjúkur og var greinilega mjög
þakklátur fyrir þennan stuðning.
Ég held að það skipti þessa krakka
alveg ofboðslega miklu máli að
það sé einhver þarna úti í heimi
sem er annt um þá og vill styðja
þá.
Þegar við stóðum upp og vor-
um farin að hugsa okkur til hreyf-
ings þá beygði hann sig skyndilega
niður fyrir framan mig og kyssti á
mér fótinn. Ég vissi að sjálfsögðu
ekkert hvað þetta þýddi eða hvað
ég ætti að gera,“ rifjar Þurý upp,
en seinna komst hún að því að
þessi siður, „pranama“ er ríkjandi
í indverskri menningu og táknar
virðingu og þakklæti.
Þurý fékk að vita að piltur-
inn væri kominn í háskólanám
í verkfræði og stæði sig þar með
prýði. Draumur hans er að flytja til
annars lands í framtíðinni. Þá kom
upp úr dúrnum að hann hafði lagt
á sig langt ferðalag til að koma og
hitta hana en skólinn sem hann er
í er í rúmlega sólarhrings fjarlægð
með lest frá barnaþorpinu í Buhj.
Þrír fylgdarmenn voru með piltin-
um, þar á meðal fósturfaðir hans
og forstöðumaður heimilisins og
pössuðu þeir vel upp á hann. „Það
er greinilega haldið mjög vel utan
um þessa krakka. Ég var afskap-
lega uppnumin eftir þessa heim-
sókn. Kannski af því að ég vissi
ekkert á hverju ég mátti eiga von.“
Þurý mun halda áfram að
styrkja piltinn þar til hann hef-
ur náð 21 árs aldri. Hún segist í
raun ekki hafa gert sér grein fyr-
ir því áður, hvað örlítið mánaðar-
legt fjárframlag getur haft mikil
áhrif. „Þarna sá ég að mínir pen-
ingar fara greinilega í gott málefni.
Ég veit svo sem ekkert hvað verð-
ur um hann í framtíðinni en ég get
allavega sagt að ég hafi átt þátt í að
hann fór í þessa átt og er á þeim
stað sem hann er á í dag. Það hefur
gefið mér heilmikið.“
Hitti styrktarbarn sitt á Indlandi
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
„Ég vissi einhvern
veginn ekkert hvað
ég var að fara út í
n Heimsóknin hafði
djúpstæð áhrif á hana