Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 52
52 FÓKUS 19. júlí 2019 Reykjavik Raincoats LAUGAVEGUR 62, 101 RVK www.reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com Ú T S A L A Ú T S A L A Ú T S A L A 10 - 40 % AFSLÁTTUR Í VERSLUN OKKAR STJÖRNUSÍLIN SEM SYNDA Í SEÐLUM n Ótrúlegar vinsældir Stranger Things n Leikararnir mala gull Þ riðja serían af Stranger Things datt nýverið inn á efnisveituna Netflix. Í kjöl­ far velgengni fyrstu tveggja seríanna kom lítið á óvart að þriðja serían hafi slegið áhorfsmet á Net­ flix, en yfir fjörutíu milljónir heimila streymdu henni á fjórum dögum. Margir óþekktir leikarar hafa fundið frægðina vegna vinsælda þáttanna en launastrúktúr leikaraliðsins skiptist í þrjú þrep – A, B og C. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is WINONA RYDER (47 ÁRA) OG DAVID HARBOUR (44 ÁRA) David leikur Jim Hopper og Winona bregð­ ur sér í hlutverk Joyce Byers í Stranger Things. Bæði hafa þau fjölbreytta reynslu úr leiklistarheiminum og fá því hæstu launin. David og Winona eru í launaþrepi A og fá í kringum 300 til 350 þúsund dollara fyrir hvern þátt, eða 37 til 44 milljónir króna. Heildarlaun fyrir seríu 3: 352 milljónir kr. hvort MILLIE BOBBY BROWN (15 ÁRA) Staða leikkonunnar, sem túlkar hina dularfullu Eleven, er sérstök þar sem hún er talin af mörgum vera aðalsögu­ hetjan og sá leikari sem hefur hlotið mestu frægðina í kjölfar vinsælda Stranger Things. Hún tilheyrir því launa­ þrepi A, þótt hún hafi ekki mikla leikreynslu. Millie fær aðeins minna borgað en David og Winona og er áætlað að hún fái greitt um 250 til 300 þúsund dollara fyrir hvern þátt, eða 31 til 37 milljónir króna. Þá semur Millie einnig um laun sín sér, ekki í samfloti við aðra leikara þáttarins. Heildarlaun fyrir seríu 3: 296 milljón- ir kr. GATEN MATARAZZO (16 ÁRA), CALEB MCLAUGHLIN (17 ÁRA), NOAH SCHNAPP (14 ÁRA) OG FINN WOLFHARD (16 ÁRA) Vinirnir fjórir, Dustin, Lucas, Will og Mike, fengu aðeins þrjátíu þúsund dollara fyrir hvern þátt í fyrstu seríu, eða tæplega fjórar milljónir króna. Þeir fengu hins vegar ríflega launahækkun þegar samið var um þriðju seríu og sitja nú í launaþrepi B og fá hver um sig um þrjátíu milljónir fyrir hvern þátt. Heildarlaun fyrir seríu 3: 240 milljónir kr. hver NATALIA DYER (22 ÁRA) OG CHARLIE HEATON (25 ÁRA) Natalia leikur Nancy Wheeler og Charlie túlkar Jonathan Byers. Þau eru par í alvörunni og eru bæði í launaþrepi C með 100 til 150 þúsund dollara fyrir hvern þátt, eða tólf til nítján milljónir króna. Heildarlaun fyrir seríu 3: 152 milljónir kr. hvort JOE KEERY (27 ÁRA) Karakterinn sem Joe leikur, Steve Harr­ ington, leikur veiga­ mikið hlutverk í seríu þrjú og því má leiða að því líkur að laun hans hafi hækkað eitthvað síðan sería tvö var tekin upp. Þá var hann í launa­ þrepi C og fékk tólf til nítján milljónir króna fyrir hvern þátt. Heildarlaun fyr- ir seríu 3: 152 milljónir kr. SADIE SINK (17 ÁRA) OG DACRE MONTGOMERY (24 ÁRA) Leikararnir tveir voru kynntir til sögunnar í ser­ íu tvö og fá nítján milljónir króna fyrir hvern þátt í seríu þrjú. Heildarlaun fyrir seríu 3: 152 millj- ónir kr. hvort Þriðja þáttaröð í hnotskurn Frumsýning: 4. júlí 2019 Fjöldi þátta: 8 Framleiðsla: Tökur á þriðju seríunni hófust þann 24. maí árið 2018. Meðal helstu tökustaða voru Jackson í Georgíu­ fylki, South Bend­laugin í Atlanta, Starcourt­verslunarmiðstöðin nálægt Duluth í Georgíufylki og á Malibu í Kali­ forníu. Tökum lauk þann 12. nóvember sama ár. 10 HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM STRANGER THINGS 1 Fjórtán sjónvarpsstöðvar höfnuðu Stranger Things áður en streymiveitan Netflix sýndi seríunni áhuga og sló til. Líklegt þykir að hinar stöðvarnar hafi stórséð eftir þeirri ákvörðun. 2 Winona Ryder vissi ekkert hvað „streymiveita“ væri – hún er af gamla skólanum og hafði aldrei heyrt talað um Netflix áður fyrr. 3 Talið er að persónan Eleven sé lauslega byggð á E.T. Upphaflega átti Eleven að deyja undir lok fyrstu seríu. Hið sama átti að gerast með persónuna Steve. 4 Eleven á aðeins 42 setningar í allri fyrstu seríunni. 5 Strákunum fjórum sem leika vinina fjóra var oft sagt að hemja vindganginn á setti. Á einum tímapunkti, í miðjum tökum á rútusenu, var umhverfið sagt vera óbærilegt vegna prumpufýlu. 6 Eftir að fyrsta serían sló í gegn fengu framleiðendur ráð frá teym­inu á bak við Game of Thrones um hvernig væri best að koma í veg fyrir að upplýsingar um komandi söguþræði myndu leka út. 7 Leikarinn David Harbour var sannfærður um að fyrsta serían myndi aldrei ná neinum vinsældum í ljósi þess að honum þótti hún lítið auglýst fyrir útgáfu. 8 Upprunalegt heiti þáttanna var Montauk og áttu þeir að gerast í Long Island í New York. Síðar kom í ljós kom að það var of erfitt að taka þar upp að vetri til. Einnig er hermt að ýmsar háleynilegar tilraunir hafi átt sér þar stað. Það var á níunda áratugnum og segir sagan að fjölmörgum börnum hafi verið rænt í þágu vísindatilrauna. Þaðan spratt upp hugmyndin að þáttunum. 9 Gaten Matarazzo, sem leikur Dusty, var fyrsti leikarinn sem var ráðinn. 10 Steven Spielberg er sagður vera gífurlegur aðdáandi þáttanna. Metacritic: 72/100 EINKUNNIR: Rotten Tomatoes: 89/100 IMDb: 8.9/10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.