Skessuhorn - 17.01.2007, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
3. tbl. 10. árg. 17. janúar 2007 - Kr. 400 í lausasölu
r ^
Meðal
efnis:
• Gunnar kveður
Dalamenn......Bls. 12
• Kolbeinsstaðahreppur í
Mýrasýslu!....Bls. 17
• Sannkallað
fjölnotahús.....Bls. 2
• Einar byggir upp
Söðulsholt....Bis. 19
• Mýramaðurinn
á fjalirnar...Bls. 10
• Kristinn undan feldi
um helgina......Bls. 4
• Auka fjárfestingar til
brýnna verka....Bls. 8
• Brautargengi á
Skaganum......Bls. 13
• Fyrstu skref
tvöföldunar.....Bls. 8
• Stúka til að halda
keppnisleyfi..Bls. 23
• Rannsaka ástæðu
fiskadauðans....Bls. 6
• Meirihlutinn
klofnaði......Bls. 14
• Nepal stækkar
dreifikerfið..Bls. 11
• Fiðlusnillingur úr
sveitinni.....Bls. 13
• Góðar atvinnu-
horfur.......Bls. 10
• Á morgun segir
sá lati......Bls. 16
• Fjölmenningarfélag í
Borgarfirði...Bls. 14
• Sætustu húsin á
Vesturlandi....Bls. 17
Hrossaræktarsa?nband Vesturlands stóðjýrir glæsilegri sýningu áfolöldum og trippum úr landshlutanum á Mið-Fossum um liðna helgi.
Þar var margt efnilegt ungviðiö sýnt. A myndinni er heimastetan Sigríður í Hjarðarholti að sýnafolaldið Blika og hveturþað áfram
sitjandi á viljugu hrossi. Itarleg frásögn er af sýningunni á bls. 22. Ljósm. MM
Samningur um endurbyggingu
kútters Sigurfara undirritaður
aðir. Hún
sagði nauðsyn-
legt að varð-
veita atvinnu-
söguna og það
væri meðal
annars gert
með varðveislu
kútters Sigur-
fara. Hún
sagði skipið í
góðum hönd-
um og vonaði
Það voru Bjöm Elíson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.; Gunnar Sig-
urðsson og Einar Om Thorlacius sem undirrituðu samninginn.
í gær var undirritaður samningur
milli menntamálaráðuneytisins,
Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðar-
sveitar og Byggðasafnsins í Görðum
á Akranesi um endurgerð og varð-
veislu kútters Sigurfara. Það voru
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra, Gunnar Sig-
urðsson forseti bæjarstjórnar Akra-
ness, Einar Orn Thorlacius sveitar-
stjóri Hvalfjarðarsveitar og Björn
Elíson formaður stjómar byggða-
safnsins sem undirrituðu samning-
inn í kuldanum við skipshlið. Eins
og fram hefur komið í fréttum
Skessuhorns tryggir samningurirm
60 milljónir króna úr ríkissjóði til
endurbyggingar kúttersins. Björn
Elíson segir að nú verði hafist handa
við undirbúning verksins en of
snemmt sé að segja til um það á
þessari stundu hversu langan tíma
endurbyggingin taki né heldur hvar
endurbyggingin fari fram.
I hófi sem bæjarstjóm Akraness
hélt að lokinni undirskrift sagði Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra mjög ánægju-
legt að samningar um endurbygg-
inguna skuli nú hafa verið undirrit-
að um síðir myndi skipið sigla á ný
og nýtast meðal annars skólum til
fræðslu. Gunnar Sigurðsson forseti
bæjarstjórnar Akraness þakkaði ráð-
herra hennar framgöngu í málinu og
í þakklætisskyni færði hann henni
nælu sem Dýrfinna Torfadóttir gull-
smiður á Akranesi smíðaði af þessu
tilefni. Einar Om Thorlacius sveit-
arstjóri Hvalfjarðarsveitar sagði
samninginn gleðilegt skref og þakk-
aði þeim sem að undirbúningi hans
komu.
Til hófsins var meðal annars boð-
ið félögum úr Kivanisklúbbnum
Þyrli á Akranesi en þeir stóðu fyrir
kaupum Sigurfara ffá Færeyjum árið
1974 og kom hann til Akraness 7.
júlí það ár og var afhentur Byggða-
saftiinu á Görðum til eignar. Fyrsm
árin var unnið að endurgerð skipsins
en hin síðari ár hefur lítið verið unn-
ið í málinu vegna fjárskorts. Hefur
skipið síðan látið vemlega á sjá. Fyr-
ir nokkm síðan var leitað til sérfræð-
inga Buchan, Hall & Mitchell í
Skotlandi um að meta ástand skips-
ins og gera kostnaðaráætlun um
endurgerð og framtíðarvarðveislu
þess. Þeirra mat var að ráðast yrði
hið bráðasta í endurgerð til að hægt
yrði að bjarga skipinu ffá eyðilegg-
ingu.
HJ
Stækkuná
DABÍ
farvatninu
Undirbúningsvinna við end-
urbætur og uppbyggingu hjúkr-
unarrýma hjá Dvalarheimili
aldraðra í Borgarbyggð, DAB,
er í fullum gangi. Sveitarfélagið
Borgarbyggð hefur lýst ein-
dregnum vilja til þess að upp-
bygging DAB verði eitt af þeim
forgangsverkefnum sem hefjast
þarf handa við sem fyrst til þess
meðal annars að bæta búsetu-
skilyrði enn frekar í sveitarfélag-
inu.
Að sögn Magnúsar B. Jóns-
sonar, formanns stjórnar DAB
er megin verkefhi stjórnarinnar
að vera tilbúin með allan undir-
búning þannig að ekki standi á
heimaaðilum þegar ríkisvaldið
gefur grænt ljós á að hefja verk-
ið. Fyrsta verkefnínu þ.e.
deiliskipulagsferlinu fyrir bygg-
ingarreitinn er nánast lokið og
því ekkert til fyrirstöðu að hefj-
ast handa um frekari undirbún-
ing.
„Það var fundur í dag, [mánu-
dag], og þá var ákveðið að hefja
nú þegar undirbúning að því að
koma verkefninu á fram-
kvæmdastig og formanni falið
að fara í viðræður við hlutaðeig-
andi aðila.
Það þarf að auka við hjúkmn-
arrými og er enginn annar kost-
ur en að byggja, þótt einhverjar
skipulagsbreytingar mtmi eiga
sér stað innan dyra, dugar það
alls ekki til. Sveitarfélagið legg-
ur áherslu á að þetta mál komist
í fastan farveg sem fýrst og von-
andi geta framkvæmdir hafist á
fyrri hluta þessa kjörtímabils,"
sagði Magnús B. Jónsson að lok-
um.
BGK