Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 17
19. júlí 2019 FRÉTTIR 17
einangraður í kjölfar atburðarins.
Þetta kemur meðal annars fram í
frétt Vísis af málinu árið 2011. Þar
segir að einangrun hans hafi ver-
ið rofin þegar hann kynntist Hildi,
unnustu Hannesar. Gunnar varð
sjúklega ástfanginn af henni sem
leiddi til þess að hann fór að hug-
leiða að myrða Hannes.
Í yfirheyrslum hjá lögreglu
skömmu eftir morðið sagði Gunn-
ar: „Ég elskaði Hildi. Hún átti að
vera hjá mér. Hún átti ekki að vera
með honum.“
Geðlæknir greindi Gunnar
með ástsýki – amor insanus – og
var hann dæmdur ósakhæfur í
héraðsdómi. Þeim dómi var hins
vegar hrundið í Hæstarétti þar
sem Gunnar var úrskurðaður sak-
hæfur og dæmdur í 16 ára fangelsi.
Gunnar stakk Hannes, sem
veitti viðnám, 19 sinnum með
hnífi. Vegna þess hvað morðið var
einstaklega kaldrifjað og hrotta-
legt þykir mörgum ótækt að hann
skuli nú, níu árum síðar, ganga
um á meðal fólks. Faðir Hannesar,
Helgi Vilhjálmsson – Helgi í Góu –
sagði um þetta í viðtali við DV fyrir
stuttu:
„Menn sem setja svona lög og
reglur – hafa þeir einhvern tíma
lent í svona sjálfir? Að sonur þeirra
eða dóttir sé myrt að yfirlögðu ráði,
með köldu blóði? Það efast ég um.
En hafa þeir rætt við þá sem lenda
í slíku og sett sig í spor þeirra? Það
efast ég líka um.“ n
DÆMDUR MORÐINGI EN LIFIR AÐ
MIKLU LEYTI EINS OG FRJÁLS MAÐUR
n Gunnar vinnur hjá Rauða krossinum n Afþakkaði kurteislega viðtal við DV n Heimsækir fjölskyldu sína reglulega og hefur afnot af bíl
Bíll Rúnars, sá
silfurgrái, fyrir
utan áfangaheimili
Verndar.