Skessuhorn - 17.01.2007, Síða 5
>&U9vnuk
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 2007
5
Nýtt kvenfélag í Borgarhreppi
Nokkrar ungar konur í Borgar-
hreppi hinum forna hafa tekið sig
til og sent öllum kynsystrum sínum
í hreppnum bréf um stofnun kven-
félags. Að sögn Olafar M. Brynjars-
dóttur á Ferjubakka sem fer fyrir
hópnum er ekki um að ræða endur-
reisn hins gamla kvenfélags, sem
áður fyrr starfaði með miklum
blóma, heldur nýtt félag.
„Ungu fólki hefur, sem betur fer,
fjölgað aftur í hreppnum og þar af
leiðandi bömum. Við söknum þess
að hér er til dæmis engin jólatrés-
skemmtun fyrir börnin eða aðrar
þær samkomur sem haldnar voru
hér í eina tíð þar sem fjölskyldan
kom saman og skemmti sér. Því
ákváðum við nokkrar konur hér í
kring að senda út bréf og kanna
áhugann. Fundurinn verður hald-
inn í Valfelli, félagsheimili hrepps-
ins, miðvikudaginn 24. janúar
klukkan 20:00 og við vonum auð-
vitað að sem flestar konur í Borgar-
hreppi hafi áhuga á málinu og sjái
sér fært að mæta,“ sagði Olöf. MM
Samráðshópur um forvamamál stofnaður
Bæjarráð Akranes hefur sam-
þykkt að stofnaður verði samráðs-
hópur starfsmanna bæjarins og lög-
reglunnar á Akranesi um forvama-
mál. Jafnframt verði framkvæmda-
nefnd um forvarnir í fikniefnamál-
um lögð niður. Þessi niðurstaða er í
samræmi við niðurstöður samráðs-
fundar um málefni tmgs fólks sem
haldinn var á Akranesi þann 24.
október á nýliðnu ári. Síðan hafa
verið ræddar starfsreglur fyrir sam-
ráðshópinn og hafa komið að því
máli auk starfsmanna bæjarins,
fulltrúar gmnnskólanna og lögregl-
trnnar.
Hinn nýi starfshópur gengur
undir nafninu Brúin og er þar vísað
til þess að starfshópnum sé ætlað að
hafa þá yfirsýn sem fæst í skips-
brúnni auk þess að hann brúi bil
milli stofnana, stjómkerfis bæjarins
og einstakra aldurshópa. HJ
Staðinn að því
Þrátt fyrir nokkra ófærð telur
lögreglan á Akranesi umferðina
hafa gengið án teljandi vandræða í
liðinni viku. Henni barst á sunnu-
daginn kvörtun yfir akstri vélsleða í
bænum og fundu hann og öku-
manninn eftir að hafa svipast um.
www.skessuhom.is
ÚTSALAH
Vantar þig kjólinn fyrir þorrablótin
á frábæru verði?
Endilega kíktu inn á www.gala.is
Glæsilegur samkvæmisfatnaður í öllum stærðum.
Ath.7 daga skilafrestur meðfullri endurgreiðslu :)
Suðurlandsbraut 52 (bláu húsunum við Fákafen)
Sími 588 9925 / www.gala.is
Vesturgata 77
Akranesi
GLÆSILEG ÍBÚÐ í
Fallegt eldra timburhús á besta stað á Akranesi.Stutt í miðbæinn.Er á eignarlóð sem liggur að sjó. íbúðin
telur tvær hæðir og hluta af kjallara.Stórar og fallegar stofur með míkilli lofthæð og nýlegu
eikarparketi.Nýlega endumýjað baðherbergi , flísalagt með innréttingu og baðkari.Eldhúsið er stórt með
dúk á gólfi og eldri innréttingu.Þaðan er glæsilegt útsýni útá sjóinn, yfir Krókalón og uppá Snæfellsnes.
Þetta er glæsileg eldri eign sem mikíð hefur verið gert fyrir. BÓKAÐUR TÍMAI SKOÐUN ! 848-8718
Verð: 22.9
Staerð: 126 m2
Fjðtt* hertieföa: 6
Byggingarár: 1928
Brunabötamat: 14.4
Btekúr. 35 rri2
REÍMBC
LIND
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. fasteignasali
861 2743
848 8718
Breiðavík 8
112 Reykjavík
í GQÐU HVERFI!
Falleg fbúð í góðu og rólegu húsi að Breiðuvfk í Grafarvogi.Góðurúílskúr og sérgeymsla með glugga og
hillum fylgja eigninni. Húsið er steinað að utan og því mjög viðhaldslítið. Sérinngangur er í hverja íbúð.
