Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 52
52 FÓKUS 19. júlí 2019
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Ú T S A L A
Ú T S A L A
Ú T S A L A
10 - 40 %
AFSLÁTTUR
Í VERSLUN OKKAR
STJÖRNUSÍLIN SEM SYNDA Í SEÐLUM
n Ótrúlegar vinsældir Stranger Things n Leikararnir mala gull
Þ
riðja serían af Stranger
Things datt nýverið inn á
efnisveituna Netflix. Í kjöl
far velgengni fyrstu tveggja
seríanna kom lítið á óvart að þriðja
serían hafi slegið áhorfsmet á Net
flix, en yfir fjörutíu milljónir heimila
streymdu henni á fjórum dögum.
Margir óþekktir leikarar hafa fundið
frægðina vegna vinsælda þáttanna
en launastrúktúr leikaraliðsins
skiptist í þrjú þrep – A, B og C.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
WINONA RYDER (47 ÁRA) OG
DAVID HARBOUR (44 ÁRA)
David leikur Jim Hopper og Winona bregð
ur sér í hlutverk Joyce Byers í Stranger
Things. Bæði hafa þau fjölbreytta
reynslu úr leiklistarheiminum og
fá því hæstu launin. David og
Winona eru í launaþrepi A og
fá í kringum 300 til 350 þúsund
dollara fyrir hvern þátt, eða 37 til
44 milljónir króna.
Heildarlaun fyrir seríu 3: 352
milljónir kr. hvort
MILLIE BOBBY BROWN (15 ÁRA)
Staða leikkonunnar, sem túlkar hina
dularfullu Eleven, er sérstök þar sem
hún er talin af mörgum vera aðalsögu
hetjan og sá leikari sem hefur hlotið
mestu frægðina í kjölfar vinsælda
Stranger Things. Hún tilheyrir því launa
þrepi A, þótt hún hafi ekki mikla
leikreynslu. Millie fær
aðeins minna borgað
en David og Winona
og er áætlað að
hún fái greitt um
250 til 300 þúsund
dollara fyrir hvern
þátt, eða 31 til 37
milljónir króna.
Þá semur Millie
einnig um laun
sín sér, ekki í
samfloti við
aðra leikara
þáttarins.
Heildarlaun
fyrir seríu 3:
296 milljón-
ir kr.
GATEN MATARAZZO (16 ÁRA), CALEB MCLAUGHLIN (17 ÁRA),
NOAH SCHNAPP (14 ÁRA) OG FINN WOLFHARD (16 ÁRA)
Vinirnir fjórir, Dustin, Lucas, Will og Mike, fengu aðeins
þrjátíu þúsund dollara fyrir hvern þátt í fyrstu seríu, eða
tæplega fjórar milljónir króna. Þeir fengu hins vegar
ríflega launahækkun þegar samið var um þriðju seríu
og sitja nú í launaþrepi B og fá hver um sig um þrjátíu
milljónir fyrir hvern þátt.
Heildarlaun fyrir seríu 3: 240 milljónir kr. hver
NATALIA DYER (22 ÁRA) OG
CHARLIE HEATON (25 ÁRA)
Natalia leikur Nancy Wheeler
og Charlie túlkar Jonathan
Byers. Þau eru par í alvörunni
og eru bæði í launaþrepi C með
100 til 150 þúsund dollara fyrir
hvern þátt, eða tólf til nítján
milljónir króna.
Heildarlaun fyrir seríu 3: 152
milljónir kr. hvort
JOE KEERY (27 ÁRA)
Karakterinn sem Joe
leikur, Steve Harr
ington, leikur veiga
mikið hlutverk í seríu
þrjú og því má leiða að
því líkur að laun hans
hafi hækkað eitthvað
síðan sería tvö var tekin
upp. Þá var hann í launa
þrepi C og fékk tólf
til nítján milljónir
króna fyrir hvern
þátt.
Heildarlaun fyr-
ir seríu 3: 152
milljónir kr.
SADIE SINK (17 ÁRA) OG
DACRE MONTGOMERY
(24 ÁRA)
Leikararnir tveir
voru kynntir til
sögunnar í ser
íu tvö og fá nítján
milljónir króna
fyrir hvern þátt í
seríu þrjú.
Heildarlaun fyrir
seríu 3: 152 millj-
ónir kr. hvort
Þriðja þáttaröð í hnotskurn
Frumsýning: 4. júlí 2019
Fjöldi þátta: 8
Framleiðsla: Tökur á þriðju seríunni
hófust þann 24. maí árið 2018. Meðal
helstu tökustaða voru Jackson í Georgíu
fylki, South Bendlaugin í Atlanta,
Starcourtverslunarmiðstöðin nálægt
Duluth í Georgíufylki og á Malibu í Kali
forníu. Tökum lauk þann 12. nóvember
sama ár.
10 HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM STRANGER THINGS
1 Fjórtán sjónvarpsstöðvar höfnuðu Stranger Things áður en streymiveitan Netflix sýndi seríunni áhuga og sló til. Líklegt þykir
að hinar stöðvarnar hafi stórséð eftir þeirri ákvörðun.
2 Winona Ryder vissi ekkert hvað „streymiveita“ væri – hún er af gamla skólanum og hafði aldrei heyrt talað um Netflix áður fyrr.
3 Talið er að persónan Eleven sé lauslega byggð á E.T. Upphaflega átti Eleven að deyja undir lok fyrstu seríu. Hið sama átti að gerast
með persónuna Steve.
4 Eleven á aðeins 42 setningar í allri fyrstu seríunni.
5 Strákunum fjórum sem leika vinina fjóra var oft sagt að hemja vindganginn á setti. Á einum tímapunkti, í miðjum tökum á
rútusenu, var umhverfið sagt vera óbærilegt vegna prumpufýlu.
6 Eftir að fyrsta serían sló í gegn fengu framleiðendur ráð frá teyminu á bak við Game of Thrones um hvernig væri best að koma í
veg fyrir að upplýsingar um komandi söguþræði myndu leka út.
7 Leikarinn David Harbour var sannfærður um að fyrsta serían myndi aldrei ná neinum vinsældum í ljósi þess að honum þótti
hún lítið auglýst fyrir útgáfu.
8 Upprunalegt heiti þáttanna var Montauk og áttu þeir að gerast í Long Island í New York. Síðar kom í ljós kom að það var of erfitt
að taka þar upp að vetri til. Einnig er hermt að ýmsar háleynilegar
tilraunir hafi átt sér þar stað. Það var á níunda áratugnum og segir
sagan að fjölmörgum börnum hafi verið rænt í þágu vísindatilrauna.
Þaðan spratt upp hugmyndin að þáttunum.
9 Gaten Matarazzo, sem leikur Dusty, var fyrsti leikarinn sem var ráðinn.
10 Steven Spielberg er sagður vera gífurlegur aðdáandi þáttanna.
Metacritic:
72/100
EINKUNNIR:
Rotten Tomatoes:
89/100
IMDb:
8.9/10