Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Qupperneq 40
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Dreymir þig um að keyra
ekta kappakstursbíl?
GT AKADEMÍAN:
Það eiga margir sér þann draum að finna adrenalínið streyma á ógnarhraða um æðarnar við
það að aka alvöru kappakstursbíl eft-
ir einhverri af frægustu kappaksturs-
brautum heims. Það er vel hægt að
dýfa tánni í þann draum með því
að fá sér flottan kappakstursleik í
tölvuna eða taka í stýrið á gæða Go
Kart-bíl. En það er hægt að komast
enn nær þessum draumi með því
að skella sér í GT Akademíuna, eða
GTA. „Við erum með átta ökuherma
í hæsta gæðaflokki þar sem menn
komast nálægt því að upplifa þenn-
an draum, sem er kannski ekki svo
óraunhæfur í dag. Einnig er gaman
að segja frá því að framleiðandi
Project Cars, sem er forritið sem
við notum, ætlar að uppfæra for-
ritið okkar yfir í Project Cars pro. Við
erum því mjög spennt að geta boðið
viðskiptavinum okkar nú upp á enn
flottari spilun,“ segir Hinrik hjá GTA.
Tilvalið í hópefli og fyrirtækja-
keppnir
„Hermarnir eru tengdir saman svo
að allir átta keppendurnir eru saman
á brautinni í einu. Nokkur fyrirtæki
halda mótaraðir hjá okkur til þess
að efla starfsandann og svo hafa
samkeppnisfyrirtæki haldið keppni sín
á milli. Þetta hefur gefist ótrúlega vel
og allir virkilega ánægðir. Það eru líka
margir sem komast að því að þeim
finnst furðu gaman að taka í stýrið
hjá okkur. Svona ekta laumuökuþór-
ar.“
Langar þig að prófa að keyra
alvöru kappakstursbíl?
„Í herminum er að finna 60 brautir
sem margar eru lazerskannaðar svo
að þær eru nákvæm eftirmynd af
alvöru brautum, upp á millimetra.
Brautirnar er hægt að aka í mis-
munandi lengdum og við mismun-
andi aðstæður. Þá er hægt að láta
rigna eða stytta upp, hafa snjókomu,
hálku og fleira. Möguleikarnir eru
nær endalausir. Lengsta brautin
í forritinu er 25 kílómetra löng og
nefnist Nürburgring en hana er að
finna í vestanverðu Þýskalandi. Þess
má geta að það er keppni í gangi hjá
GTA um stysta tímann í 20 kílómetra
útgáfu brautarinnar. Þá keyrirðu í 30
eða 60 mínútur og reynir að ná sem
bestum tíma. Eins og er þá er besti
tíminn 6:30.841, sem er aðeins einni
sekúndu hægari en heimsmethafinn
í hermikappakstri hefur ekið brautina
á. Þannig að það má greinilega enn
bæta metið.“
Ótrúlega raunverulegt
„Að keyra í ökuhermunum okkar er
það allra næsta sem maður kemst
því að keyra alvöru kappakstursbíl
á ekta kappakstursbraut. Þrír stórir
skjáir eru í kringum ökumanninn sem
situr í sérstökum stól með hreyfi-
búnaði. Stóllinn svarar því sem er að
gerast í bílnum á brautinni. Stóllinn
færist upp, niður og hallar þegar
ökumaðurinn stýrir bílnum. Ökumað-
urinn finnur bókstaflega fyrir yfirborði
vegar og þeim kröftum sem virka á
bílinn. Einnig fer sætið til hliðar ef bíll-
inn missir grip og þú finnur í stýrinu ef
bíllinn læsir dekkjunum. Þess má geta
að hjá GTA er Hliðskjálf VR-Lab að
þróa þjónustu með sýndarveruleika-
gleraugum sem hægt er að leigja og
nota á staðnum.“
„Það eina sem ekki er hægt að
líkja nákvæmlega eftir í herminum
er miðflóttaaflið, þ.e. þegar bíll-
inn hraðar á sér eða hægir og svo
auðvitað lífshættan, en í herminum
er engin hætta á að slasast ef þú
klessir á eða veltir bílnum. Hermi-
kappakstur á þessu kaliberi hefur
beina tengingu inn í mótorsport í
raunheimi. Menn hafa fengið ráðn-
ingu hjá kappakstursliðum út frá því
að hafa staðið sig vel á ökuherma-
mótum; t.d. Jann Mardenborough
sem keppti fyrir Nissan í erfiðasta
kappakstri heims, Le Mans. Einnig eru
mörg kappaksturslið sem nota svona
herma til að æfa ökumenn sína fyrir
kappakstur.
Við stofnuðun fyrirtækið á bak við
GTA fyrir um ári, og einni meðgöngu
seinna, þann 15. desember, opnuðum
við dyrnar. Þetta hefur undið mjög
mikið upp á sig enda margir sem
biðu spenntir eftir því að geta prófað
alvöru ökuhermi hér á Íslandi. Í sam-
starfi við Kvartmíluklúbbinn höfum við
nú þegar haldið fjórar af sex keppn-
um í mótaröð til Íslandsmeistaratitils.“
Sex keppnir til stiga eru haldnar og
átta stigahæstu keppendurnir keppa
svo til úrslita um Íslandsmeistara-
titil. Stefnt er að því að fimm efstu
ökuþórar Íslandsmóts taki þátt í
Norðurlandamóti í hermikappakstri
sem haldið verður í október á vegum
Alþjóða akstursíþróttasambandsins.
Námskeið í hermikappakstri
GT Akademían hefur staðið fyrir
akstursíþróttanámskeiðum fyrir ung-
menni og stefnt er að því að halda
fleiri námskeið seinnipart sumars.
„Markmið námskeiðanna er að kenna
ungmennum undirstöðuatriðin í
mótorsporti, kenna íþróttamanns-
lega hegðun og reglur mótorsports,
auka einbeitingu og rýmissvitund.
Krakkarnir verða svo í stakk búnir til
að taka þátt í keppnum á netinu og
þegar fram líða stundir, keppnum í
raunheimi.“
Nánari upplýsingar um GT
Akademíuna má nálgast á
vefsíðunni gta.is
Ármúli 23, 108 Reykjavík
Sími: 537-2400
Opið alla daga frá 12.00 til 20.00