Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 26
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ Eftir að hafa fundið fyrir miklum áhuga á rafíþróttum meðal barna og unglinga í Hafnarfirði og nágrannasveitarfélögum hófst Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) handa við að skipuleggja metnaðar- fullt rafíþróttastarf innan félagsins. „Í byrjun maí héldum við kynningingar- fund um rafíþróttir og rafíþróttastarf okkar. Fundurinn var mjög vel sótt- ur og um 80 manns, ungmenni og fullorðnir fjölmenntu á fundinn,“ segir Hallsteinn Arnarson, annar af verk- efnastjórum Rafíþrótta hjá FH. Mótuð og metnaðarfull markmið Rafíþróttir FH, eða FH eSports, er sjálfstæð eining sem er rekin undir hatti knattspyrnudeildar félags- ins. „Við höfum kynnt okkur vel rafíþróttastarfsemi erlendis og erum í góðu sambandi við nokkur þekkt íþróttafélög. Búið er að setja upp umgjörðina, skipulagið, metnaðarfull markmið og móta framtíðarsýnina. FH er elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði og félagið vill ávallt vera í fremstu röð og leiðandi í íþrótta- og uppeldisstarfi.“ Starfið skiptist í tvennt hjá FH. Annars vegar eru það yngri flokkar og hins vegar keppnis- eða úrvalslið eldri spilara. Báðir hópar æfa og keppa í spilun tölvuleikja í nýrri, glæsilegri aðstöðu í Kaplakrika, höfuðstöðvum FH. Origo og NIKE eru traustir og ómetanlegir stuðningsað- ilar Rafíþróttadeildar FH hvað varðar m.a. tölvubúnað og íþróttafatnað. Mörg börn og unglingar finna sig ekki í venjulegu hópstarfi og/eða vilja frekar spila tölvuleiki en æfa og keppa í hefðbundnum íþróttum. Þau eyða miklum tíma í að spila tölvuleiki heima hjá sér, oft ein inni í dimmu herbergi, nærast á óhollum drykkjum, mat og sætindum, eiga í litlum samskiptum við fjölskyldu og aðra, fara ekki út úr húsi, o.s.frv. Of mikil tölvuleikjaspilun (fíkn) getur leitt til óæskilegra lífs- hátta á borð við félagslega einangr- un, ónægan svefn, hreyfingarleysi og óhollt mataræði. Tölvuleikjaspilun hefur því löngum haft slæmt orð á sér og margir foreldrar réttilega áhyggjufullir ef þetta er hegðunar- mynstur barna þeirra. Heilbrigðari tölvuleikjaspilun „Rafíþróttastarf getur umbylt ástandinu og virkjað þessa hæfileik- aríku einstaklinga í heilbrigðu og skemmtilegu umhverfi. Viðhorf okkar er að það sé svalt að spila tölvuleiki. Það krefst mikilla hæfileika og æfinga að verða góð(ur) í tölvuleikjaspilun. En spilunin, eins og flest annað í lífinu, verður að vera iðkuð rétt, í hófi og í jafnvægi við aðra þætti hversdags- lífsins. Við bjóðum þessa efnilegu einstaklinga velkomna í Kaplakrika. Þar hitta þeir fyrir önnur ungmenni með sömu áhugamál, æfa saman og keppa sín á milli eða við aðra í tölvuleikjum, undir eftirliti og leið- sögn reyndra þjálfara. Þau mæta á æfingar og fá tækifæri til að rækta hæfileika sína í faglegu, skemmtilegu og umfram allt öruggu umhverfi. Þau eignast nýja vini, læra samvinnu og að tilheyra liði, öðlast sjálfstraust, fá fræðslu um tölvuleiki og rétta nálgun spilunar, o.fl. Við leggjum áherslu á að við erum ekki eingöngu að spila tölvuleiki til gamans, heldur æfum við mark- visst til að verða betri spilarar og búa okkur undir skipulagða keppni í einstaklings- eða fjölspilaraleikjum. Til að ná góðum árangri í rafíþrótt- um, líkt og í öðrum íþróttum, þarf að vera í góðu líkamlegu formi, æfa rétt og vel, leggja hart að sér, huga að mataræðinu, fá nægan svefn o.s.frv. Líkamlegar æfingar, leikir og teygjur eru því mikilvægur hluti tölvuleikja- æfinganna. Við viljum þannig byggja brú milli hefðbundinna íþrótta og rafíþrótta.“ Góðar fyrirmyndir FH ætlar líka að vera með góða keppendur og keppnis-/úrvalslið eldri og yngri spilara í tölvuleikjum eins og Fortnite, FIFA, League of Legends og Counter Strike. Þeir keppendur og lið munu keppa undir merkjum FH eSports hérlendis og erlendis, og eru góðar fyrirmyndir fyrir þá yngri. „Liðið okkar í League of Legends (LoL) tölvuleiknum, sem vann báða stóru titlana í Lenovodeildinni, er byrjað að keppa í undankeppni Norður- landamótsins í LoL. Það verður mjög spennandi að fylgjast með strákun- um keppa á því móti því þeir hafa æft vel saman í Krikanum síðustu vikur. Einnig bíðum við spennt eftir næstu stóru FIFA keppni hérlend- is, sem verður líklega haldin með haustinu. Þar teflum við fram Jóhanni Ólafi, núverandi Íslandsmeistara í FIFA tölvuleiknum. Jóhann er flottur strákur sem við bindum miklar vonir við. Sömuleiðis höfum við fengið fyrir- spurnir um tölvuleikjakeppni við þekkt erlend íþróttafélög,“ segir Hallsteinn. Námskeið í Fortnite gekk vonum framar „Við vorum að byrja með námskeið í Fortnite tölvuleiknum fyrir börn og unglinga á aldrinum 9–14 ára. Námskeiðið hefur gengið mjög vel, ungmennin eru mjög ánægð með það og bros á hverju andliti. Nám- skeiðið fylltist nær samdægurs og einhverjir eru komnir á biðlista fyrir næstu námskeið. Framundan eru því fleiri Fortnite námskeið, FIFA nám- skeið og svo mögulega námskeið í Counter Strike tölvuleiknum fyrir eldri einstaklinga síðar í sumar. Í haust fer svo rafíþróttastarfið á fullt hjá okkur með skipulögðum æfingatímum fyrir mismunandi aldurshópa. Mögulega verðum við líka með helgarnámskeið í haust og vetur. Rafíþróttir FH fá síðan flotta aðstöðu til frambúðar í Skessunni, nýja stóra knatthúsimu sem er að rísa á Kaplakrikasvæðinu,“ segir Hallsteinn. Frekari upplýsingar um rafíþrótta- námskeið og rafíþróttastarf FH má nálgast á vefsíðu félagsins, fh.is og Facebook-síðu félagsins: FH Hafnarfjörður. Byggja brú á milli hefð- bundinna íþrótta og rafíþrótta FH: Myndir: Eyþór Árnason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.