Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 35
Rafíþróttir 19. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Hjálpar þér að hefja
tölvuleikjaferilinn
COMPUTER.IS:
Computer.is er ein virtasta tölvu-verslun landsins með fjölbreytt úrval af tölvum og tölvuíhlutum
fyrir leikjaspilara og aðra tölvunot-
endur. Ólíkt því sem margir halda þá
er auðvelt og nokkuð ódýrt að koma
sér upp sæmilegri leikjastöð heima.
Það þarf ekki endilega að fjárfesta í
öllum nýjustu og fínustu græjunum,
sérstaklega þegar um byrjendur er
að ræða. Þegar fólk finnur svo áhug-
ann vaxa er alltaf hægt að uppfæra
einstaka íhluti og annan búnað síðar
meir. „Við hjá Computer.is leggjum
mikla áherslu á að viðskiptavinir okkar
fái vöru sem uppfyllir væntingar og
kröfur hvers og eins. Það er því mik-
ilvægt að taka gott samtal áður en
ákvörðun er tekin varðandi val á bún-
aði og þarna gegnum við lykilhlutverki
sem söluaðili,“ segir verslunarstjóri
Computer.is.
En hvað á að velja?
„Í fyrsta lagi er mikilvægt að velja
tölvu sem ræður við þá leiki sem á
að spila. Ef ætlunin er að spila leiki
á borð við League of Legends (LoL)
eða CS:GO, sem eru frekar léttir í
keyrslu, þá er auðvelt að spila þá á
öflugri fartölvu. Við bjóðum upp á
Lenovo Legion leikjafartölvur sem eru
einstaklega vel smíðaðar og fallegar.
Borðtölvurnar hafa þó yfirleitt
vinningin þegar kemur að leikjaspilun
og eru möguleikarnir fleiri, t.d. varð-
andi uppfærslu- og eða viðgerðar-
möguleika þegar fram líða stundir. Þá
mælum við sérstaklega með InWin
Gamer leikjatölvunum en þær koma
með þriggja ára ábyrgð og eru smíð-
aðar af okkar færustu tæknimönnum
af mikilli ástríðu. Svo þarf að velja skjá
sem hentar tölvunni. Því til viðbótar er
vissulega nauðsynlegt að vera með
lyklaborð, mús og hátalara/heyrnar-
tól. Við getum ráðlagt hverjum sem er
þegar kemur að öllu þessu vali.“
Fyrir lengra komna
„Við höfum tekið eftir því undan-
farið að spilarar eru í auknum mæli
farnir að velja leikjaskjái með hærri
endurnýjunartíðni en það þýðir að
skjáir geta sýnt fleiri ramma á sek-
úndu og nýta því gjarnan vélbúnað-
inn enn betur fyrir stóraukin afköst
í leikjum. Með því að huga að svona
atriðum verða spilarar sigurstrang-
legri í FPS leikjamótum eins og í
CS:GO. Leikjaskjáir eru yfirleitt með
144–240Hz endurnýjunartíðni í stað
60Hz sem tíðkast í hefðbundnum
tölvuskjáum.“
Sturlaðir stýripinnar og geggjað
lyklaborð
„Fyrir þá sem stunda bíla- og flug-
vélaleiki mælum við með stýrum og
stýripinnum frá Thrustmaster. Þessi
framleiðandi gerir ekkert annað en að
framleiða einmitt slíkan búnað, hann
býr að áratuga reynslu og gerir það
einstaklega vel. Undanfarin misseri
hafa Logitech-leikjalyklaborðin selst
vel hjá okkur. Þar má einna helst
nefna Logitech G213, G413 og G PRO.
Við mælum með mús og músarmottu
í stíl frá sama framleiðanda til að
fullkomna leikjaaðstöðuna.“
Rafíþróttir njóta sívaxandi vinsælda
hér á landi og þróunin hröð. Það er
óhætt að segja að tölvuleikjabrans-
inn hafi sjaldan eða aldrei verið í
jafnmiklum blóma og hann er einmitt
núna. Starfsmenn Computer.is finna
mikið fyrir þessu t.d. í aukinni sölu á
PC-tölvum, en þær virka best þegar
kemur að tölvuleikjaspilun. „Eins og
flestir vita hefur fólk á öllum aldri
stundað tölvuleiki í áratugi en það
er ekki fyrr en núna sem þetta sport
fær virkilega jákvæða umfjöllun hjá
flestum íþróttafélögum. Í dag fær
félagslega hliðin einnig að blómstra
þar sem krakkar og unglingar koma
saman og spila á mótum og deila
reynslu sinni. Þá hafa íþróttafélögin
sem og Rafíþróttaskólinn tekið upp á
því að bjóða upp á námskeið í vinsæl-
ustu leikjunum. Þessi þróun er mjög
jákvæð og það eru spennandi tímar
framundan,“ segir verslunarstjóri
Computer.is.