Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Síða 38
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
„Það eru allir á jafnri
grundu í rafíþróttum“
Rafíþróttadeild KR byrjaði þegar við stofnuðum lið til þess að keppa í Counter Strike í Lenovo
deildinni, sem var fyrst haldin fyrir
fjórum mánuðum. Eins og staðan er
í dag er CS liðið okkar, andlit rafí-
þróttadeildar KR. Þeir stóðu sig með
prýði á þessu móti og við væntum
þess að þeir standi sig einnig vel á
næsta móti. Rafíþróttir eru gríðarlega
vinsælar í dag og hafa áhorfendur
verið yfir 200 talsins á hverjum leik.
Við hjá KR erum ákaflega spennt að
taka þátt í þróun rafíþrótta á Íslandi
því Íslendingar eiga marga hæfileik-
aríka spilara sem gætu gert góða
hluti í rafíþróttamótum erlendis,“ segir
Þórir Viðarsson, hjá rafíþróttadeild
KR.
Námskeið í rafíþróttum
Starfsemi innan deildarinnar hefur
þróast mikið á undanförnum mánuð-
um og er það góðu starfi Rafíþrótta-
sambands Íslands að þakka. „Við
höfum sótt um styrki hjá íþrótta- og
tómstundaráði til að fjármagna
búnað fyrir iðkendur rafíþrótta hjá
KR. Þá munum við halda námskeið í
tölvuleikjaspilun fyrir krakka á aldrin-
um 6–16+ í haust.
Við finnum fyrir mikilli eftir-
væntingu hjá foreldrum vegna þess
að KR ætli að fara af stað með nám-
skeið í rafíþróttum. Haldinn verður
kynningarfundur á næstu dögum þar
sem kynnt verður fyrir foreldrum og
öðrum áhugasömum hvernig starf-
inu verður háttað. Við stefnum á að
starfið byrji í september og að það
verði þrjú tímabil yfir árið. Septem-
ber-október, nóvember-desember og
janúar-febrúar. Kennt verður tvisvar
í viku, í 8–10 vikur. Kennslustundirnar
verða 90 mínútna langar, nemendur
eru um 12 talsins og tveir þjálfarar í
hverjum tíma. Byrjað er á 30 mínútna
spjalli, fræðslu og upphitun til þess að
liðka, teygja, tryggja góða líkamstöðu
og koma í veg fyrir álagsmeiðsl. Svo
er spilað í 60 mínútur sem er gott við-
mið þegar kemur að skjátíma barna.“
Ekki bara tölvuleikaspil
Rafíþróttir eru svo miklu meira en
bara að spila tölvuleiki. Til þess að
vera góður spilari þarf margt að
koma saman. Það er mikilvægt að
æfa markvisst, huga vel að líkam-
legu heilbrigði sem og félagslega
þættinum, en góður spilari þarf að
hafa úthald og einbeitingu. Þá er
mikil áhersla lögð á samvinnu og
samkennd hjá iðkendum rafíþrótta
því liðsheild er mikilvægur þáttur í
mörgum tölvuleikjum.
Mismunandi tölvuleikir eru spilaðir
út frá hverjum aldursflokki fyrir sig
enda þarf að passa upp á að krakkar
séu að spila leiki sem henta þeirra
aldursflokki.
Í aldursflokknum 6–8 ára verða
spilaðir FIFA og Rocket League.
Í aldursflokknum 9–12 ára eru
FIFA, RL og Fortnite.
13–15 ára spila League of Legends,
FIFA, RL og Fortnite.
Svo í flokknum 16+ eru spilaðir LoL,
FIFA, RL og svo Counter Strike.
„Í mars verður haldið keppnismót
fyrir alla iðkendur í viðkomandi leikj-
um. Þetta verður stórt og skemmti-
legt mót í A-salnum í Frostaskjóli og
nær yfir heila helgi. Svo verður glæsi-
leg skemmtidagskrá í kjölfarið.“
Stelpur og strákar á jafnri grundu
„Með rafíþróttadeild KR viljum við
skapa félagslegt stuðningsumhverfi
fyrir unga spilara og eldri. Það eru
ekki allir byggðir fyrir hefðbundnar
boltaíþróttir en margir hafa gríðar-
lega hæfileika á öðrum sviðum eins
og tölvuleikjaspilun. Það er svo eins
með rafíþróttir og skák að það er ekki
kynjaskipt í þessum deildum. Þegar
kemur að slíkum hugaríþróttum þá
eru allir á jafnri grundu.“
KR á gríðarlega sterkt lið í Counter
Strike og stefnir á að stofna samb-
ærilegt lið í LoL. „CS liðið okkar stóð
sig gífurlega vel í Lenovo deildinni
síðast. Nú síðast tóku þeir þátt í ESEA
Open. 381 lið skráði sig á mótið og
okkar menn komust í 16 liða úrslit,
sem má teljast frábær árangur.
Markmiðið er að koma þeim svo út
í heim til að keppa á stórmótum á
borð við Copenhagen Games, sem
verður haldið um páskana á næsta
ári. ESEA er stórt mót, af svipaðri
stærðargráðu og Evrópumót félags-
liða í fótbolta, sem haldið er árlega og
keppa þar lið hvaðanæva úr heimin-
um.“
Fylgstu með rafíþróttadeild KR á
Facebook: KR.Esports