Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 36
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Fyrir rafíþróttir og leikjaspilun
TÖLVULISTINN:
Tölvulistinn hefur lengi verið leiðandi verslun í tölvuvörum á Íslandi og þar fæst allur nauðsynlegur búnaður fyrir rafíþróttir og leikjaspilun í flestum birtingarmyndum. Oftast er keppt á 24 tommu skjáum í skotleikjum en
þó hafa 27 tommu skjáir verið afar vinsælir líka. Við tókum saman nokkra af
vinsælustu og mest spennandi skjáunum sem eru fáanlegir í Tölvulistanum.
Einn öflugasti 24 tommu skjárinn sem er fáanlegur í Tölvulistanum
Asus ROG Swift XG258Q er keppnisskjár fyrir tölvuleiki með FreeSync
stuðning.
Hann hefur 240Hz svo skjámyndin uppfærist 240 sinnum á sekúndu, sem
er fjórfalt meira en í hefðbundnum skjáum. Skjárinn er sérstaklega byggður
til notkunar í helstu eSports leikjum eins og CS, Starcraft, LoL, Dota 2 o.fl.
Asus ROG Swift XG258Q
Verð 89.995
Margverðlaunaður keppnisskjár
Asus ROG Swift PG258Q er 24 tommu keppnisskjár fyrir tölvuleiki með
G-Sync-stuðning. Með 240Hz uppfærist skjámyndina 240 sinnum á sekúndu,
sem er fjórfalt meira en í hefðbundnum skjáum.
Skjárinn fékk verðlaun frá European Hardware Awards árið 2017 sem
besti leikjaskjárinn á markaðnum enda markvisst byggður til notkunar í helstu
eSports leikjum eins og CS, Starcraft, LoL, Dota 2 o.fl.
Asus ROG Swift PG258Q
Vinsælasti leikjaskjárinn í Tölvulistanum
Vinsælasti leikjaskjárinn okkar er 27 tommu AOC G2790PX, en flestir fá sér
þennan skjá til þess að spila heima og fyrir strategy, MOBA eða þriðju persónu
leiki.
Þessi hágæða leikjaskjár frá AOC G2790PX er 27 tommu 144Hz Full-HD
með 1ms viðbragðstíma og er sérhannaður fyrir kröfuharða spilara. Skjárinn
nýtir sér AMD FreeSync tækni með studdum AMD skjákortum. Skjárinn kem-
ur á standi sem má hækka, lækka, snúa og halla og innbyggt USB2 fjöltengi
(hub).
Verð 51.995
Fleiri spennandi vörur fyrir
rafíþróttafólk
Elgato vörurnar eru sérstaklega
ætlaðar leikjaspilurum sem taka upp
leikina sína og streyma þeim t.d. á
Twitch eða YouTube. Elgato vörurnar
henta engu að síður fyrir allar gerðir
streymis hvert sem efni þinnar rásar
er. Þetta eru vandaðar og glæsilegar
streymisvörur sem gera þér kleift að
færa streymið þitt upp á æðra stig
og framkalla vandað efni fyrir þína
áhorfendur á einfaldan og fljótlegan
hátt.
Á meðal flottra streymisvara í boði
frá Elgato er t.d. Stream Deck sem
hefur fimmtán forritanlega takka sem
auðvelda alla eftirvinnslu og gera þér
jafnvel kleift að vinna myndefnið þitt
jafnóðum og virkar því vel fyrir beina
útsendingu. Einnig eru í boði Cam
Link og Game Capture upptökukort
sem draga verulega úr hökti ásamt
því að bæta og auka magn efnisins
sem þú getur tekið upp.
Í Tölvulistanum fæst síðan fjöldinn
allur af flottum lyklaborðum og
tölvumúsum sem eru sérstaklega
hönnuð með leikjaspilun í huga.
Baklýst lyklaborð og viðbragðshrað-
ar mýs sem spara þér tíma og auka
möguleika þína á sigri.
Fleiri spennandi og gagnlegar raf-
íþróttavörur frá framleiðendum eins
og Corsair, Razer, Asus, MSI, AOC,
Acer, SteelSeries og CoolerMaster
svo fátt eitt sé nefnt, má skoða í net-
verslun Tölvulistans á tl.is eða í næstu
Tölvulistaverslun, sem eru á 7 stöðum
um land allt.