Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 45
PRESSAN 4519. júlí 2019
Þar til Elisabeth losnaði úr prís-
undinni nauðgaði Fritzl henni,
að eigin sögn, ekki sjaldnar en
þrjú þúsund sinnum. Elisabeth
eignaðist sjö börn og missti eitt
fóstur. Eitt barnanna lést strax eft-
ir fæðingu eða var myrt af Fritzl,
það hefur aldrei fengist niður-
staða í það. Hann brenndi
líkið í kamínu.
Annað mál frá Austurríki
Í byrjun mars 1998 var Natascha
Kampusch, 10 ára, á leið í skóla
í Vínarborg í Austurríki þegar
henni var rænt á götu úti af Wolf-
gang Priklopil. Hann fór með hana
heim til sín í Strasshof, sem er að-
eins utan við Vínarborg, og lok-
aði hana inni í herbergi sem hann
hafði innréttað undir bílskúrnum.
Það liðu átta ár þar til Natascha
losnaði úr prísundinni. Á þeim
tíma beitti Wolfgang hana
kynferðis legu ofbeldi og beitti oft
á tíðum miklu og grófu ofbeldi.
Þegar leið á fangavistina fór hann
að taka hana upp í húsið þar sem
hann kenndi henni og hún var
látin þrífa og elda mat. Hún reyndi
nokkrum sinnum að strjúka og
vekja athygli nágranna en það
leiddi alltaf af sér þungar, líkam-
legar refsingar.
Þann 13. ágúst 2006 sagði Wolf-
gang henni að þrífa sendibílinn
hans. Hún náði þá að stinga af og
leita hjálpar. Þegar hún hafði bent
á Wolfgang sem mannræningjann
hófst mikil leit lögreglunnar að
honum en áður en tókst að hand-
taka hann, kastaði hann sér fyrir
járnbrautarlest og lét lífið.
Natascha hefur margoft kom-
ið fram í fjölmiðlum eftir að hún
losnaði úr prísundinni og sagt
sögu sína. Hún var með eigin
spjallþátt um hríð og 2010 gaf hún
út ævisögu sína og 2016 gaf hún
út bók sem nefnist „Frelsi í 10 ár“.
En eftir það hefur lítið farið fyrir
henni. Dánarbússtjóri Wolfgangs
gaf Natöschu hús hans og hún á
það enn og er þar stundum. n
Hélt dóttur sinni fanginni í litlu herbergi í 25 ár
n Blanche Monnier sá ekki dagsljósið í 25 ár n Josef Fritzl misnotaði dóttur sína kynferðislega n Hjón læstu börn sín inni frá fæðingu
David Turpin. Mynd: Getty Images
Rænt 10 ára Na-
töschu Kampusch
var rænt þegar hún
var á leið í skólann.
Mynd: Getty Images
Föst í prísund Hér má sjá
rýmið sem Natasha þurfti að
hírast í. Mynd: Getty Images
Louise Turpin. Mynd: Getty Images