Skessuhorn - 17.01.2007, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER2006
^niiMunuu.
Iþróttagrein-
um fjölgar
í húsinu
Snjókoma liðinna daga hefur
kætt ungviðið á Akranesi og sem
vonlegt eru hefur það nýtt öll
tækifæri til leikja í snjónum. Ut-
sjónarsemi barna og imglinga er
lítil takmörk sett og það sést
best á nýjusm rennibraut þeirra.
Sú er ekki af smærri gerðinni,
heldur sjálf Akraneshöllin eða
réttara sagt þak hennar og hlið-
ar. Þegar skefur að höllinni
myndast sem næst samfella milli
hliða hússins og þaksins. Þetta
hafa börn og unglingar nýtt sér
bæði til þess að stökkva niður og
einnig má á förunum í snjónum
sjá að einhverjir hafa haft sleða
sína uppá þakið og rennt sér
niður. Því verður vart á móti
mælt að Akraneshöllin er fjöl-
nota íþróttahús. HJ
Til mtnnis
Við minnum á Bóndadaginn n.k.
föstudag en þá er góður siður að
gauka einhverju fallegu að
bónda sínum, eða í það minnsta
gera vel við hann í mat. Með
Bóndadeginum byrjar þorrinn
eins og flestir vita, en þá mun
ilmur af súrmeti svífa yfir og
galsafenginn Þorrablót hefjast af
krafti.
Veðivrhorfw
Á meðan stórveðrin geisa í
Skandinavíu um þessar mundir
getum við hér á Fróni prísað okk-
ur sæla yfir veðurfari síðasliðinnar
viku þrátt fyrir að örlítill kuldi hafi
gert vart við sig. í þessari viku er
útlit fyrir að norðanáttir muni ríkja
en Veðurstofan segir að á
fimmtudegi, föstudegi og laugar-
degi verðí ákveðin norðaustanátt,
frost víða 0-10 stig og kaldast inn
til landsins. Á sunnudag verður
fyrst norðanátt en síðan vestlæg,
með dálitlum éljum vestantil og
svipuðum hita. Á mánudeginum
á að fara hlýna og gert ráð fyrir
slydduéljum.
Spwniruj vikRnnetr
í síðustu viku spurðum við hvort
tvöföldun Vesturlandsvegar eigi
að vera forgangsverkefni í sam-
göngumálum og eru niðurstöð-
ur þeirrar könnunnar mjög af-
gerandi. 81,9% svöruðu því ját-
andi, 7,2% voru hlutlausir og
11% sögðu nei.
í næstu viku spyrjum við:
„Fcer bóndinn á þínu
heimili ekki örugglega blóm
á bóndadaginn?"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlendin^nr
viKi^nnetr
Vestlendingur vikunnar er Bjarni
Marinóssyni bóndi á Skáney og
formaður Hrossaræktarsam-
bands Vesturlands, sem spretti
léttur í spori á eftir a.m.k. 60
trippum og folöldum á Mið -
Fossum síðasta laugardag og
hlífði sér hvergi til að þau
myndu sýna sitt allra besta.
Dalakjör í Búöardal veröur aö Samkaup-Strax verslun.
Dalakjör selt Samkaupum
Samkaup hefur keypt rekstur og
húsnæði verlunarinnar Dalakjörs í
Búðardal, einu matvöruverslunar-
innar á staðnum. Gunnar Bjöms-
son og eiginkona hans Erla Sigurð-
ardóttir hafa rekið verslun í Búðar-
dal síðustu tíu ár en hafa nú ákveð-
ið að selja. Að sögn Sturlu Eðvarðs-
sonar framkvæmdastjóra Samkaupa
hefur verið ákveðið að verslunar-
formið í Dölum verði Samkaup -
Strax. „Þetta er minni gerð verslana
sem við rekum í dreifbýli sem þó
þarf ekki samt að þýða að vöraúrval
sé minna. Við aðlögum okkur eftir
markaðnum á hverjum stað og það
sama mun gilda um Dalina. Vöru-
úrvalið verður ekkert langt ffá því
sem Gunnar hefur verið með, þó
ljóst sé að við komurn ekki til með
að hafa eins mikið af sérvöra og
hann. Við gætum hins vegar alveg
hugsað okkur að fara í samstarf við
einkaaðila sem hefði áhuga á því að
reka sérvöruverslun. Hvað opnun-
artímann varðar hafa engar ákvarð-
anir verið teknar í tengslum við
þessa verslun. Opnunartímar era
breytilegir í búðum okkar um allt
land, eftir því hvað hentar á hverj-
um stað. Við látum reynsluna skera
úr um það í Dölum, sem annarstað-
ar,“ segir Sturla Eðvarðsson í sam-
tali við Skessuhorn.
