Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 39
Rafíþróttir 19. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Langbesta úrvalið af
tölvuleikjum á Íslandi
Gamestöðin opnaði dyr sínar fyrir tölvunördum lands-ins í Skeifunni árið 2008
og hefur alla tíð síðan verið ein
ástsælasta tölvuleikjaverslun Ís-
lands. Gamestöðin er nú staðsett
í Kringlunni og hefur flutt þar í enn
betra og stærra húsnæði. „Sala á
tölvuleikjum er sífellt að aukast enda
eykst áhuginn alltaf með hverju árinu.
Svo eru spennandi tímar framundan
í tölvuleikjageiranum þar sem rafí-
þróttirnar eru nú loks orðnar viður-
kenndur hluti af íþróttahreyfingunni,“
segir Hallbjörn Sigurður Guðjónsson
hjá Gamestöðinni.
Nýir og spennandi tímar
Það er margt spennandi framundan
í tölvuleikjaheiminum. Nýjar kynslóðir
leikjavéla eru væntanlegar á næsta
ári og fjöldinn allur af nýjum leikjum.
„Ég er persónulega mjög spenntur
fyrir nýja Hideo Kojima leiknum
sem er að koma út á næstunni fyrir
Playstation 4.
Leikurinn nefnist Death Stranding
og munu Mads Mikkelsen og Norman
Reedus úr Walking Dead leika stór
hlutverk í leiknum. Einnig kemur nýr
FIFA leikur út í september og svo er
nýi Star Wars leikurinn, Jedi: Fallen
Order, væntanlegur.“
Besta úrval á Íslandi
Gamestöðin er þekkt fyrir frábæra
þjónustu og ótrúlegt úrval af leikjum
fyrir bæði nýjar og eldri leikjatölvur.
„Ég hika ekki við að fullyrða að við
séum með besta úrvalið í tölvuleikj-
um á Íslandi. Við erum dugleg að
vera með nýjustu leikina fyrir nýjustu
tölvurnar en leggjum einnig metnað í
að bjóða upp á úrval af eldri leikjum.
Þá erum við t.d. með leiki alveg frá
nýjustu gerðinni af Nintendo Switch
niður í Playstation1. Við kaupum líka
eldri tölvuleiki fyrir inneignarnótu og
seljum notaða leiki á hagstæðu verði.
Þannig að eldri leikir, sem eru jafnvel
ófáanlegir á nýjustu vélarnar, eru oft
til á þær eldri.“
Gaman að finna hinn fullkomna
tölvuleik
Gamestöðin er ekki bara fyrir þá sem
spila tölvuleiki. „Það koma margir
hingað inn að leita að gjöfum fyrir
vini sína eða skyldmenni sem spila
tölvuleiki. Oft hefur þetta fólk aldrei
snert Playstation tölvu og þá er um
að gera að tala við starfsmann. Við
erum öll miklir tölvuleikjaáhuga-
menn og getum auðveldlega ráðlagt
í svona tilfellum. Þetta er pínu eins
og að koma inn í bókabúð og ætla
að kaupa bók handa vini sínum sem
er bókmenntafræðingur. Fólkið í
bókabúðinni er alltaf meira en til í að
hjálpa. Okkur finnst að sama skapi
mjög skemmtilegt að reyna að finna
hinn fullkomna tölvuleik fyrir vininn,“
segir Hallbjörn að lokum og býður alla
velkomna í Gamestöðina.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu búðarinnar gamestodin.is
Kringlunni 4–12, 103 Reykjavík
Sími: 588-4263
Fylgstu með á Facebook:
Gamestöðin