Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Síða 20
20 PRESSAN 19. júlí 2019
n Ásakaður um hótanir og frændhygli n Rekstur embættisins í ólestri n Skipaður ítrekað án auglýsingar
E
mbætti ríkislögreglu-
stjóra hefur verið harð-
lega gagnrýnt undanfar-
ið, bæði af einstaklingum
sem segja farir sínar ekki sléttar
af samskiptum við það sem og
af lögreglumönnum sem þykir
víða pottur brotinn í starfsemi
þess. Því er ekki úr vegi að rekja
aðeins sögu Haraldar Johann-
essen ríkislögreglustjóra sem
hefur gegnt embættinu í rúm-
lega tvo áratugi.
Haraldur er fæddur 25. júní
1954 í Reykjavík. Hann er sonur
skáldsins og fyrrverandi ritstjóra
Morgunblaðsins, Matthíasar
Johannessen, og eiginkonu
hans, Hönnu Ingólfsdóttur Jo-
hannessen. Bróðir Haraldar er
Ingólfur Johannessen, doktor
í veirufræði. Haraldur er giftur
Brynhildi Ingimundardóttur og
eiga þau þrjú börn, Matthías,
Kristján og Önnu.
Haraldur lauk embættis-
prófi í lögfræði árið 1983 og
lagði stund á framhaldsnám
í afbrotafræði í Bandaríkjun-
um á árunum 1983–1984. Þegar
hann sneri aftur til Íslands
gegndi hann stöðu aðstoðar-
manns forstjóra ÍSAL í tvö ár
áður en hann tók við nýstofn-
uðu embætti fangelsismála-
stjóra. Hann var fangelsismála-
stjóri frá árinu 1988–1996. Árin
1996-1998 starfaði hann sem
varalögreglustjóri, sem var nýtt
embætti þegar hann tók við því.
Hann tók svo við sem ríkislög-
reglustjóri 1998, sem hann var
upprunalega skipaður í til fimm
ára.
Embætti Haraldar er nú til
rannsóknar hjá dómsmála-
ráðuneytinu, enda í mörg horn
að líta. Framkoma og hátterni
Haraldar gegn sérsveitarmönn-
um, meint einelti, rekstrarlegir
þættir og fleira. Embættið hef-
ur ekki skrifað undir ársreikn-
inga síðan fyrir árið 2016 og
mikil óánægja er meðal lög-
reglumanna með fatnað og
ökutæki. Haraldur var skipað-
ur í embættið í fimmta sinn á
síðasta ári. Það var í fjórða sinn
sem hann er skipaður áfram,
án þess að embættið sé auglýst.
Hann er því nokkuð öruggur
með starfið allt til ársins 2023.
Haraldur víkur ekki í
skugga harðrar gagnrýni
Erla Dóra
erladora@dv.is
NÆRMYND
VÖRUR Í BOÐI TIL
MERKINGA
STUTTERMABOLIR
POLOBOLIR
HETTUPEYSUR
PEYSUR
HÚFUR
HANSKAR
BARNAPEYSUR
BARNABOLIR
Malarhöfða 2
5813330
EIGUM ALLAR TEGUNDIR OG LITI
AF FYRIRTÆKJAFATNAÐI
SAUMASTOFA.ISLANDS@GMAIL.COM
M
atthías, faðir Har-
aldar, var ritstjóri
Morgunblaðsins og
mikill áhrifamaður
innan Sjálfstæðisflokksins.
Hann birti opinberlega
dagbækur sínar þar sem
má finna áhugaverðar lýs-
ingar á hvernig sonur hans
endaði sem ríkislögreglu-
stjóri.
11. janúar 1996
„Haraldur son
ur okkar talaði
við Davíð Odds
son um starf sitt
í morgun […]
Harald langar
til að skipta um
starf enda hef
ur hann sinnt
þessu erfiða og
erilsama emb
ætti fangels
ismálastjóra
nógu lengi,
bæði að hans viti og okkar. […]
Hann var ekki að heita á hurð
ir Davíðs, aldeilis ekki enda
hefur hann ekkert með dóms
mál að gera. En hann langaði
til að heyra í honum hljóðið og
kanna stöðu sína.“
8. nóvember 1996
„Haraldur er að hugsa um
að sækja um varalögreglu
stjóraembættið ef hann fær
hvatningu til þess.“
17. nóvember 1996
„Haraldur sonur minn hefur
sótt um nýtt starf, embætti
varalögreglustjórans í Reykja
vík. Mér skilst að Þorsteinn
Pálsson hafi kallað hann á
sinn fund og hvatt hann til að
sækja um. Vona að það fari
allt vel úr hendi.“
23. nóvember 1996
„Mér skilst það sé talið sjálf
sagt að Halli fái þetta nýja
embætti sem hann er að sækja
um. Held að hann sé spenntur
fyrir því sjálfur. Þá mundi
hann losna úr embætti fang
elsismálastjórans og er svo
sannarlega kominn tími til.
Hann gæti orðið verðmætur
yfirmaður lögreglunnar, fastur
fyrir en hlýr og viðkvæmur og
tillitssamur við annað fólk.
Ágætur í lögum. Vona reyndar
að hann losni úr gamla emb
ættinu og taki til við ný verk
efni.“
18. desember 1996
„Haraldur sonur okkar var
skipaður í embætti varalög
reglustjórans í Reykjavík í
dag. Það var hraustlega gert
af Þorsteini Pálssyni. Hann
lætur deilur okkar um sjávar
útvegsmál ekki lenda á syni
mínum. Það sýnir að Þor
steinn er drengskaparmaður,
enda vissi ég það áður.“
18. janúar 1998
„Haraldur sonur minn hefur
sótt um embætti ríkislög
reglustjóra. Þegar hann
tók við varalögreglustjóra
embættinu í Reykjavík var
á það minnzt að hann gerði
sínar endurbætur á emb
ættinu, en vel gæti komið til
greina að hann tæki við ríkis
lögreglustjóraembættinu að
því loknu, ef það losnaði.“
30. janúar 1998
„Haraldur sonur okkar var
skipaður í embætti ríkis
lögreglustjóra en það er
mikið embætti og krefst
ábyrgðartilfinningar og
hrokalausrar vizku. […] Halli
hefur unnið sig upp í þetta
embætti sjálfur en Þorsteinn
Pálsson hefur þá líka sýnt
honum mikinn drengskap.“
Sonur áhrifamanns innan Sjálfstæðisflokksins
Matthías Johannessen