Þessi íbúð er mjög björt með gluggum á þrjá vegu og ágætu útsýni.Eldhús og stofa eru í einu rými með
útgengi á suðursvalir. Hverfið er bamvænt, stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Egilshöll og golfvöllur
eru í næsta nágrenni og falleg friðuð strönd (göngufæri.
Verð: 26,6
Staerð: 131,7
FjölcS hörbefgja: 4
Byggíngáran 1999
Bftffrabótsirnát: 19.2
BJskur. 30m2
REÍMRK
LIND
Benedikt
Sölufulltrúi
861 2743
benni@remax.is
Vilja endurvinna
rúlluplastið
Eyja- og Miklaholtshreppur hef-
ur samið við Gámaþjónustu Vest-
urlands um að hirða allt plast sem
kemur frá bændum. Að sögn Egg-
erts Kjartanssonar oddvita er það
vilji hreppsnefndar að plast sé ekki
urðað heldur sett í endurvinnslu.
„Það er hrikalegt að vita af öllu
þessu plasti sem var safiiað saman
og keyrt í Fíflholt til urðunar. Með
þessu samkomulagi við Gámaþjón-
ustuna höfum við tryggt að gámar
verði settir heim á stærri bú, þar
sem bændur setja plastið sitt í.
Gámarnir eru síðan teknir og los-
aðir nokkrum sinnum á ári. Þar
sem minna er umleikis eru bændur
beðnir um að safna plastinu saman
og það verður síðan sótt til þeirra.“
Plastið er flutt suður til Reykja-
víkur til frekari flokkunar og síðan
sent erlendis til endurvinnslu.
„Fyrstu gámarnir eru þegar komn-
ir á bæi og þeir sem ekki hafa feng-
ið gáma nú þegar geta búist við því
næstu daga,“ sagði Eggert Kjart-
ansson.
BGK
að aka réttindalaus í sjö skipti
Þeir gáfu ökumanni merki um að
stöðva sleðann sem hann gerði en
þegar átti að fara að ræða við hann
ók hann á braut og hvarf sjónum
lögreglumanna. Hann fannst þó
aftur skömmu síðar og í það skipti
reyndi hann ekki að stinga af. At-
hugun leiddi í ljós að sleðinn var
óskráður og ökumaður réttinda-
laus. Með þessu athæfi sínu telst
ökumaður sleðans hafa brotið um-
ferðarlög með því að aka án öku-
réttinda á óskráðu og ótryggðu
ökutæki og að hafa ekki farið að
fyrirmælum lögreglu. Til viðbótar
telst hann hafa brotið gegn lög-
reglusamþykkt fyrir Akraneskaup-
stað sem bannar umferð vélsleða
innan bæjarmarkanna. Við þetta er
svo að bæta að þetta er sjöunda
skiptið sem viðkomandi ökumaður
er staðinn að því að aka réttindalaus
en hann hefur aldrei öðlast ökurétt-
indi. KH
r
Leikdeild UMf
Skallagríms er að fara af
stað með æfingar á
leikriti sem áætlað er að
frumsýna í mars.
Fyrsti samlestur fer fram í Lyngbrekku
laugardaginn 20.janúar kl 11:00.
Áhugasamir mæti þangað ellegar hafi samband
við Ragnar í síma 697-9845 fyrir nánari
upplýsingar.
Gleðjum bóndann með
blómum og huggulegheitum
Persónuleg þjónusta Verið velkomin
'Bfómaversfunin Blómanon
Hyrnutorgi - Borgarnesi - sími 437 1878
rq
i
Akraneskaupstað ur
Skil á erindum til bæjarráðs og
skipulags- og byggingarnefndar
Bæjarráð Akraness heldur að jafnaði fundi á
fimmtudögum kl. 16:00. Til þess að tryggja að erindi
verði sett á dagskrá fundarins þurfa þau að hafa borist
á bæjarskrifstofu eða á netfangið akranes@akranes.is
fyrir hádegi á þriðjudegi fyrir fund.
Skipulags- og byggingarnefnd heldur að jafnaði fundi
annan hvern mánudag kl. 16:00. Til þess að tryggja að
erindi verði sett á dagskrá fundarins þurfa þau að hafa
borist tækni- og umhverfissviði, Dalbraut 8, eða á
\ netfangið gudny@akranes.is fyrir hádegi á fimmtudegi
; fyrir fund. Fundaáætlun er hægt að nálgast á vef
Akraneskaupstaðar www.akranes.is
^^^æjarstjórinr^^kranesi^^^^^^^^^