Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Síða 12
12 FÓKUS - VIÐTAL 19. júlí 2019
bætti við að það væri mikil mildi
að meiðsli Davíðs hefðu ekki verið
alvarlegri en raun bar vitni. Í fyrstu
var talið að hann hefði hlotið alvar-
leg höfuðmeiðsli. Svo reyndist ekki
vera. Hann lærbrotnaði en brotið
var hreint. Mikið hafi blætt úr höfði
Davíðs og því talið að hann væri illa
slasaður á höfði. Síðar hafi komið
í ljós að um yfirborðssár hafi verið
að ræða.
„Davíð og Lena voru bæði lögð
inn á sama sjúkrahús og Elliot hef-
ur komið að heimsækja þau. Það
er mikill kærleikur meðal þeirra og
gleði yfir því að vera á lífi, á sama
tíma eru þau harmi slegin yfir frá-
falli Guðna Rúnars,“ sagði Jón
Gunnar í viðtalinu við DV og bætti
við á öðrum stað að Guðni hefði
verið afar myndarlegur og efnileg-
ur maður. Andlát hans var mikið
áfall.
Endurfæddist
„Ég segi alltaf að 18. ágúst 2007 sé
minn seinni fæðingardagur. Ég
gleymi því aldrei þegar ég vaknaði,
eftir að hafa verið meðvitundarlaus
í korter, og uppgötvaði að ég var
ennþá á lífi. Ég hafði fengið annað
tækifæri. Þarna gerði ég mér grein
fyrir að ég yrði að breyta viðhorfi
mínu til lífsins. Ég ákvað að þaðan
í frá myndi ég breyta því hvernig
ég kæmi fram við fólkið í kringum
mig,“ segir Davíð.
Í kjölfarið fór Davíð að leita að
tilgangi í lífinu, eins og hann orðar
það. Hann er alinn upp í kristinni
trú en fjarlægðist trúna sem barn
og unglingur. Hann fór að lesa Bibl-
íuna aftur og leitaði að svörum.
Það leiddi til þess að hann hóf
nám guðfræði og árið 2010 útskrif-
aðist hann með BA-gráðu í guð-
fræði. Í dag er hann giftur, fjögurra
barna fjölskyldufaðir og starfar
sem prestur í sóknarkirkjunni í
Port Coquitlam. Hann heimsækir
reglulega grunnskóla þar og miðl-
ar af reynslu sinni, ræðir við ung-
menni og hvetur þau til að lifa líf-
inu til fulls.
Á seinasta ári hrundi Davíð
af stað herferðinni Love My City
Week, ásamt 10 ungmennum úr
sókninni og blaðamaður spyr
hann nánar út í hugsunina þar að
baki.
„Love My City Week snýst um
að tengja saman fólkið, íbúana
í borginni. Í eina viku kemur
fólk saman og vinnur að hinum
ýmsu verkefnum sem snúa að
því að bæta og fegra umhverfið í
borginni,“ útskýrir Davíð. Hann
segir tilganginn meðal annars að
útrýma einmanaleika og koma í
veg fyrir einangrun, með því að láta
fólk koma saman og gefa til baka
til samfélagsins. Vikunni lýkur síð-
an með útihátíð þar sem þekktir
tónlistarmenn og skemmtikraftar
gefa vinnu sína. Davíð líkir stemn-
ingunni við anda jólanna, þar sem
kærleikur og gjafmildi ræður ríkj-
um.
Verkefninu var ýtt úr vör í
þremur borgum á seinasta ári,
Coquitlam, Port Coquitlam og Port
Moody. Viðtökurnar voru prýði-
legar og yfir 1.000 manns tóku
þátt, meðal annars með því að tína
rusl á víðavangi og mála vegi sem
höfðu verið ósnertir í tuttugu ár. Í
ár bættist heimaborg Davíðs við,
Pitt Meadows, og fjöldi þátttak-
enda hefur margfaldast. Stórfyrir-
tæki á borð við Coca -Cola, Star-
bucks og Home Depot hafa styrkt
verkefnið rausnarlega.
Davíð stefnir enn lengra með
verkefnið. Fyrsta skrefið er að koma
Love My City í allar borgir í Kanada.
Næsta skref er allur heimurinn.
„Þegar við komum öll saman,
og leggjum ást við umhverfið og
borgina okkar þá getur ekki annað
en gott komið út úr því.“ n
Frétt DV í ágúst 2007
Ljósmynd/Tímarit.is.