Skessuhorn - 17.01.2007, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 2007
SíS3£SSiöH©ÍSKI
Homo palustre:
Gísli semur og frumsýnir Mýramanniim innan skamms
Gísli Einarsson, fréttamaður, at-
vinnu veislustjóri m.m. í Borgamesi
hefur milli annarra verkefna í vetur
setið við skriftdr. Fetar kappinn nú í
fótspor nágranna síns Snorra Sturlu-
sonar sem eitt sinn bjó á Borg og er
að ljuka skrifum á leikverki sem mun
vafalaust verða ja&i frægt, ef ekki
ffægara, en Heimskringla Snorra.
Nú er undirbúningur fyrir ffumsýn-
ingu leikverksins Mýramannsins á
lokametrunum hjá Gísla. Það er
Kjartan Ragnarsson í Landnáms-
setrinu sem aðstoðar Gísla við upp-
setningu verksins, sem er tæpir tveir
Gtsli á kafi í viðfimgsefiiinu.
tímar að lengd, og stefnt er að ffum-
sýningu 27. janúar nk.
„Það er erfitt að skilgreina þetta
og full djúpt í árinni teldð að kalla
„Mýramanninn" leikrit. Þetta er
ffekar löng sögustund en vissulega
eru fín leiklistartilþrif í þessu en þau
koma ffá öðrum en mér. Eg er einn
á sviðinu og lýsi þróun Mýramanns-
ins ffá steinöld til okkar daga og fer
djúpt í einstaka þætti s.s. sköpulag,
geðslag, þróun Borgamess og fleira
og segi sögur af Mýramönnum,
þekktum og óþekktum. Þetta er síð-
an brotið upp með kvikmyndaatrið-
um þar sem ég fæ bðs-
styrk valinkunnra snill-
inga.“ Meðal þeirra sem
koma ffam í hreyfi-
myndaformi era Eddu-
verðlaunahafinn Ilmur
Kristjánsdóttdr, víkingar
úr Dölunum, formenn
einstakra stjórnmála-
flokka og ýmsir fræði-
menn svo nokkrir séu
nefndir.
Gísli segir að sýningin
eigi hvergi betur heima
en á Landnámssetrinu
þar sem nú þegar megi
segja að hefð sé komin á
ffumlega sagnamennsku
á Söguloftinu; Mr.
Skallagrímsson í með-
förum Benedikts Er-
lingssonar sem notið
hefur fádæma vinsælda
og nú er í gangi saga
tónlistarmannsins
Gísli Einarsson við „fossinn“ íLandnámssetrinu.
„Svona era menn,“
með þeim félögum KK
og Einari Kárasyni.
„Það er náttúrulega
stórkostlegur heiður
fyrir mann eins og mig
að feta í fótspor þessara
snillinga og ekki síður
að fá að taka smá þátt í
þessu mikla ævintýri
sem þróun Landnáms-
setursins er, en það er
býsna magnaður ár-
angur sem þau Kjartan
og Sirrý hafa náð þama
á skömmum tíma,“
segir Gísli.
„Homo palustre, eða Mýramað-
tudnn er saga Mýramanna ffá A tdl
O. Þetta er argasta bull með sögu-
legu ívafi. Markmið mitt er að sjálf-
sögðu að reyna að móðga einhverja
og helst sem flesta - það er svo góð
auglýsing," segir Gísli og bætir við
að ef það takist vel, komi fólk í stríð-
um straumi til að geta myndað sé
skoðun og tekið þátt í umræðunni
um verkið við eldhúsborðin sem víð-
ast. „Þó hygg ég, algjörlega án gríns,
að þetta verði græskulaust gaman.
Eg fékk til hðs við mig söguffóða
menn af Mýrunum til að ég ljúgi nú
ekki eins miklu. Hinsvegar ákvað ég
strax í upphafi svona tdl að auðvelda
mér skrifin að láta sannleikann ekki
hefta ffamþróun verksins.“
Aðspurður um tdlurð þess að hann
leikgeri nú sögu Mýramannsins seg-
ir Gísli að hugmyndin sé um tveggja
ára gömul og þar að auki stolin. „Eg
byggi þetta á hugmynd sem Páll
sveitarstjóri gaukaði að mér, en hann
sá verkdð De fordömte nordlændin-
gena í Noregi- verk sem gekk árum
saman hjá frændum vorum þar. Eg
sá videó af þessu verki þar sem sagð-
ar era skemmtisögur af norskum
norðlendingum og þaðan er grunn-
hugmyndin komin.“ Síðar segir
Gísh að verkið hafi þróast hjá sér og
hann síðan sótt um og fengið veg-
legan styrk frá Menningarsjóði
Borgarbyggðar til að skrifa handrit.
