Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Qupperneq 44
44 PRESSAN 19. júlí 2019
Þ
egar lögreglumennirnir
brutu upp dyrnar að her-
berginu á háloftinu í glæsi-
lega einbýlishúsinu mætti
þeim svo hræðilegur fnykur að
þeir kúguðust. Herbergið var al-
myrkvað en annar lögreglumað-
urinn þreifaði sig að glugganum,
reif þykkar gardínurnar niður og
opnaði gluggann til að lofta út.
Um leið og birtan streymdi inn
mætti þeim sjón sem fékk innyflin
til að gera uppreisn. Allt var í rúst
í herberginu, matur flaut um gólf-
ið, rottur hlupu um á milli rotn-
andi matarleifa og þvags og saurs.
Ofan á þessu voru hungraðir
maðkar og bjöllur. En þetta var
ekki það hræðilegasta sem lög-
reglumennirnir sáu. Í viðbjóðslega
skítugu rúmi lá allsnakin kona og
var hún bundin föst. Hún lá í eigin
saur í bókstaflegri merkingu.
Hún pírði augun til að vernda
þau fyrir dagsbirtunni sem hún
hafði ekki séð í 25 ár. Hún reyndi
um leið að hylja nakinn og magran
líkamann með skítugu teppi. Kon-
an, Blanche Monnier, var 52 ára
þegar lögreglumennirnir frelsuðu
hana úr þessari prísund þann 25.
maí 1901. Þá hafði hún verið í her-
berginu í 25 ár, algjörlega einangr-
uð frá umheiminum og aðeins
fengið að hafa samband við móð-
ur sína og yngri bróður.
Ástæðan fyrir innilokuninni
var að hún hafði sem ung, fögur og
dekruð yfirstéttarstúlka orðið yfir
sig ástfangin af aðeins eldri manni
árið 1876 en hann tilheyrði ekki
yfirstéttinni. Þetta fannst stjórn-
samri móður hennar, Louise
Monnier, ekki viðeigandi og því
batt hún dóttur sína fasta við rúm-
ið uppi á háalofti, dró gardínurnar
fyrir og læsti dyrunum og sagði við
dóttur sína að þar skyldi hún dúsa
þar til hún færi að vilja hennar og
giftist manni úr sömu þjóðfélags-
stétt og hún tilheyrði. En Blanche
Monnier gaf sig aldrei.
Ekki er vitað hvaða hlutverk
faðir hennar, Emile Monnier, lék í
þessu öllu en hann var háttsettur
og virtur stjórnandi við lista-
akademíuna í Poitiers í Frakk-
landi þar sem fjölskyldan bjó.
Hann lést 1879 en eiginkona hans
og sonur þeirra, Marcel Monnier,
héldu Blanche innilokaðri og mis-
þyrmdu allt þar til lögreglan frels-
aði hana.
Nágrannar heyrðu í henni
Á fyrstu árunum í herberginu átti
Blanche það til að öskra eins hátt
og hún gat í örvæntingu sinni og
heyrðu nágrannarnir í þessu fína
hverfi oft öskrin. Móðir hennar
sagði þeim að Blanche væri því
miður orðin geðveik, en á þess-
um tíma var ekki óalgengt að geð-
veikir væru læstir inni og haldið
fjarri samfélaginu. Í öll þau ár sem
hún var bundin við rúmið fékk
hún aðeins matarleifar af borði
fjölskyldunnar og oft liðu margir
dagar á milli máltíða. Hún hafði
ekki aðgang að salerni og var aldrei
þrifin. Þegar Blanche var vafin inn
í teppi og ekið á sjúkrahús þennan
maídag 1901 vó hún aðeins 23 kíló
og var ófær um að tjá sig.
Nafnlaus ábending
Það var nafnlaust bréf, sem var
sent til ríkissaksóknarans, sem
varð til þess að lögreglan fór að
athuga með Blanche. Í bréfinu
kom fram að móðir Blanche
hefði árum saman haldið henni
fanginni. Sú kenning hefur notið
töluverðrar hylli að það hafi verið
bróðir Blanche, Marcel, sem skrif-
aði bréfið því hann hafi verið
búinn að fá sig fullsaddan af með-
ferð móður sinnar á Blanche.
Þegar ríkissaksóknarinn af-
henti lögreglunni bréfið átti hún
erfitt með að trúa því þar sem
Monnier-fjölskyldan var í efstu
lögum samfélagsins og naut mik-
illar virðingar. En lögreglan ákvað
nú samt sem áður að kanna málið
og það varð Blanche til lífs.