Sturla sagði ennfremur að eins
og fyrr væri rekstur þessarar versl-
unar samstarfsverkefni við Olíufé-
lagið Essó, það myndi ekkert breyt-
ast. Einhverjar breytingar myndu
án efa eiga sér stað á verslunarhús-
næðinu þar sem nýjum herrum
fylgdu oft brcytingar, hverjar þær
yrðu kæmi bara í ljós. „Við viljum
þó umfram allt reka góða verslun í
Búðardal í góðri samvinnu við
heimamenn,“ sagði Sturla Eðvarðs-
son að lokum.
BGK
Snjó- og krapaflóðavamir reistar
í Olafsvík í sumar
Á næstu vikum verða boðnar út
ffamkvæmdir við snjó- og krapa-
flóðavarnir í Olafsvík og er ætlunin
að ffamkvæmdum ljúki fyrir næsta
vetur. Framáætlun gerir ráð fyrir að
kostnaðurinn verði um 100 millj-
ónir króna. Fyrir rúmu ári síðan
vann Orion Ráðgjög ehf. ffumdrög
varnanna að beiðni Snæfellsbæjar
og Ofanflóðasjóðs. Verkffæðistofu
Siglufjarðar var síðar falin hönnun
mannvirkjanna og gerð útboðs-
gagna.
Að sögn Þorsteins Jóhannessonar
hjá Verkfræðistofu Siglufjarðar
verður útboðið í þremur hlutum. I
fyrsta lagi verður boðin út smíði
stoðvirkja sem sett verða upp í Tví-
steinshlíð fyrir ofan Heilsugæslu-
stöðina í Olafsvík og koma þau í stað
snjóflóðaneta sem sett vora upp í
hlíðina á sínum tíma. I öðra lagi
verður boðin út jarðvinna sem felst í
endurgerð lítils snjóflóðagarðs sem í
hlíðinni er og í þriðja lagi verða
boðnar út endurbætur á farvegi Bæj-
arlæksins í Olafsvík. Meðal annars
verður farvegurinn hreinsaður og
byggð ný brú yfir hann. Með því á
að koma í veg fyrir að krapaflóð ber-
ist úr farveginum.
Árið 1948 fór krapaflóð niður
bæjarlækinn og eyðilagði búpen-
ingshús og drap búpeninginn. Árið
1995 féll snjóflóð úr Tvísteinshlíð
niður á heilsugæslubygginguna og
skemmdi innbú hennar. Frá árinu
1995 hafa nokkur snjóflóð falhð úr
hlíðinni án þess að valda tjóni.
HJ/ Ijósm. afvef
Snœfellsbæjar; www.snb.is
Umönnunargreiðslur teknar upp
á Akranesi 1. febrúar
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að umönnunargreiðslur þær
sem bæjarstjórn ákvað að greiddar
yrðu til foreldra með ungböm verði
teknar upp ffá 1. febrúar. Samkvæmt
tillögu bæjarstjómar ffá 12. desem-
ber s.l. er gert ráð fyrir að foreldrum
með ungaböm verði greiddar 30
þúsund krónur á mánuði frá því að
fæðingarorlofi lýkur að tveggja ára
aldri eða þegar viðkomandi bam
hefur aðgengi að leikskólum Akra-
neskaupstaðar.
Á fundi félagsmálaráðs Akraness
sem haldinn var í gær var samþykkt
tdllaga þar sem lagt er til að greiðsl-
ur tdl einstæðra foreldra og náms-
manna verði 38 þúsund krónur á
mánuði. Tillagan var samþykkt með
tveimur samhljóða atkvæðum. Full-
trúi Samfýlkingarinnar í félagsmála-
ráði, Anna Lára Steindal, sat hjá við
afgreiðsltma. Hún færði tdl bókar að
hún væri ekki á móti upptöku um-
önnunargreiðslna sem slíkra en hún
telur að „þær verði að vera í sam-
ræmi við hæstu niðurgreiðslur til
dagforeldra til að fyrirbyggja aukin
útgjöld bamafólks á Akranesi" eins
og segir í bókun hennar. HJ
Vatnasafhið opnar í Stykkishólmi í vor
Ráðgert er að opna Vatnasafnið í
Stykkishólmi í maí næstkomandi
og ríkir tilhlökkun meðal bæjarbúa
um verkefnið, að sögn Erlu Frið-
riksdóttur, bæjarstjóra. Eins og
fram hefur komið hér í blaðinu er
hugmyndin að safninu komin frá
listamanninum Roni Horn og
verður safnið sett upp þar sem
gamla bókasafnið var áður til húsa.
