Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 26
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Eftir að hafa fundið fyrir miklum áhuga á rafíþróttum meðal barna og unglinga í Hafnarfirði
og nágrannasveitarfélögum hófst
Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH)
handa við að skipuleggja metnaðar-
fullt rafíþróttastarf innan félagsins. „Í
byrjun maí héldum við kynningingar-
fund um rafíþróttir og rafíþróttastarf
okkar. Fundurinn var mjög vel sótt-
ur og um 80 manns, ungmenni og
fullorðnir fjölmenntu á fundinn,“ segir
Hallsteinn Arnarson, annar af verk-
efnastjórum Rafíþrótta hjá FH.
Mótuð og metnaðarfull markmið
Rafíþróttir FH, eða FH eSports, er
sjálfstæð eining sem er rekin undir
hatti knattspyrnudeildar félags-
ins. „Við höfum kynnt okkur vel
rafíþróttastarfsemi erlendis og erum
í góðu sambandi við nokkur þekkt
íþróttafélög. Búið er að setja upp
umgjörðina, skipulagið, metnaðarfull
markmið og móta framtíðarsýnina.
FH er elsta starfandi íþróttafélag í
Hafnarfirði og félagið vill ávallt vera í
fremstu röð og leiðandi í íþrótta- og
uppeldisstarfi.“ Starfið skiptist í tvennt
hjá FH. Annars vegar eru það yngri
flokkar og hins vegar keppnis- eða
úrvalslið eldri spilara. Báðir hópar
æfa og keppa í spilun tölvuleikja í
nýrri, glæsilegri aðstöðu í Kaplakrika,
höfuðstöðvum FH. Origo og NIKE eru
traustir og ómetanlegir stuðningsað-
ilar Rafíþróttadeildar FH hvað varðar
m.a. tölvubúnað og íþróttafatnað.
Mörg börn og unglingar finna sig
ekki í venjulegu hópstarfi og/eða vilja
frekar spila tölvuleiki en æfa og keppa
í hefðbundnum íþróttum. Þau eyða
miklum tíma í að spila tölvuleiki heima
hjá sér, oft ein inni í dimmu herbergi,
nærast á óhollum drykkjum, mat og
sætindum, eiga í litlum samskiptum
við fjölskyldu og aðra, fara ekki út úr
húsi, o.s.frv. Of mikil tölvuleikjaspilun
(fíkn) getur leitt til óæskilegra lífs-
hátta á borð við félagslega einangr-
un, ónægan svefn, hreyfingarleysi
og óhollt mataræði. Tölvuleikjaspilun
hefur því löngum haft slæmt orð
á sér og margir foreldrar réttilega
áhyggjufullir ef þetta er hegðunar-
mynstur barna þeirra.
Heilbrigðari tölvuleikjaspilun
„Rafíþróttastarf getur umbylt
ástandinu og virkjað þessa hæfileik-
aríku einstaklinga í heilbrigðu og
skemmtilegu umhverfi. Viðhorf okkar
er að það sé svalt að spila tölvuleiki.
Það krefst mikilla hæfileika og æfinga
að verða góð(ur) í tölvuleikjaspilun.
En spilunin, eins og flest annað í lífinu,
verður að vera iðkuð rétt, í hófi og í
jafnvægi við aðra þætti hversdags-
lífsins. Við bjóðum þessa efnilegu
einstaklinga velkomna í Kaplakrika.
Þar hitta þeir fyrir önnur ungmenni
með sömu áhugamál, æfa saman
og keppa sín á milli eða við aðra í
tölvuleikjum, undir eftirliti og leið-
sögn reyndra þjálfara. Þau mæta á
æfingar og fá tækifæri til að rækta
hæfileika sína í faglegu, skemmtilegu
og umfram allt öruggu umhverfi. Þau
eignast nýja vini, læra samvinnu og
að tilheyra liði, öðlast sjálfstraust, fá
fræðslu um tölvuleiki og rétta nálgun
spilunar, o.fl.
Við leggjum áherslu á að við erum
ekki eingöngu að spila tölvuleiki til
gamans, heldur æfum við mark-
visst til að verða betri spilarar og
búa okkur undir skipulagða keppni í
einstaklings- eða fjölspilaraleikjum.
Til að ná góðum árangri í rafíþrótt-
um, líkt og í öðrum íþróttum, þarf að
vera í góðu líkamlegu formi, æfa rétt
og vel, leggja hart að sér, huga að
mataræðinu, fá nægan svefn o.s.frv.
Líkamlegar æfingar, leikir og teygjur
eru því mikilvægur hluti tölvuleikja-
æfinganna. Við viljum þannig byggja
brú milli hefðbundinna íþrótta og
rafíþrótta.“
Góðar fyrirmyndir
FH ætlar líka að vera með góða
keppendur og keppnis-/úrvalslið eldri
og yngri spilara í tölvuleikjum eins og
Fortnite, FIFA, League of Legends
og Counter Strike. Þeir keppendur
og lið munu keppa undir merkjum
FH eSports hérlendis og erlendis, og
eru góðar fyrirmyndir fyrir þá yngri.
„Liðið okkar í League of Legends (LoL)
tölvuleiknum, sem vann báða stóru
titlana í Lenovodeildinni, er byrjað
að keppa í undankeppni Norður-
landamótsins í LoL. Það verður mjög
spennandi að fylgjast með strákun-
um keppa á því móti því þeir hafa
æft vel saman í Krikanum síðustu
vikur. Einnig bíðum við spennt eftir
næstu stóru FIFA keppni hérlend-
is, sem verður líklega haldin með
haustinu. Þar teflum við fram Jóhanni
Ólafi, núverandi Íslandsmeistara í
FIFA tölvuleiknum. Jóhann er flottur
strákur sem við bindum miklar vonir
við. Sömuleiðis höfum við fengið fyrir-
spurnir um tölvuleikjakeppni við þekkt
erlend íþróttafélög,“ segir Hallsteinn.
Námskeið í Fortnite gekk vonum
framar
„Við vorum að byrja með námskeið
í Fortnite tölvuleiknum fyrir börn
og unglinga á aldrinum 9–14 ára.
Námskeiðið hefur gengið mjög vel,
ungmennin eru mjög ánægð með
það og bros á hverju andliti. Nám-
skeiðið fylltist nær samdægurs og
einhverjir eru komnir á biðlista fyrir
næstu námskeið. Framundan eru því
fleiri Fortnite námskeið, FIFA nám-
skeið og svo mögulega námskeið í
Counter Strike tölvuleiknum fyrir eldri
einstaklinga síðar í sumar. Í haust fer
svo rafíþróttastarfið á fullt hjá okkur
með skipulögðum æfingatímum fyrir
mismunandi aldurshópa. Mögulega
verðum við líka með helgarnámskeið
í haust og vetur. Rafíþróttir FH fá
síðan flotta aðstöðu til frambúðar í
Skessunni, nýja stóra knatthúsimu
sem er að rísa á Kaplakrikasvæðinu,“
segir Hallsteinn.
Frekari upplýsingar um rafíþrótta-
námskeið og rafíþróttastarf FH má
nálgast á vefsíðu félagsins, fh.is
og Facebook-síðu félagsins: FH
Hafnarfjörður.
Byggja brú á milli hefð-
bundinna íþrótta og rafíþrótta
FH:
Myndir: Eyþór Árnason