Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 4
4 19. júlí 2019FRÉTTIR
Tendrið bálköstinn
Í
þessum heimi er margt skrýt-
ið sem Svarthöfði undrar sig
á. Svarthöfði er átakafælinn að
eðlisfari en finnst fátt skemmti-
legra en að vera áhorfandi að deil-
um annarra. Það sem bar hæst
í vikunni að mati Svarthöfða er
sögulegt fall Birgittu Jónsdóttur
af fjarstýrðu, leðurklæddu gadda-
hásæti Pírata. Þvílík mannfræði-
rannsókn sem það var í sjálfu sér
að horfa á átakafund innan Pírata-
hreyfingarinnar þar sem Píratinn
Helgi Hrafn jós svívirðingum yfir
Birgittu.
Þótt Svarthöfða finnist ekk-
ert sérlega gaman að horfa upp á
„mannorðsmorð“, eins og Birgitta
sjálf kallar aðförina, þá er mik-
il skemmtun að fylgjast með eft-
irleiknum. Þá var sko poppað. Í
stóra skál.
Sumir settu Birgittu í sama hóp
og mikilmennin Brútus og Júdas.
Menn sem voru rækilega stungnir
í bakið. Einhverjir rætnir töldu hið
sanna eðli Birgittu loksins vera af-
hjúpað. Svo voru það þeir sem
nýttu tækifærið til að níða skó-
inn af Pírötum upp til hópa. Loks-
ins, loksins. Því fannst Svarthöfða
merkilegast að fylgjast með.
Flokkurinn var kallaður „hand-
ónýtur“ og einhverjir fullyrtu að
byltingin væri að éta börnin sín
eftir að upptöku af átaka fundinum
var lekið á netið. Svarthöfða finnst
fyndið að sjá hve fljótt fólk var að
grípa til vopna gegn umdeildum
flokki Pírata. Á örstundu var bál-
kösturinn tendraður og norna-
brennan skyldi hefjast.
Svarthöfða finnst það ekki síst
spaugilegt í ljósi þess að þarna var
ekkert baktal. Ekkert leynimakk.
Þarna voru tveir einstaklingar
að skiptast á skoðunum. Öðrum
heitt í hamsi – hinn bar sig illa.
Annar lét gamminn geisa – hinum
fannst orðræðan ekki svaraverð.
Svarthöfða finnst samt gleymast
að sá sem sat undir ásökunum
og fúkyrðum gerði nefnilega það
– sat undir þeim. Gat svarað fyr-
ir sig. Svarthöfða finnst hressandi
að fylgjast með slíkum umræðum.
Sem eiga sér ekki stað á bar. Sem
innihalda ekki fordóma gagnvart
minnihlutahópum. Og sem ekki
eiga sér stað í blakkáti. Þótt síð-
arnefndu umræðurnar virki mun
meira spennandi þá virðast þær
gleymast fyrr. Skrýtið. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Leonardo Da Vinci var fyrstur til að
útskýra af hverju himinninn er blár.
Spænska orðið esposas þýðir bæði
eiginkona og handjárn.
Eiffelturninn átti fyrst að rísa í
Barcelona á Spáni, en borgin hafnaði
hugmyndinni og taldi turninn verða
lýti á borginni.
Ef mannsaugað væri stafræn
myndavél þá væri það 576
megapixlar.
Daniel Radcliffe braut rúmlega 80
töfrasprota við tökur Harry Potter-
-myndanna þar sem hann notaði þá
sem trommukjuða.
Hver er
hann
n Hann er söngvari
og hljómborðsleikari.
n Hann hefur margoft
tekið þátt í Eurovision.
n Hann er ein af bak-
röddum Íslands.
n Hann er einatt kenndur við eitt
hlutverka sinna.
n Hljómsveit hans heiðrar Led
Zeppelin með tónleikum 20. júlí.
SVAR: PÉTUR ÖRN GUÐMUNDSSON
Umsjónarfólk hótels í Neskaups-
stað tók upp klám á hótelinu
H
ótelstjóri í Neskaupstað
réð ungt erlent par sem
umsjónarfólk á Cliff hót-
el í bænum í vor. Í maí tók
parið sig til og birti kynlífsmynd-
band af sér á einni stærstu klám-
síðu heims, Pornhub, og fór ekki á
milli mála að myndbandið var tek-
ið inni á hótelinu.
Hótelið var áður Eddu hótel, en
heitir í dag Cliff hótel og á veturna
er þar heimavist fyrir nemendur
Verkmenntaskóla Austurlands.
„Indælisfólk og ekki skrifað
utan á þau að þetta væri hobbíið
þeirra. Duglegt fólk, það vantaði
ekki og ráðin til að vera húsráð-
endur á hótelinu,“ segir heimildar-
maður í samtali við DV. „Það
skiptir engu þótt þetta sé hobbíið
þeirra, en ekki fara að blanda hót-
elinu í málið. Þetta er viðkvæmt
þar sem hótelið er heimavist á vet-
urna.“
Hákon Guðröðarson tók við
rekstri hótelsins í vor, en hann á
Hótel Hildibrand í Neskaupstað,
sem hann hefur rekið í nokkurn
tíma við mjög góðan orðstír.
„Ég held að það sé búið að
taka myndbandið niður,“ segir
heimildarmaður, „ég horfði ekki
á það sjálfur, hafði hreinlega ekki
áhuga á því, en veit að margir hér í
bænum horfðu á það.“
Parið var rekið úr starfi um leið
og málið komst upp og er farið
af landi brott. „Um leið og þetta
komst í loftið þá voru þau bara far-
in. Ég held að það sé öllum sama
þó að fólk sé að gera svona heima
hjá sér og pósta á netið, en þegar
það sést nákvæmlega hvar þetta
er tekið og þau eru bara að mynda
um allt hótel, gangandi nakin
um gangana, svo er það eldhúsið
og pool-borðið. Viðbrögð hótel-
stjórans sýndu að hann samþykk-
ir ekki svona athæfi starfsmanna.“
Í samtali við DV segir Hákon
Guðröðarson að myndbandið sé
ekki lengur til. „Þetta myndband
var fjarlægt, þetta fólk var rekið
og þetta mál er búið. Okkur finnst
þetta mál mjög miður“ n
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
n Myndbandið birt á einni stærstu klámsíðu heims n Umsjónarfólk rekið„Indælisfólk og ekki skrifað utan á
þau að þetta væri hobbíið þeirra“
Pornhub í hnotskurn
Klámsíðan Pornhub var stofnuð
í Montreal í Kanada árið 2007.
Árið 2018 var síðan heimsótt
að meðaltali af 92 milljónum
manna á degi hverjum.
Talið er að heimsóknafjöldi á
dag fari yfir 100 milljónir í ár.
Á hverri mínútu heimsækja
63.992 nýir notendur Pornhub,
horft er á 207,405 myndbönd og
leitað að 57,750 leitarorðum.
Vinsælasta myndbandið á
Pornhub er kynlífsmyndband
raunveruleikastjörnunnar Kim
Kardashian.