Skessuhorn - 17.01.2007, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 2007
13
Brautargengi á Akranesi
Námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja
Impra nýsköpunarmiðstöð
gengst nú í áttunda sinn fyrir
svokölluðum Brautargengisnám-
skeiðum á landsbyggðinni. A
vormisseri 2007 er áætlað að halda
námskeiðið á þremur stöðum á
landinu, meðal annars á Akranesi.
Námskeiðin eru skipulögð í sam-
vinnu við sveitarfélög og fleiri að-
ila á hverjum stað og í þessu tilfelli
er það atvinnumálanefnd Akranes-
kaupstaðar sem hefur frumkvæði
að námskeiðahaldinu, í samstarfi
við Impru. Alls hafa á sjötta hund-
rað konur víðs vegar um land lok-
ið Brautargengisnámskeiði frá
upphafr.
Brautargengi er 75 kennslu-
stunda námskeið um stofnun og
rekstur fyrirtækja. Meðal mark-
miða námskeiðsins eru að nem-
endur öðlist hagnýta þekkingu á
þáttum er lúta að stofnun og
rekstri fyrirtækja, markaðsmálum,
fjármálum og stjórnun. Einnig
öðlast nemendur tengsl við at-
vinnulífið í gegnum fyrirlesara,
leiðbeinendur og aðra þátttakend-
ur. Lögð er áhersla á að kennarar
hafi reynslu og þekkingu af at-
vinnulífinu og miðli hagnýtri
þekkingu til nemenda. Þátttak-
endur fá einnig handleiðslu hjá
starfsmönnum Impru og hjá leið-
beinanda á hverjum stað á milli
kennslustunda.
Brautargengi er sérsniðið nám-
skeið fyrir athafnakonur sem hafa
viðskiptahugmynd sem þær vilja
hrinda í framkvæmd. Einu inn-
tökuskilyrðin eru að þátttakendur
hafi viðskiptahugmynd til að vinna
með, séu að hefja rekstur eða séu
nú þegar í rekstri. Einnig þurfa
þátttakendur að skuldbinda sig til
þess að vinna að gerð viðskiptaá-
ætlunar sinnar í heimavinnu
minnst 10 klst. á viku.
Skipulag námskeiðsins
á Akranesi
Námskeiðið hefst með sameig-
inlegu hópefli hópanna frá stöðun-
um þremur sem samtímis taka þátt
á landinu, helgina 10.-11. febrúar
nk. Staðseming verður ekki ákveð-
in fyrr en ljóst er hvort næg þátt-
taka næst á öllum stöðunum. Eft-
ir það verður kennt einu sinni í
viku, á miðvikudögum, kl. 12:30-
17:00, frá febrúar og fram í maí
(alls 14 skipti). Ollu jafnan verður
kennt á Bókasafninu á Akranesi.
Reynsla annarra
Boðið hefur verið upp á Braut-
argengisnámskeið reglulega í
Reykjavík síðan 1996 en á árinu
2003 var í fyrsta sinn boðið upp á
námskeiðið á landsbyggðinni.
Uppbygging námsins á lands-
byggðinni er sú sama og á höfuð-
borgarsvæðinu. Notað er sama
námsefni og er námskeiðið sam-
bærilegt að öllu leyti. A sjötta
hundrað konur hafa lokið Brautar-
gengisnámi frá upphafi, þar af 153
á landsbyggðinni. Samkvæmt
könnun sem gerð var á árinu 2005
er um helmingur kvenna sem tek-
ið hafa þátt í námskeiðinu frá upp-
hafi nú með fyrirtæki í rekstri.
Flest fyrirtækjanna eru með einn
til tvo starfsmenn, en meðalfjöldi
starfsmanna er níu. Eftirgrennsl-
an hefur ennfremur leitt í ljós að
einungis ein af hverjum 10 konum
hefur alfarið lagt á hilluna öll
áform um fyrirtækjarekstur. Þó
ekki hafi allar hafið rekstur eru
margar enn að vinna að undirbún-
ingi sinna viðskiptahugmynda.
Frekari upplýsingar
Námskeiðið er í umsjón Arn-
heiðar Jóhannsdóttur og Elínar
Aradóttur, verkefnisstjóra hjá
Impru á Akureyri, í samvinnu við
Rakel Oskarsdóttur starfsmann at-
vinnumálanefndar Akraneskaups-
staðar. Námskeiðsgjald er 38.000,-
kr. á hvern nemenda, en algengt er
að stéttarfélög hafi tekið þátt í
greiðslu námskeiðskostnaðar. Um-
sóknareyðublöð og frekari upplýs-
ingar má finna á vefsíðu Impru
(www.impra.is), en einnig er hægt
að hafa samband við verkefnis-
stjóra með tölvupósti (elina@iti.is)
eða hringja í síma 460 7970. Um-
sóknarfrestur er til 26. janúar
Eygló Dóra DavíSsdóttir, fiðlusnillingur úr Borgarfirði.
