Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Síða 51
FÓKUS 5119. júlí 2019
Af hverju vekja líkamshár kvenna svona mikla andúð?
n Hár kvenna eru rammpólitísk n „Það þarf að klippa í sundur þá hugmynd að líkaminn sé hreinni ef líkamshár eru fjarlægð“
V
igdís Howser, rappari og femínisti
með meiru, skilur ekki þennan ofsa
í kringum líkamshár kvenna. Vigdís
rakar sig stundum, stundum ekki.
Það fer eftir veðri.
Hún hefur búið í Þýskalandi síðustu ár og
segir þar vera einstaklega mikla andúð gegn
líkamshárum. Þó hefur hún fengið sinn
skerf af neikvæðum ummælum á Íslandi.
Misjöfn viðbrögð
Berglaug Garðarsdóttir, vinkona Vigdísar,
tók af henni myndir þar sem handarkrika-
hár Vigdísar fengu að njóta sín. Vigdís deildi
þeim á samfélagsmiðla og fékk mikil við-
brögð.
„Þegar ég deildi myndunum fyrst á sam-
félagsmiðlum þá fékk ég fullt af skilaboð-
um, aðallega jákvæð. Ég finn mestmegnis
fyrir andúð frá fólki í persónu. Í Þýskalandi
er mjög „anti-hár“ hugsunarháttur. Það er
meira að segja ætlast til að karlmenn raki
sig. Allir eiga að raka sig,“ segir Vigdís.
„Ég hef fundið mjög mikið fyrir því
hérna, eins og þegar ég lyfti upp höndun-
um, að það sé starað á mig. Svo er fólk enda-
laust að blætisvæða þau: „Ohh, ég hef aldrei
séð konu með hár þarna,“ og „þetta kveik-
ir svo í mér,“ og alls konar svona perradót.
Annaðhvort er fólk hissa yfir hárunum eða
reynir að blætisvæða þau, ég get ekki fengið
að bara vera,“ segir Vigdís.
Hún segir að það fari mikið eftir veðri
hvort hún rakar sig eða ekki. Ef það er mjög
heitt þá rakar hún sig, annars leyfir hún hár-
vextinum að ráða ferðinni.
Leiðinlegt atvik
Vigdís segist líka fá neikvæð viðbrögð á Ís-
landi við líkamshárum sínum.
„Á Íslandi hef ég ótrúlega oft fengið ein-
hver komment. Ég var einhvern tímann
í útskriftarveislu og var að teygja mig yfir
matarborðið. Ég var með smá hár undir
höndunum og það öskraði kona yfir sig
að ég færi nú ekki að vera með hárin mín í
matnum hjá fólki. Sem er ótrúlega fyndið
því fólk er með hár á hausnum og alls stað-
ar á sér. En það er eitthvað við þessi hár sem
kallaði fram þessi ýktu viðbrögð hennar,“
segir Vigdís.
Aldrei verið jafn vinsæl á Tinder
Vigdís notaði tvær af myndunum, sem Berg-
laug tók, á stefnumótaforritinu Tinder.
„Ég hef aldrei fengið jafn mikið af
„mötchum“ og skilaboðum. Það var ver-
ið að lofsyngja hárin. Bæði á þeim skala
að mér fannst það óþægilegt því þetta var
frekar öfgakennt, eins og ég væri eina kon-
an í heiminum með hár. Svo einhvern veg-
inn hefur líka verið mjög fínt að fá þau skila-
boð hvað það sé hressandi að sjá konu með
hár, því oft gleymist að við séum með hár,“
segir Vigdís.
Hún segir að það skipti máli að konur séu
öruggar með hárin sín, því ef ekki geta nei-
kvæð viðbrögð og ummæli haft mikil áhrif á
sjálfstraustið.
„Maður þarf að vera öruggur í sínum lík-
ama og með allt sem viðkemur honum.“
Af hverju hötum við líkamshár kvenna?
Vigdís telur að mikið af andúðinni koma frá
klámi. „Áður fyrr voru allar konur með lík-
amshár í klámi. Síðan kom einhver tísku-
bylgja og nú eru þær allar vaxaðar frá toppi
til táar,“ segir Vigdís.
„Ég held samt að það séu algjörir pappa-
kassar sem hafa andúð á líkamshárum.“
Brá í rúminu
Vigdís rifjar upp nýlegt atvik þegar hún svaf
hjá karlmanni sem er að nálgast fertugt.
„Honum brá svolítið þegar hann sá mig
nakta, því ég er með hár undir höndunum
og hár að neðan. Ég spurði hann hvort hann
hefði aldrei séð konu með hár áður þar sem
hann væri að verða fertugur. Hann sagði þá:
„Jú, ég var bara að fatta hvað það væri ógeðs-
lega langt síðan.“ Hann fór í smá panikk, því
í Þýskalandi mega konur ekki vera með hár.
Það er ekki í lagi hérna,“ segir Vigdís.
Vigdís segir að nektinni sé fagnað í
Þýskalandi og til að mynda sé #FreeThe-
Nipple ekkert mál. En þegar kemur að hár-
um hins vegar, þá eru þau tabú.
„Það eru nektarstrendur, nektarklúbb-
ar og alls konar, og ég fer stundum á þannig
staði. Það er ótrúlega skrýtið að sjá allt þetta
fólk vera svona frjálst en svo panikka þegar
það sér mig loðna,“ segir Vigdís og hlær. n
Stór markaður
Það er mikill gróði fólginn í andúðinni gegn líkamshárum. Reiknað er með að al-
þjóðlegi markaðurinn fyrir tæki sem fjarlægja líkamshár muni verða rúmlega 429
milljarða króna virði fyrir 2025, samkvæmt nýrri skýrslu frá Grand View Research.
Meðal tækja eru rakvélar, lasertæki og vaxtæki.
Á spjöld sögunnar
Einn eftirminnilegasti „líkams-
háraskandallinn“ var árið 1999
þegar leikkonan Julia Roberts
mætti á frumsýningu Notting Hill.
Julia veifaði aðdáendum og það
sást í handarkrikahár hennar. Á
svipstundu varð þetta atvik skráð
í sögu dægurmálamenningar fyrir
valdeflandi og femínísk skilaboð.
Árum síðar ræddi Julia um at-
vikið og segir að þetta hafi ekki
verið gert viljandi.
„Ég hafði ekki hugsað alveg
út í ermalengd kjólsins og um
veifið, og hvernig þetta tvennt
myndi passa saman og uppljóstra
persónulegum hlutum um mig,“
sagði Julia Roberts í viðtali í Busy
Tonight. „Þetta var ekki beint yfir-
lýsing, frekar en hluti af þeirri
yfir lýsingu sem ég set fram sem
manneskja á þessari plánetu, fyrir
mig sjálfa.“
Það er hægt að fjarlægja
líkamshár með alls konar
tæki og tólum.
„Áður fyrr voru
allar konur með
líkamshár í klámi.
Síðan kom einhver
tískubylgja og nú eru
þær allar vaxaðar frá
toppi til táar.
MYND: BERGLAUG GARÐARSDÓTTIRMYND: BERGLAUG GARÐARSDÓTTIR
Vigdís Howser
Harðardóttir.