Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Qupperneq 35
Rafíþróttir 19. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ Hjálpar þér að hefja tölvuleikjaferilinn COMPUTER.IS: Computer.is er ein virtasta tölvu-verslun landsins með fjölbreytt úrval af tölvum og tölvuíhlutum fyrir leikjaspilara og aðra tölvunot- endur. Ólíkt því sem margir halda þá er auðvelt og nokkuð ódýrt að koma sér upp sæmilegri leikjastöð heima. Það þarf ekki endilega að fjárfesta í öllum nýjustu og fínustu græjunum, sérstaklega þegar um byrjendur er að ræða. Þegar fólk finnur svo áhug- ann vaxa er alltaf hægt að uppfæra einstaka íhluti og annan búnað síðar meir. „Við hjá Computer.is leggjum mikla áherslu á að viðskiptavinir okkar fái vöru sem uppfyllir væntingar og kröfur hvers og eins. Það er því mik- ilvægt að taka gott samtal áður en ákvörðun er tekin varðandi val á bún- aði og þarna gegnum við lykilhlutverki sem söluaðili,“ segir verslunarstjóri Computer.is. En hvað á að velja? „Í fyrsta lagi er mikilvægt að velja tölvu sem ræður við þá leiki sem á að spila. Ef ætlunin er að spila leiki á borð við League of Legends (LoL) eða CS:GO, sem eru frekar léttir í keyrslu, þá er auðvelt að spila þá á öflugri fartölvu. Við bjóðum upp á Lenovo Legion leikjafartölvur sem eru einstaklega vel smíðaðar og fallegar. Borðtölvurnar hafa þó yfirleitt vinningin þegar kemur að leikjaspilun og eru möguleikarnir fleiri, t.d. varð- andi uppfærslu- og eða viðgerðar- möguleika þegar fram líða stundir. Þá mælum við sérstaklega með InWin Gamer leikjatölvunum en þær koma með þriggja ára ábyrgð og eru smíð- aðar af okkar færustu tæknimönnum af mikilli ástríðu. Svo þarf að velja skjá sem hentar tölvunni. Því til viðbótar er vissulega nauðsynlegt að vera með lyklaborð, mús og hátalara/heyrnar- tól. Við getum ráðlagt hverjum sem er þegar kemur að öllu þessu vali.“ Fyrir lengra komna „Við höfum tekið eftir því undan- farið að spilarar eru í auknum mæli farnir að velja leikjaskjái með hærri endurnýjunartíðni en það þýðir að skjáir geta sýnt fleiri ramma á sek- úndu og nýta því gjarnan vélbúnað- inn enn betur fyrir stóraukin afköst í leikjum. Með því að huga að svona atriðum verða spilarar sigurstrang- legri í FPS leikjamótum eins og í CS:GO. Leikjaskjáir eru yfirleitt með 144–240Hz endurnýjunartíðni í stað 60Hz sem tíðkast í hefðbundnum tölvuskjáum.“ Sturlaðir stýripinnar og geggjað lyklaborð „Fyrir þá sem stunda bíla- og flug- vélaleiki mælum við með stýrum og stýripinnum frá Thrustmaster. Þessi framleiðandi gerir ekkert annað en að framleiða einmitt slíkan búnað, hann býr að áratuga reynslu og gerir það einstaklega vel. Undanfarin misseri hafa Logitech-leikjalyklaborðin selst vel hjá okkur. Þar má einna helst nefna Logitech G213, G413 og G PRO. Við mælum með mús og músarmottu í stíl frá sama framleiðanda til að fullkomna leikjaaðstöðuna.“ Rafíþróttir njóta sívaxandi vinsælda hér á landi og þróunin hröð. Það er óhætt að segja að tölvuleikjabrans- inn hafi sjaldan eða aldrei verið í jafnmiklum blóma og hann er einmitt núna. Starfsmenn Computer.is finna mikið fyrir þessu t.d. í aukinni sölu á PC-tölvum, en þær virka best þegar kemur að tölvuleikjaspilun. „Eins og flestir vita hefur fólk á öllum aldri stundað tölvuleiki í áratugi en það er ekki fyrr en núna sem þetta sport fær virkilega jákvæða umfjöllun hjá flestum íþróttafélögum. Í dag fær félagslega hliðin einnig að blómstra þar sem krakkar og unglingar koma saman og spila á mótum og deila reynslu sinni. Þá hafa íþróttafélögin sem og Rafíþróttaskólinn tekið upp á því að bjóða upp á námskeið í vinsæl- ustu leikjunum. Þessi þróun er mjög jákvæð og það eru spennandi tímar framundan,“ segir verslunarstjóri Computer.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.