Þótt ótrúlegt megi virðast náði
Blanche sér að mestu líkamlega
en andlega var hún svo illa far-
in að hún eyddi því sem hún átti
eftir ólifað á geðsjúkrahúsi í París
og þar lést hún í október 1913, 64
ára að aldri. Móðir hennar lést af
völdum hjartaáfalls tveimur vik-
um eftir að lögreglan frelsaði
Blanche úr prísundinni. Marcel,
sem var þekktur lögmaður og fjöl-
skyldufaðir, var dæmdur í fimmt-
án mánaða fangelsi fyrir sinn þátt
í ofbeldinu. Hann áfrýjaði dómn-
um og var síðan sýknaður.
Ekki eina málið
En þetta er ekki eina málið
þessarar tegundar sem vitað er
um. Á síðustu árum hafa mörg
álíka mál komið upp þar sem fólk
hefur verið læst inni árum saman,
vanrækt og beitt margvíslegu of-
beldi. Eitt nýjasta málið þessarar
tegundar er frá Perris í Kaliforníu.
Þar héldu hjónin David og Louise
Turpin þrettán börnum sínum
innilokuðum frá fæðingu. Elsta
barnið var 29 ára þegar lögreglan
batt enda á prísund systkinanna.
Þetta er lengsta innilokunin af
þessu tagi sem upp hefur komist
um. Börnunum var haldið inni-
lokuðum við hrikalegar aðstæður
á heimilinu. Þau voru beitt miklu
ofbeldi og misnotuð kynferðis-
lega. Þau fengu í mesta lagi eina
máltíð á dag og fengu aðeins að
fara í bað einu sinni á ári. Hjónin
voru í apríl dæmd í lífstíðarfang-
elsi. Upp um þau komst í janúar á
síðasta ári þegar ein dóttir þeirra
náði að flýja og setja sig í sam-
band við lögregluna.
Í Evrópu er mál Josefs Fritzl í
Austurríki eitt það þekktasta og
hræðilegasta. Hann lokaði dóttur
sína, Elisabeth, inni í tæp 25 ár
og beitti hana kynferðislegu of-
beldi í allan þann tíma. Ofbeldið
var kerfisbundið og margþætt og
ekki hægt að lýsa þeim hryllingi
sem Elisabeth gekk í gegnum á
þessum tæpa aldarfjórðungi. Af-
brigðileiki Fritzl kom strax í ljós
1967 þegar hann var sakfelld-
ur fyrir að hafa nauðgað hjúkr-
unarfræðingi. Hann var einnig
grunaður um aðra álíka nauðg-
un en ekki tókst að færa sönnur á
hana. Hann beitti Elisabeth kyn-
ferðislegu ofbeldi frá því að hún
var ellefu ára. Auk þess var hann
margoft kærður fyrir að hafa ber-
að kynfæri sín á almannafæri.
Árið 1978 fékk hann þá hugmynd
að gera breytingar á kjallaranum
undir húsi fjölskyldunnar og fékk
heimild til þess hjá bæjaryfirvöld-
um. Þar innréttaði hann leyni-
legt öryggisfangelsi með leynileg-
um inngangi. Nokkrum dögum
eftir að Elisabeth varð átján ára
bað hann hana um að aðstoða sig
niðri í kjallaranum. Þegar þang-
að var komið deyfði hann hana,
hlekkjaði með handjárnum við
rúmið og yfirgaf herbergið. Þarna
hófst tæplega 25 ára martröð
hennar.
Fritzl og eiginkona hans til-
kynntu um hvarf Elisabeth og leit
hófst. Henni var þó fljótlega hætt
þegar Fritzl sýndi lögreglunni
bréf sem Elisabeth hafði skrif-
að. Í því fullvissaði hún lesendur
um að hún hefði það gott og bað
lögregluna um að hætta leitinni.
Fritzl sagðist telja að hún hefði
gengið til liðs við sértrúarsöfn-
uð og tók lögreglan þá skýringu
gilda. Eiginkona hans hafði ekki
hugmynd um að Elisabeth væri í
kjallaranum.
Hélt dóttur sinni fanginni í litlu herbergi í 25 ár
n Blanche Monnier sá ekki dagsljósið í 25 ár n Josef Fritzl misnotaði dóttur sína kynferðislega n Hjón læstu börn sín inni frá fæðingu
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is „Þegar Blanche var
vafin inn í teppi og ekið
á sjúkrahús þennan maídag
1901 vó hún aðeins 23 kíló og
var ófær um að tjá sig.
Í hræðilegu ásigkomulagi Þessi mynd var
tekin af Blanche Monnier stuttu eftir að hún fannst
bundin við rúmið. Mynd: Wikipedia Commons
Vakti óhug Mál Josefs Fritzl vakti
mikinn óhug enda hræðilegt frá upp-
hafi til enda. Mynd: Getty Images
Hrikaleg aðkoma Lög-
reglumaðurinn Franz Polzer
sýnir mynd af rýminu þar sem
Elisabeth, dóttir Josefs Fritzl, var
haldið. Mynd: Getty Images