Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Síða 46
19. júlí 201946
Þrátt fyrir langar og ítarlegar rannsóknir lögreglunnar, þá eru þessi óhugnanlegu
morðmál, sum sem ná allt aftur til áttunda áratugarins, enn að valda lög-
reglunni heilabrotum. Aðstandendur eru enn í sárum og vita ekki hver er ábyrgur
fyrir morðinu á ástvinum þeirra og mögulega ganga morðingjarnir enn frjálsir
sinna ferða.
MailOnline á vefsíðunni DailyMail fór yfir 15 óleyst morðmál í Bretlandi með það
að markmiði að reyna að finna og koma lögum yfir morðingjana. Hér er annar
hluti af þremur.
Valerie Graves fannst myrt í svefnherbergi sínu á heimili vinahjóna hennar.
Alistair Wilson, 30
ára gamall banka-
starfsmaður, varði
sunnudeginum þann
29. nóvember árið
2004 í göngu með-
fram skosku strand-
lengjunni ásamt
eiginkonu sinni
Veronicu. Eftir að þau
komu aftur á heimili
sitt í Nairn, sjávar-
bæ í Norðaustur-
Skotlandi, borðaði
hann kvöldmat og
svæfði tvo unga syni
sína.
Nokkrum klukku-
stundum seinna
bankaði ókunnugur
maður upp á á heim-
ilinu og bað um að fá
að ræða við Wilson. Skaut hann
Wilson tveimur skotum í höf-
uðið og einu í líkamann.
Lögreglunni hefur ekkert
orðið ágengt í að leysa málið, en
í desember árið 2016 gaf hún út
frekari upplýsingar um byssuna
sem notuð var sem morðvopn.
Byssa sambærileg morðvopn-
inu, Haenel Schmeisser, fannst
við garðsölu í húsi í bænum.
Um sama leyti hringdi hlust-
andi inn á útvarpsstöð á svæð-
inu og sagðist búa yfir upplýs-
ingum um morðið. Byssur af
þessari tegund eru sjaldséðar í
Englandi og aðeins þrettán slík-
ar hafa sést þar síðan árið 2008.
Lögreglan telur að hermenn hafi
komið með þær til Englands eft-
ir seinni heimsstyrjöldina.
Þann 30. desember árið 2013 fannst Valerie Graves,
55 ára gömul móðir, látin í svefnherbergi sínu í Bos-
ham í Vestur-Sussex. Graves var að passa heimili
fyrir vinahjón sín og lést hún nokkrum dögum eftir
að hafa fagnað afmæli sínu þar, ásamt Eileen, móð-
ur sinni, Jan, systur sinni og manni hennar, Nigel
Acres. Vinahjón hennar, sem áttu húsið, voru í fríi
á Kostaríku.
Engin ummerki fundust um að átök hefðu átt sér
stað, en krufning leiddi i ljós að Graves hlaut fjölda
höfuðáverka eftir að hafa verið lamin nokkrum sinn-
um með hamri. Vopnið fannst 600 metrum frá hús-
inu og fannst DNA Graves á því, og lífsýni sem gaf
til kynna að gerandinn væri karlmaður. Samsvörun
fannst ekki í gögnum lögreglunnar og morðinginn
hefur ekki enn fundist þrátt fyrir að 10 þúsund pund
hafi verið boðin sem verðlaun fyrir upplýsingar.
Jason Taylor rannsóknarlögreglumaður sagði við
MailOnline: „Lögreglumenn og starfsfólk í rann-
sóknarteyminu er staðráðið í að finna morðingja
Graves og sjá til þess að réttlætinu verði fullnægt
fyrir hana og fjölskyldu hennar og við munum reyna
áfram að gera að gera allt sem í okkar valdi er til að
sjá til þess að svo verði. 10 þúsund pund eru enn í
boði sem verðlaun fyrir upplýsingar sem leiða til
handtöku og dóms yfir morðingja hennar og ég bið
alla sem búa yfir upplýsingum um málið að hafa
samband við lögregluna.“
Þáttaröðin When They See Us sem frumsýnd var á Netflix þann 12. júní 2019 er byggð á atburðum sem gerðust árið 1989, Skokkarinn í Central Park (e. Central Park jogger case).
Þættirnir fylgja fimm sakborningum málsins og fjölskyldum
þeirra, sem búsettir eru í íbúðablokk í Harlem-hverfinu í New York.
Þáttaröðin hefur fengið eindóma lof og athygli og er líklegt að hún
verði tilefnd til og hljóti verðlaun á komandi verðlaunahátíðum.
Einvalalið leikara er í þáttunum, bæði þekktir og óþekktir, og standa
yngri leikararnir sem flestir voru óþekktir fram að þessu sig með
stakri prýði.
Fimm drengir á aldrinum 14-16 ára voru handteknir og yfirheyrðir af
lögreglu vegna hrottalegrar nauðgunar á konu í Central Park. Nafni
hennar var haldið frá fjölmiðlum í fyrstu til að gefa henni friðhelgi,
en málið er eitt af umtöluðustu sakamálum níunda áratugarins,
bæði meðal almennings og í fjölmiðlum. Drengjahópnum var skipt
í tvennt fyrir dómsmeðferð, en sá elsti var orðinn 16 ára og því
SAKAMÁL
„ÞÚ MISSIR ALLA VON EFTIR SVONA LANGAN TÍMA“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
VALERIE GRAVES
ALISTAIR WILSON
Valerie Graves
fannst myrt í
svefnherbergi
sínu á heimili
vinahjóna hennar.
Hamarinn
sem var
notaður sem
morðvopn
fannst 600
metrum frá
húsinu.
Wilson var skotinn
tvisvar í höfuðið og
einu sinni í líkamann.
Byssa sambæri-
leg morðvopn-
inu, Haenel
Schmeisser.
Réttarmeinafræðingar að
störfum á heimili Wilson.