Skessuhorn - 17.01.2007, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 2007
■ ■■ ,
Hafiiar beiðni
Neyðarlínunnar
REYKHÓLAR: Skipulags- og
bygginganefnd Reykhóla-
hrepps hefur synjað beiðni
Neyðarlínunnar um leyfi til
þess að reisa fjarskiptamastur
og tækjahús í Flatey á Breiða-
firði. Nefndin hafnar beiðnixmi
þar sem gert er ráð fyrir stað-
setningu í gamla þorpinu í
eynni. Þess í stað bendir nefnd-
in á stað sem hún telur heppi-
legri fyrir svona mannvirki. Er
það á Ytri Tröllenda.
-hj
Skýjaborg
stækkuð
HVALFJARÐARSVEIT:
Hvalfjarðarsveit hefur auglýst
eftir tilboðum í stækkun leik-
skólans Skýjaborgar í Mela-
hverfi. Um er að ræða 127 fer-
metra viðbyggingu úr timbri
auk breytinga innanhúss í eldri
hluta leikskólans og lóðarfrá-
gangi. Framkvæmdum skal lok-
ið 1. ágúst á þessu ári. Eins og
fram hefur komið í fréttum
Skessuhorns hefur Jöfhunar-
sjóður sveitarfélaga samþykkt
þátttöku sjóðsins í þessum
framkvæmdum að hámarki þá
rúmlega 21 milljón króna.
-hj
Göngubraut
breytt
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt að ráðast í
framkvæmdir við göngubraut
með Langasandi þannig að hún
tengist göngustíg við Dvalar-
heimilið Höfða. Er þetta gert
að beiðni Guðjóns Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra
Höfða. I bréfi hans til ráðsins
segir að tenging muni auðvelda
þeim sem bundnir eru við
hjólastól að komast óhindrað á
göngubrautina en það er mjög
erfitt í dag vegna þess að fara
þarf um ómalbikaðan kafla frá
Höfða að göngubrautinni. Bæj-
arráð fól tækni- og umhverfis-
sviði bæjarins framkvæmd
málsins og var fjármögnun
verksins vísað til endurskoðun-
ar fjárhagsáætlunar ársins.
-hj
Faxaflóahafiiir
styrkja
Hallgrímskirkju
HVALFJTSTRÖND: Stjórn
Faxaflóahafha samþykkti í síð-
ustu viku að styrkja sóknar-
nefnd Saurbæjarprestakalls um
500 þúsund krónur vegna 50
ára afmælis Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Kirkjan var reist á ár-
unum 1954-1957 og er helguð
minningu Hallgríms Péturs-
sonar. Kirkjan á því 50 ára
vígsluafmæli á þessu ári og
verður tímamótanna minnst
síðar á árinu.
-hj
Nýr slökkviliðsbíll keyptur
til Snæfeflsbæjar
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í
Snæfellsbæ og Benedikt Einar
Gtmnarsson, frá Ólafi Gíslasyni &
Co undirrituðu samning um kaup á
nýrri slökkviliðsbifreið til Snæfells-
bæjar sl. fimmmdag. Við þetta til-
efhi sagði Kristinn að bíllinn yrði
hrein viðbót við tækjakost slökkvi-
liðsins en fyrir eru tvær eldri
bífreiðar. „Þessi kaup eru ætluð til
að styrkja öryggi íbúa og þá sérstak-
lega fyrir íbúa sem búa í sunnan-
verðu sveitarfélaginu þar sem bíll-
inn kemst hratt yfir.“ Þá sagði
Kristinn stór fyrirtæki vera í sveit-
arfélaginu og unnið væri að bygg-
ingu stórra
fyrirtækja og
því væri sér-
stök ástæða til
að efla búnað
slökkviliðsins.
Nýja slökk-
viliðsbifreiðin
verður af
gerðinni Scan-
ina 4x4 og er
um öflugan bíl
að ræða, m.a.
með 420 hest-
afla vél og há-
markshraða
Sams konar slökkviliSsbíll og Smefellsbter hefur núfest kaup á.
Frá undirskrift samnings um njja btlinn. Benedikt Einar Gunnars-
son og Kristinn Jónasson handsala samninginn. Fyrir aftan þá er
Sigurður Sveinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri og Svanur
Tómasson slökkviliðsstjóri í Snœfellsbœ.
um 125 km á klst.
