Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 38
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ „Það eru allir á jafnri grundu í rafíþróttum“ Rafíþróttadeild KR byrjaði þegar við stofnuðum lið til þess að keppa í Counter Strike í Lenovo deildinni, sem var fyrst haldin fyrir fjórum mánuðum. Eins og staðan er í dag er CS liðið okkar, andlit rafí- þróttadeildar KR. Þeir stóðu sig með prýði á þessu móti og við væntum þess að þeir standi sig einnig vel á næsta móti. Rafíþróttir eru gríðarlega vinsælar í dag og hafa áhorfendur verið yfir 200 talsins á hverjum leik. Við hjá KR erum ákaflega spennt að taka þátt í þróun rafíþrótta á Íslandi því Íslendingar eiga marga hæfileik- aríka spilara sem gætu gert góða hluti í rafíþróttamótum erlendis,“ segir Þórir Viðarsson, hjá rafíþróttadeild KR. Námskeið í rafíþróttum Starfsemi innan deildarinnar hefur þróast mikið á undanförnum mánuð- um og er það góðu starfi Rafíþrótta- sambands Íslands að þakka. „Við höfum sótt um styrki hjá íþrótta- og tómstundaráði til að fjármagna búnað fyrir iðkendur rafíþrótta hjá KR. Þá munum við halda námskeið í tölvuleikjaspilun fyrir krakka á aldrin- um 6–16+ í haust. Við finnum fyrir mikilli eftir- væntingu hjá foreldrum vegna þess að KR ætli að fara af stað með nám- skeið í rafíþróttum. Haldinn verður kynningarfundur á næstu dögum þar sem kynnt verður fyrir foreldrum og öðrum áhugasömum hvernig starf- inu verður háttað. Við stefnum á að starfið byrji í september og að það verði þrjú tímabil yfir árið. Septem- ber-október, nóvember-desember og janúar-febrúar. Kennt verður tvisvar í viku, í 8–10 vikur. Kennslustundirnar verða 90 mínútna langar, nemendur eru um 12 talsins og tveir þjálfarar í hverjum tíma. Byrjað er á 30 mínútna spjalli, fræðslu og upphitun til þess að liðka, teygja, tryggja góða líkamstöðu og koma í veg fyrir álagsmeiðsl. Svo er spilað í 60 mínútur sem er gott við- mið þegar kemur að skjátíma barna.“ Ekki bara tölvuleikaspil Rafíþróttir eru svo miklu meira en bara að spila tölvuleiki. Til þess að vera góður spilari þarf margt að koma saman. Það er mikilvægt að æfa markvisst, huga vel að líkam- legu heilbrigði sem og félagslega þættinum, en góður spilari þarf að hafa úthald og einbeitingu. Þá er mikil áhersla lögð á samvinnu og samkennd hjá iðkendum rafíþrótta því liðsheild er mikilvægur þáttur í mörgum tölvuleikjum. Mismunandi tölvuleikir eru spilaðir út frá hverjum aldursflokki fyrir sig enda þarf að passa upp á að krakkar séu að spila leiki sem henta þeirra aldursflokki. Í aldursflokknum 6–8 ára verða spilaðir FIFA og Rocket League. Í aldursflokknum 9–12 ára eru FIFA, RL og Fortnite. 13–15 ára spila League of Legends, FIFA, RL og Fortnite. Svo í flokknum 16+ eru spilaðir LoL, FIFA, RL og svo Counter Strike. „Í mars verður haldið keppnismót fyrir alla iðkendur í viðkomandi leikj- um. Þetta verður stórt og skemmti- legt mót í A-salnum í Frostaskjóli og nær yfir heila helgi. Svo verður glæsi- leg skemmtidagskrá í kjölfarið.“ Stelpur og strákar á jafnri grundu „Með rafíþróttadeild KR viljum við skapa félagslegt stuðningsumhverfi fyrir unga spilara og eldri. Það eru ekki allir byggðir fyrir hefðbundnar boltaíþróttir en margir hafa gríðar- lega hæfileika á öðrum sviðum eins og tölvuleikjaspilun. Það er svo eins með rafíþróttir og skák að það er ekki kynjaskipt í þessum deildum. Þegar kemur að slíkum hugaríþróttum þá eru allir á jafnri grundu.“ KR á gríðarlega sterkt lið í Counter Strike og stefnir á að stofna samb- ærilegt lið í LoL. „CS liðið okkar stóð sig gífurlega vel í Lenovo deildinni síðast. Nú síðast tóku þeir þátt í ESEA Open. 381 lið skráði sig á mótið og okkar menn komust í 16 liða úrslit, sem má teljast frábær árangur. Markmiðið er að koma þeim svo út í heim til að keppa á stórmótum á borð við Copenhagen Games, sem verður haldið um páskana á næsta ári. ESEA er stórt mót, af svipaðri stærðargráðu og Evrópumót félags- liða í fótbolta, sem haldið er árlega og keppa þar lið hvaðanæva úr heimin- um.“ Fylgstu með rafíþróttadeild KR á Facebook: KR.Esports

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.