Ástæðan fyrir því að Stykkishólm-
ur varð fyrir valinu, er m.a. sú
hversu vatnið er heilsusamlegt á
staðnum, en einnig heillaðist lista-
konan af landslaginu. I safninu
verður hægt að sjá alls kyns teg-
undir af vatni, eins og t.d. úr jökl-
um landsins en því verður komið
fyrir í vatnssúlum. Auk þess verður
annað efni varðandi vatn sem hægt
verður að fræðast um og sjá.
Roni Horn er þekkt nýlistar-
kona, fædd í Bandaríkjunum, en
hefur komið til Islands reglulega
og tekið miklu ástfóstri við ís-
lenska náttúru. Vatn hefur verið
eitt helsta viðfangsefni hennar síð-
an hún heimsótti landið í fyrsta
skipti og hefur hún ljósmyndað
vatnsuppsprettur, hveri, sundlaug-
ar og fleira. Á Vatnsafninu í Stykk-
ishólmi verður hún einnig með
eigin verk til sýnis en undirbún-
ingur á safninu er hafinn af fullum
krafti.
KH
Endurbætur
á grunnskólanum
DALABYGGÐ: Sveitarstjórn
Dalabyggðar hefur í nýrri fjár-
hagsáætlun gert ráð fyrir endur-
bótum á grunnskólanum í Búð-
ardal upp á átján milljónir
króna. Að sögn Gunnólfs Láras-
sonar verða þessar endurbætur í
tengslum við flutning leikskól-
ans í nýtt húsnæði. Þegar leik-
skólinn flytur verður hægt að
nýta allt húsið undir grannskól-
ann. -bgk
Nokkrir pústrar
í umferðinni
AKRANES: Fjögur umferðar-
óhöpp vora tilkynnt til lögreglu
á Akranesi í vikunni sem leið.
Þrjú þeirra minniháttar en í því
fjórða varð talsvert tjón á bif-
reiðum en engin meiðsl á fólki.
Ohappið átti sér stað á Innnes-
vegi með þeim hætti að öku-
maður sem var á leið vestur Inn-
nesveg dró úr ökuhraða þegar
hríðarkóf birgði honum sýn.
Annar sem á eftir honum ók
varð bifreiðarinnar ekki var í
hríðarkófinu með þeim afleið-
ingum að hann ók aftan á fremri
bifreiðina. Báðir bílar skemmd-
ust það mikið að flytja varð þá af
vettvangi með kranabifreið. -kb
Arekstur
á föstudagur
HVALFf.GÖNG: Þriggja bfla
árekstur varð á Vesturlandsvegi
skammt ffá syðri munna Hval-
fjarðarganganna undir kvöld sl.
föstudag. Tilkynnt var um
áreksturinn laust fyrir klukkan
sex og fóra lögregla og sjúkra-
flutningamenn á staðinn. Þrír
vora fluttir á slysadeild og fengu
tveir þeirra að fara heim að lok-
inni skoðun. Talsverðar tafir
urðu á umferð og vora göngin
lokuð um tíma vegna slyssins.
-mm
Syeinn til OR
AKRANES: Sveinn Kristinsson
bæjarfulltrúi á Akranesi tók um
áramótin við starfi í höfuðstöðv-
um Orkuveitu Reykjavíkur.
Sveinn mun starfa að starfs-
mannamálum fyrirtækisins,
einkum að endurmenntunar-
málum starfsmanna sem era á
bilinu 5-600 talsins. -bj
Harður árekstur
BORGAREJÖRÐUR: Harður
árekstur tveggja bfla varð síð-
degis á föstudag efst í Staf-
holtstungum í Borgarfirði á
móts við bæinn Grafarkot,
skammt ofan við Munaðames.
Jeppabifreið og flutningabíll
rákust saman. Ökumaður
jeppans var fluttur alvarlega
slasaður með þyrlu á sjúkrahús
þar sem hann gekkst undir að-
gerð um nóttina. Samkvæmt
síðustu fféttum af slysadeild er
líðan mannsins eftir atvikum.
Báðir bflarnir era óökuhæfir eft-
ir áreksturinn. Færð á þessum
slóðum var slæm þegar slysið
átti sér stað; gekk á með dimm-
um éljum samhliða mikilli
hálku. Á föstudagskvöld var færð
mikið tekin að spillast á Holta-
vörðuheiði og þurftu björgunar-
sveitarmenn ffá Heiðari í Borg-
arfirði og frá Hvammstanga að
fara á heiðina til aðstoðar bfl-
stjóram sem misst höfðu bfla
sína útaf. -mm