Bíllinn er mjög vel
útbúinn, tekur
4000 lítra af vatni
og er með 200 lítra
froðutank. Þá er
3200 lítra vatns-
byssa á þaki bílsins
og 6 kw rafall við
vél. Yfirbygging er
öll úr trefjaplastefni með eins mik-
ið rými fyrir búnað og mögulegt er
án þess að það komi niður á vatns-
magni. Sæti eru fyrir fjóra í
reykköfunarstólum en alls komast 9
menn í bílinn.
Bílinn er smíðaður í Póllandi og
verður afhentur í janúar á næsta ári.
Kaupverð er 26 milljónir króna.
AF
Kristmn mun svara á kjördæmisþingi
Kristinn H.
Gunnarsson
alþingismaður
segir að hann
muni svara
kj ördæmis-
þingi um
næstu helgi
þeirri spurningu hvort hann taki
þriðja sæti á lista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi við
Alþingiskosningarnar í vor. Eins og
ffam hefur komið í fréttum Skessu-
horns mun kjörnefnd flokksins í
kjördæminu gera tillögu um að
Kristinn skipi þriðja sæti á fram-
boðslista flokksins. I samtali við
Skessuhorn vildi Kristinn ekkert
-----------------------------7—
segja um hvort hann þiggi þriðja
sætið eða ekki. „Það er kjördæmis-
þingið sem er rétti vettvangurinn
til þess að svara þessari spurningu
og þar mun ég greina ffá minni
ákvörðun" segir Kristinn. Kjör-
dæmisþingið verður haldið eins og
áður segir um næstu helgi, á Reykj-
um í Hrútafirði. HJ
Gervihmttaútsendingar RUV hefjast í apríl
Stefnt er að því að Ijúka gerð
samnings um dreifingu á dagskrá
RUV í gegntnn gervihnött síðar í
þessum mánuði. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá samgöngu-
ráðuneytinu. Eins og fram hefur
komið í fféttum hefur útsendingin
með þessum hætti staðið til um
nokkurt skeið og á dögunum vísaði
Páll Magnússon útvarpsstjóri íbú-
um Hvalfjarðarsveitar á þessa lausn
þegar kvartað var undan slæmum
styrk útsendingar RUV í sveitarfé-
laginu. Fyrr í vetur var dreifingin
boðin út og eins og áður sagði er
stefnt að undirritun samnings síðar
í þessum mánuði. Frá undirritun
samnings þar til útsendingar hefjast
munu líða um tveir mánuðir. Sam-
kvæmt því gæti því útsending hafist
í apríl. HJ
Fasteignaskattar hækka um
12,5% á Akranesi
I samantekt verðlagseffirlits ASl,
um breytingar á álagningu og
gjaldskrám 15 fjölmennustu sveit-
arfélaga landsins, kemur ffam að
fasteignaskattar í fjölbýli og sérbýli
á Akranesi hækkar á þessu ári um
12,5%. Mest er hækkunin í þessum
sveitarfélögum 17,7% í Sveitarfé-
laginu Skagafirði en mest lækkar
skattheimtan um 12% á Seltjarnar-
nesi. Hækkunin á Akranesi er til-
komin vegna 10% hækkun fast-
eignamats og þá hækkar álagning-
arstuðull fasteignaskatts um 2,5%.
Þá er einnig samanburður ann-
arra gjalda í samantekt ASI. Hol-
ræsagjöld hækka um 10% á Akra-
nesi vegna hækkunar fasteigna-
matsins og svo er um flest önnur
sveitarfélög í samanburðinum önn-
ur en Isafjarðarbæ þar sem gjöldin
hækka um 30%. Sorphirðugjöld
hækka um 8% á Akranesi og aðeins
í þremur sveitarfélögum hækka
gjöldin minna. Mest er hækkunin í
Isafjarðarbæ þar sem gjöldin hækka
um 45%. Á Akranesi greiða fast-
eignaeigendur 13.500 krónur á ári í
sorphirðugjöld. I níu sveitarfélög-
um eru gjöldin lægri og lægst eru
þau 10.000 krónur á Seltjarnarnesi
og í Skagafirði. Hæst eru þau í ísa-
fjarðarbæ 29.000 krónur. HJ
Framboðslistar Frjálslynda
flokksins bíða fram yfir landsþing
Magnús Þór Hafsteinsson, vara-
formaður Frjálslynda flokksins seg-
ir að ekki verði gengið ffá fram-
boðslistum flokksins til Alþingis-
kosninga fyrr en að loknu lands-
þingi flokksins sem haldið verður í
Reykjavík 26. og 27. janúar. Hann
segir undirbúning þingins standa
nú sem hæst og uppstilling bíði á
meðan.