„Síðan komst Kjartan Ragnarsson
með puttana í þetta og hefur rekið
mig áffam og gefið mér góð ráð en
hann er nokkurs konar þróunarstjóri
Mýramannsins. Vafalaust hefur
aldrei áður orðið jafn hröð þróun á
Mýramanninum á jafn skömmum
tíma,“ segir Gísli.
Eins og áður segir er stefiit að
ffumsýningu Mýramannsins á pakk-
húsloftinu í Landnámssetrinu laug-
ardaginn 27. janúar nk. „Eg mun
síðan forsýna verldð daginn áður
fyrir vini mína og fjölskyldu og halda
með þeim hættd upp á fertugsafmæli
mitt. Síðan stefiú ég á að sýna verk-
ið ffam effir febrúar en fjöldi sýn-
inga fer eftir aðsókn,“ segir Gísli að
lokum. MM
Krummi í vanda
Slökkviliðið á Akranesi fékk
heldur óvanalegt útkall í dag en
hringt var í það og beðið að koma
hrafni nokkram til hjálpar. Hrafn-
inn, sem er einn af virðulegum bæj-
arhröfnum á Akranesi, var fastur
uppi á þaki pósthússins við Kirkju-
braut, búinn að flækja sig í mastri
sem þar er. Slökkviliðsmenn höfðu
snarar hendur, fóra með körfubíl á
staðinn, hífðu sig upp og náðu að
losa kramma úr prísundinni, sem
eflaust var ffelsinu feginn. Hann
reyndist þó það illa særður á fæti að
ekki var víst hvort ráðlegt væri að
láta hann lifa við svo búið.
Með slökkviliðsmönnunum
Guðmundi Hjörleifssyni og Jóni
Sólmundarsyni á myndinni er sér-
legur hjálparsveinn þeirra, Brynjar
Mar Guðmundsson, sem staddur
var á svæðinu þegar Skessuhorn bar
að. Þegar var búið að gefa hrafnin-
um nafnið Sprettur. KH
Hertar aldursreglur á
staðarpöbb Hvanneyringa
Forsvarsmenn Pöbbsins á
Hvanneyri hafa ákveðið að herða
reglur um aðgengi fólks að veit-
ingastaðnum. Frá og með næsta
fimmtudegi verður einvörðungu
hleypt inn þeim sem era orðnir 20
ára, óháð því hvort yngra fólk sé í
fylgd með fullorðnum eða ekki.
„Vegna nokkurra vandamála sem
upp hafa komið síðustu helgar utan
við og inn á Pöbbnum á Hvann-
eyri, hefur verið ákveðið að hækka
aldurstakmark á Pöbbnum upp í 20
ár, en ákvörðun um aldurstakmark
á veitingastöðum hérlendis er al-
gerlega á ábyrgð rekstraraðila hvers
veitdngastaðar," segir í tilkynningu
frá Snorra Sigurðssyni eiganda
veitdngastaðarins.
Fram til þessa hefur aldurstak-
mark á veitingastaðnum verið 18
ár, en eins og gefur að skilja er þó
einstaklingum undir tvítugu
óheimil kaup á víni á barnum.
Þessu hefur verið fylgt fast eftir á
Pöbbnum en neysla áfengis hjá
fólki imdir lögaldri hefur því mikið
til farið fram utan dyra. Vegna
kulda og vosbúðar útd hefur fólk
„sturtað" þar í sig og komið svo aft-
ur inn í hlýjuna þar sem svifið hef-
ur hratt á menn. „Oftar en ekki
hefur fólkið orðið heldur ölvað
vegna þessarar neysluhegðunar.
Þetta hefur kallað á ólæti innan-
sem útandyra, nokkra pústra og
mikinn sóðaskap af völdum vínum-
búða á víð og dreif um hlaðié og
því hefur þessi ákvörðun nú verið
tekin með það að markmiði að auka
líkurnar á jákvæðari hegðun fólks
sem er að skemmta sér og um leið
að minnka líkumar á því að ónæði
berist frá gestum veitingastaðarins
til íbúa í nágrenninu," segir Snorri
í samtali við Skessuhorn. MM
Góðar horfur á og í nágrenni Akraness
Á vef VLFA fjallaði Vilhjálmur
Birgisson, formaður félagsins í
vikunni um atvinnuhorfur og
fjölda lausra starfa hjá nokkrum
fyrirtækjum á og í nágrenni Akra-
ness. Þar tínir hann til þau lausu
störf sem vitað er að fyrirtæki á
svæðinu þurfa að ráða mannskap í.
