Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 64
19. júlí 2019
29. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Ég kaupi
þetta ekki!
522 4600
www.krokur.net
Krókur hf. er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta
í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
• 24 stunda þjónustu allt árið um kring
• björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þarf þá á verkstæði
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið
Helena
Reynis
gengin út
H
elena Reynis, förðunar-
fræðingur og listamað-
ur, er gengin út.
Sá heppni heitir
Hjörtur Þórisson og er 27 ára.
Helena er 25 ára og er í hópi
færustu förðunarfræðinga
landsins. Hún er með fjölda
fylgjenda á samfélagsmiðl-
um og er með þrjár síður á
Instagram: persónulega, fyrir
förðunina og fyrir listina, en
Helena er einnig
mikil listakona
og stundaði
nám við lista-
skóla í Sví-
þjóð. Hel-
ena tók þátt
í Ungfrú Ís-
land árið 2015
og var valin
Miss People’s
Choice.
MYND: INSTAGRAM @HELENAREYNISMAKEUP
Sumar
kaupmálar
F
jölmargir kaupmálar hafa
verið færðir í allsherj-
arskrá um
kaupmála
hjá sýslumanns-
embættunum á
landinu í sumar.
Meðal þeirra eru
kaupmálar hjá
leikkonunni Maríu Ellingsen og
ljósmyndaranum Carl Mathias
Cristopher Lund, en þau gengu
í það heilaga í Færeyjum í júní.
Brúðkaupið stóð yfir í þrjá daga
að færeyskum sið en þann 11.
júní var kaupmála skilað inn til
Sýslumannsins á höfuðborgar-
svæðinu. Daginn eftir skiluðu
söng- og útvarpskonan Erna
Hrönn Ólafsdóttir og Jörund-
ur Kristinsson inn sínum kaup-
mála, en þau giftust um mið-
bik júní eftir áralangt samband.
Kaupmáli er samningur á milli
hjóna til að tilgreina þær sér-
eignir sem annar hvor aðilinn á
og tilheyra ekki félagsbúi hjón-
anna.
Egill leikstýrir þáttaröð um dóttur djöfulsins
E
gill Örn Egilsson hefur starf-
að sem kvikmyndatökumað-
ur, leikstjóri og framleiðandi
í Los Angeles í tæp 30 ár, en
hann kallar sig Eagle Egilsson ytra.
Hann hefur mest unnið við sjón-
varp síðustu ár og komið að fjölda
vinsælla þáttaraða, eins og CSI,
Arrow, Lucifer, Magnum P. I. og
fleiri.
Næsta þáttaröð sem Egill
mun leikstýra er evrópsk þátta-
röð með yfirnáttúrulegu ívafi sem
ber nafnið One Bad Apple. Þátta-
röðin er skrifuð af feðginunum
Gavin og Rebeccu Scott, sem er til
að mynda með þáttaröð George
Lucas, The Young Indiana Jones, á
ferilskránni.
One Bad Apple verður frum-
sýnd haustið 2020 og segir frá
Mercy Emerson, dóttur djöfuls-
ins, og hvað gerist þegar hún hefur
nám við virtan breskan heimavist-
arskóla. Fljótlega nær hún að taka
yfir ekki aðeins skólann heldur
einnig nærliggjandi bæ og sveit.
Sú eina sem stendur í vegi fyrir
henni er skólastúlka sem starfar í
mötuneyti skólans.
„Eftir að ég las fyrstu þættina
af One Bad Apple, þá vissi ég að
ég vildi taka þátt í að láta þættina
verða að veruleika,“ segir Egill í
samtali við Hollywood Reporter.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á
15 milljónir evra og sé horft á fyrri
þáttaraðir sem Egill hefur komið
að þá má gera ráð fyrir að One Bad
Apple muni njóta vinsælda.
„Frá því að ég hitti Egil í fyrsta
sinn þá vissi ég að hann væri full-
kominn leikstjóri til að gæða
einstakt drama lífi. Allir framleið-
endur vilja leikstjóra sem deil-
ir sömu sýn og metnaði og hann
sjálfur,“ segir Tuvalu Johnson,
framleiðandi þáttanna.