Skessuhorn - 17.01.2007, Page 11
SKESSIBSÖBKI
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 2007
11
Ovíst hvenær
framkvæmdir við
Þjóðbraut heíjast
Framkvæmdir við nýja Þjóð-
braut, nýja innkeyrslu til Akraness,
verða í fyrsta lagi á vegaáætlun árið
2008. Þetta upplýsti Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra á fundi
með bæjaryfirvöldum á Akranesi í
síðustu viku. Fundinn sátu einnig
fulltrúar frá Vegagerðinni. Sem
kunnugt er hefur bæjarstjórn Akra-
ness þrýst mjög á að framkvæmdir
hefjist sem fyrst og í byrjun desem-
ber lagði meirihluti bæjarstjórnar
til að þá væri unnið að því að koma
ffamkvæmdinni inn á vegaáætlun
fýrr en gert hafði verið ráð fyrir
þannig að ff amkvæmdir gætu hafist
árið 2007. Vildi meirihlutinn að
framkvæmdirnar yrðu boðnar út
þegar í desember en af því varð
ekki.
A fundinum í síðustu viku kom
ffam að hönnun verksins væri nán-
ast lokið og útboðsgögn að verða
tilbúin. Gert er ráð fyrir tveimur
hringtorgum með fjórum stúmm
hvort ásamt sér tengingu við Ket-
ilsflöt og innkeyrslu á lóð verslunar
Bónuss sem nú er að rísa við Þjóð-
braut. Aætlað er að framkvæmdir
taki um 10 mánuði og kosti í heild
sinni um 200 milljónir króna og er
hlutur Akraneskaupstaðar um 35
milljónir króna.
Samgönguráðherra upplýsti að
um þessar mundir standi yfir end-
urskoðun samgönguáætlunar og
unnið sé að því að setja þetta verk
inn í þá áætlun. Einnig sé unnið að
því í ráðuneytinu í samvinnu við
fjármálaráðuneytið að afla heimilda
fyrir ffamkvæmdinni sem fyrst og
semja við bæjaryfirvöld um fjár-
mögnun hennar, þannig að hægt
verði að flýta henni umffam það
sem væntanlega . samgönguáætlun
gerir ráð fyrir sem eins og áður
sagði verður í fyrsta lagi árið 2008.
íij
Nepal stækkar
dreifikerfið
í Borgarfirði
Nepal ehf. í Borgarnesi
vinnur nú að stækkun Inter-
netdreifikerfis síns í Borgar-
firði. Netið sér nú þegar
Lundarreykjadal, hluta
Skorradals, Andakíl og Staf-
holtstungum fyrir Interneti
um örbylgju auk þess sem
fyrirtækið rekur ADSL
miðju á Hvanneyri.
Verið er að ljúka uppsetn-
ingu á sendi í mastri á Staf-
holtsveggjum auk þess sem
undirbúningur er hafinn að
uppsetningu tveggja senda í
Reykholtsdal. Að sögn Þórs
Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra er einnig ver-
ið að kanna möguleika á að
setja upp ADSL miðju í
Reykholti sem mun geta
þjónað þéttbýlinu þar og
bæjum í næsta nágrenni.
Fyrirtækjum og stofnunum á svæð-
inu mun einnig standa til boða allt
að 10 Mbita tengingar. Aætlað er
að ljúka þeirri stækkun í febrúar.
„Við höfum fundið fyrir mikilli
hvamingu ffá íbúum utan okkar
dreifikerfis til að stækka það. Fyrir
vikið viljum við láta á það reyna
hvort pláss sé fyrir okkur á þessu
svæði og vonum við að okkur verði
vel tekið. Ef viðbrögðin verða góð
munum við að sjálfsögðu halda
áffam uppbyggingu kerfisins eftir
því sem við höfum svigrúm til,“
segir Þór og bætir við að dýrasti
þátturinn í uppbyggingu dreifikerf-
is sem þessa sé uppsetning trausts
burðarnets sem þolir það álag sem
því ber að þola. „I því sambandi
vinnum við einnig að hringteng-
ingu burðarnetsins sem mun auka
enn á öryggið,“ segir hann að
lokum. BGK
Krossey jýllti sig einu sinni
Síldveiðiskipið Krossey SF-20 fór í liðinni viku vestur í Grundarffórð og kastaði fyrir
síldina sem þar var í nokkru magni. Veiðarnar gengu vel og náði skipið aðfylla sig í
fáum k 'óstum. Skipið sigldi að því búnu áleiðis til beimahafnar á Homafirði og eetlaði í
kjölfarið að halda á loðnuveiðar norður aflandinu. MM/ljósm. Sveirir.
Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness athugið!
Verkalýðsfélag Akraness minnir félagsmenn sína á eftirfarandi námskeið í
tölvunotkun sem Símenntunarmiðstöð Vesturlands stendur fyrir:
Byrjendanámskeið í tölvunotkun (18 kest)
Þetta námskeið hentar þeim sem lítið sem ekkert eru komnir af stað í að nota tölvur.
Námið er sniðið að þörfum byrjenda.
Farið verður í windows stýrikerfið, word, internetið, tölvupóstinn o.fl.
Hefst þriðjudaginn 30. jan.
Kennt á þri. og fim. kl. 19:30 til 21:00 í 9 skipti og lýkur 27. febrúar.
Kennt er í Brekkubæiarskóla á Akranesi. Kennari: Valgarður Lyngdal Jónsson
Verð: 15.900,-
Verkalýðsfélag Akraness vill einnig minna fullgilda félagsmenn sína á að þeir eiga
rétt á námskeiðsstyrk sem nemur 75% af námskeiðsgjaldinu.
Kostnaður fullgiids féiagsmanns er því kr. 3.975,-
$
%
SÍMGNNTUNARMIÐSTÖÐIN
Á VGSTURLANDI
Upplýsingar og skráning:
Isíma 4372390 kl. 9-16
Með tölvupósti: svava@simenntun.is
- www.simenntun.is
w w w . v I f a
www.skessuhorn.is
Menningarsjóður
Sparisjóðs Mýrasýslu
Úthlutun styrkja fer fram á aðalfundi SPM
Umsóknir um styrki óskast sendar til SPM, Digranesgötu 2
merktar Menningarsjóður co/Steinunn Ásta Guðmundsdóttir
eða á póstfangið steinunnasta@spm.is fýrir í. febrúar 2007.
í umsókn komi fram tilefni umsóknar, fjárhæð sem sótt er
um og áætlaður heildarkostnaður við verkið.
Ekki verður úthlutað aftur úr sjóðnum 2007.
•SfSPM
Hugmyndaríkar konur...
... athugið!
Impra nýsköpunarmiðstöð heldur námskeiðið
Brautargengi
fyrir konursem vilja hrínda viðskiptahugmynd í
framkvæmd og hefja eigin atvinnurekstur
Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur:
• skrifi eigin viðskiptaáætlun,
• kynnist grundvallaratriðum er varða stofnun og rekstur fyrirtækis,
• öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að fýrirtækjarekstri,
markaðsmálum, fjármálum og stjórnun,
• öðlist tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlestra, leiðbeinendur
og aðra þátttakendur.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, verkefnavinnu og persónu-
legri handleiðslu.
impra nýsköpunarmiðstöð Námskeiðið verður haldið á eftirfarandi stöðum:
Höfn i Homafirðl, Akranesi og Akureyri
Námskeiðið hefst helgina 10. -11, febrúar. Síðan verður kennt einu sinni í viku frá kl, 12:30
-17:00 til 9. mal (útskrift 16. mai).
Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðu Impru (www.impra.is) Einnig má nálgast frekari
upplýsingar hjá Elínu Aradóttur í síma 460 7970 eða gegnum tölvupóst (elina@iti.is)■
Skráningu lýkur 26. janúar
Brautaraengi er styrkt af og sklpulagt I samráði við sveitarfélögin og fíeiri aðila á viðkomandl
stöðum.