„Ohætt er að segja að það sé bjart
yfir atvinnuhorfum hjá okkur
Skagamönnum á næstu misseram.
Mér reiknast til að það séu að
skapast allt að 100 ný störf bæði
hér á Akranesi og störf tengd stór-
iðjunni á Gru ndartan gasvæði nu,“
segir Vilhjálmur.
Hann segir að í desember sl. hafi
Norðurál byrjað að ráða starfs-
menn vegna lokaáfanga stækkun-
arinnar, en í þeim áfanga þurfti
fyrirtækið að ráða á milli 50 og 60
nýja starfsmenn. I dag á Norðurál
eftir að ráða í kringum 30 þeirra
og munu þær ráðningar fara fram í
janúar og febrúar. Þegar stækkun-
inni er lokið er áætlað að starfs-
menn Norðuráls verði í kringum
430.
Síðar í pistli sínum nefnir Vil-
hjálmur að Islenska járnblendifé-
lagið áætli að fjölga starfsmönnum
um 35 vegna framleiðslu á sérefni
sem nefnist FSM. Áætlað er að sú
framleiðsla hefjist í febrúar 2008.
„Einnig hafa forsvarsmenn HB
Granda gefið það út að þeir hafi í
hyggju að hefja beinabræðslu hér á
Akranesi í það minnsta tímabund-
ið, en sú starfsemi hefur verið í
Reykjavík undanfarin ár. Við þessa
tilfærslu munu einhver ný störf
skapast í verksmiðjunni að nýju.“
Þá getur Vilhjálmur nýlegra
fregna um fyrirhugaða aukningu
sementsframleiðslu SV um allt að
50% sem þýddi að 6 ný störf munu
skapast. Auk þess hafi ýmis fyrir-
tæki auglýst störf, svo sem Gáma-
þjónustan, Trésmiðjan Akur og
fleiri. Eins og áður segir áætlar
Vilhjálmur Birgisson að gera megi
ráð fyrir allt að 100 nýjum störfum
á svæðinu á næstu misserum.
MM
Hittu átrúnaðargoðið á veitingastað
A myndinni erufrá vinstri Aðalsteinn Omar Asgeirsson fi-á ísafirði, semfékk að njóta samvista
við Sn<efellinga í þessari ferð, Magnús Þór Jónsson, Gylfi Scheving knattspymufrömuður, sem
varð 61 ára íferðinni, Ronaldo, Olafur Rögnvaldsson, Friðljöm Asbjömsson, Atli Alexandersson
og Orvar Ólafsson.
Það er ekki í frásögur fær-
andi að áhugamenn um knatt-
spyrnu haldi til „Mekku“
íþróttarinnar í Englandi til
þess að sjá knattspyrnuleik
enda verður áhuga íslendinga
á ensku knattspymunni vart
líkt við annað en trúarbrögð.
Nýlega fór einu sinni sem oft-
ar hópur manna af Snæfells-
nesi til Englands til þess að
berja goðin sín augum eltandi
leðurtuðrana á grænum völl-
um þeirra ensku.
Hitt er sjaldgæfara að fyrir
tdlviljun reldst menn á átrún-
aðargoðin á fömum vegi eins
og að rekast á nágranna á bryggj-
unni. Snæfellingarnir héldu til
Liverpool þar sem þeir sáu heima-
menn lúta í gras fyrir skæðirm og vel
vopnum búnum sveinum vopna-
búrsins í Arsenal. Síðan var haldið tdl
Manchester þar sem þeir sameinuðu
í United mættu liðsmönnum Aston
Villa. Leiknum lauk með sigri þeirra
rauðklæddu frá Manchester. Það
vora liðmenn þeirra frá Svíþjóð og
Noregi sem skoraðu.
Að loknum leik héldu Snæfelling-
ar á veitingastað til þess að nærast og
gleðjast yfir sigri heimamanna. Þar
sem þeir sátu var þeim litið á næsta
borð og könnuðust við ungan mann
sem þar sat. Var þar kominn enginn
annar en portúgalski drengurinn
Cristiano Ronaldo sem skorað hefur
tólf mörk Rauðu djöflanna í úrvals-
deildinni í vetur.
Köstuðu Snæfellingar kveðju á
kappann og bæjarstjóri þeirra Krist-
inn Jónasson festi augnablikið á
myndvél. Hann fórnaði sér fyrir fé-
laga sína enda heldur hann með
öðra rauðklæddu liði sem þessa
stundina er með heldur lakari stöðu
en Ronaldo og félagar. HJ