Eins og ffam hefur komið í ffétt-
um Skessuhorns hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn og Samfylkingin gengið
frá sínum framboðslistum í Norð-
vesturkjördæmi. Um næstu helgi
gengur Framsóknarflokkurinn í
Norðvesturkjördæmi frá sínum
lista og Vinstri hreyfingin-grænt
framboð vinnur þessa dagana að
uppstillingu.
HJ
Efiiatil
hugmynda-
samkeppni
SNÆFELLSBÆR: í tileftii af
sameiningu björgunarsveita í
Snæfellsbæ hefur verið ákveðið
að efha til hugmyndasamkeppni
um nýtt nafii og merki á sam-
einaðri sveit. Alhr þeir sem luma
á góðri hugmynd eru hvattir til
þess að taka þátt og setja í
merkta kassa í söluskálum og
sjoppum innan Snæfellsbæjar.
Hugmyndasamkeppnin stendur
yfir í mánuð, frá 10. janúar til
10. febrúar. -kh
Grunnur
fjárhagsaðstoðar
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt tillögu félags-
málaráð bæjarins að grunnupp-
hæð fjárhagsaðstoðar til einstak-
linga 18 ára og eldri hækki úr
87.615 krónum í 95.325 krónur
á mánuði eða um tæp 8,8%.
Samkvæmt reglum um fjárhags-
aðstoð á Akranesi mun fjárhags-
aðstoð til hjóna og fólks í skráðri
sambúð því nema allt að
152.520 krónum á mánuði. -hj
Byrjunarkvóti í
loðnu gefinn út
MIÐIN: Tillaga hefur borist ffá
Hafrannsóknastofnun um að
leyfilegur upphafsafli í loðnu
verði ákveðinn 180.000 tonn. í
hlut íslendinga koma 143.000
tonn, en Norðmenn, Færeying-
ar og Grænlendingar fá líka
hlutdeild samkvæmt alþjóða-
samningum. A vef LIU segir:
„Óhætt er að segja að skjótt
skipist veður í lofti í tengslum
við loðnuna, en mikil óvissa hef-
ur ríkt um veiðar. Engar upplýs-
ingar hafa verið til um 2004 ár-
ganginn og ekkert hefur sést til
hans fyrr en nú með nýjustu
mæhngum Hafrannsóknastofn-
unar.“
Þá segir að loðna úr þessum ár-
gangi skuli finnast sé mikil
gleðifrétt, en markaðir fyrir
loðnuafurðir eru mjög góðir um
þessar mundir. Verð á mjöh og
lýsi er í sögulegu hámarki og
einnig er markaður fyrir ffysta
loðnu góður. -mm
Styrkir kaup á
sneiðmyndatæld
AKRANES: Stjóm Sjúkrasjóðs
Verkalýðsfélags Akraness ákvað
á fundi í gær að veita einni millj-
ón króna til kaupa á sneið-
myndatæki fyrir Sjúkrahúsið og
heilsugæslustöðina á Akranesi.
Að undanförnu hafa margir að-
ilar gefið til kaupa á tækinu og
er nú áætlað að tækið verði tek-
ið í notkun síðar í þessum mán-
uði. Eins og ffam hefur komið í
Skessuhorni er talið að tækið
nýtist á milli 3-400 sjúkhngtun á
hverju ári. Fram til þessa hafa
þessir sjúklingar þurft að halda
til Reykjavíkur til þess að nálgast
slíka þjónustu.
-hj
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þríðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 alla virka daga
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Birna G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is
Kolbrá Höskuldsdóttir §68-2203 kolla@skessuhorn.is
Augl. og dreifing:Hekla Gunnarsd. 821 5669 hekla@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is