Fiðlusnillingur úr Norðurárdal
Eygló Dóra Davíðsdóttir, frá
Hvassafelli í Norðurárdal, er aðeins
18 ára en þegar búin að vinna sér
rétt til þess að spila einleiksfiðlu-
konsert með Sinfóníuhljómsveit Is-
lands. Blaðamaður hringdi í Eygló
Dóru og fékk hana til þess að segja
lesendum aðeins frá sjálfri sér,
ástríðunni gagnvart fiðluleik og
þeim mikla árangri sem hún er að
sýna á því sviði.
„Eg var fimm ára þegar ég hóf
nám í fiðluleik og sótti þá tíma hjá
Evu Tosik í Borgarnesi, en um ell-
efu ára aldur flutti ég mig um set,
fór til Reykjavíkur og nam hjá Lilju
Hjaltadóttur. Þegar grunnskólan-
um og skyldunni lauk sótti ég um í
Listaháskólanum, en var ekki með
stúdentspróf og þreytti því inn-
tökupróf, sem ég stóðst og er nú
undir styrkri handleiðslu Auðar
Hafsteinsdóttur,“ segir Eygló
Dóra.
Ahuginn brennandi
Eygló Dóra var lang yngsti nem-
andinn sem komst inn í Listahá-
skólann á sínum tíma og greinilegt
að slíkt krefst mikilla hæfileika, en
hverju þakkar hún þá?
„Eg hef alltaf haft brennandi
áhuga á fiðluleik en nauðsynlegt er
að hann sé til staðar ætli maður að
ná langt þar sem áhuginn er drif-
krafturinn. Eg æfi mig á hverjum
degi í u.þ.b. fjóra til fimm tíma þeg-
ar ég hef tíma,“ segir Eygló Dóra
og bætir við að nú eigi hún aðeins
eitt ár eftir í að útskrifast.
En hvernig kom það til að hún
spilaði einleiksverk með Sinfóníu-
hljómsveit íslands sl. fimmtudags-
kvöld?
„Það er haldin keppni á vegum
Listaháskóla Islands á hverju ári,
þar sem nemendum skólans og í
öðrum Tónlistarskólum býðst að
koma og spreyta sig. Sigurvegar-
arnir fá að spila með Sinfóníu-
hljómsveitinni og í ár urðum við
þrjú sem hlutum náð fyrir dóm-
nefndinni, einn úr Söngskóla
Reykjavíkur og tvö úr Listaháskól-
anum.“
Þegar blaðamaður ræddi við
hana fyrir tónleikana sl. fimmtudag
var hún að koma af æfingu. „Verkið
sem ég flyt er fiðlukonsert eftir
Max Bruch. Æfingin gekk mjög vel
og ég er full tilhlökkunar að takast
á við verkefhið“. Aðspurð um hvort
hún finni ekki fyrir kvíða eða sviðs-
skrekk, segir hún furðu róleg og
kvíðinn sé furðulítill, nánast eng-
inn.
I lok samtalsins spyr blaðamaður
Eygló Dóru um framtíðina og
hvert leiðin liggi? Hún segist stefna
í nám til Þýskalands en þar sé sér-
staklega mikil gróska í tónlistalíf-
inu, góðir kennarar og umhverfið
tilvalið fyrir áhugafólk í klassískri
tónlist.
KH
Vilt þú fá nýja glu[,nn9
Skerumú r textao gm ynstur t sandblás
allt eftirþ ínumó ski
Komumh eimo gm ælumo gs etjumu
PS. Kaupirþ úf ilmuí g luggann, færðþ ú
póstkassaskiltim eð2 5%a
Sími: 565-1
AiCyi y
HANDVERKSBAKARÍ “
Diyránesýiitu 6 - lioryarnesi - sínii: 437 lyxo
Vikutilboð frá föstudegi til fimmtudags:
Rúgbrauð 190 kr. verð áður 230.kr.
Tertur tilbunar 1 frostí!
Tilvaldar fyrir böndann
Verð 2.400 kr. verð áður 2800 kr
Helgarttlboð:
Nybökuð runstykki 2 fyrir 1
frá klukkan 7-12 laugardaga og 9-12 sunnudag
Akraneskaupstað ur
Síminn
Akraneskaupstaður í samvinnu við Orkuveitu
Reykjavíkur og Símann óskar eftir tilboðum í verkið
Akursbraut, Heiðarbraut, Höfðabraut
- gangstéttar o.fl.
Helstu magntölur eru:
Uppbrot.............................. 100 m2
Skurðir.............................. 300 m
Jöfnunarlag........................ 1.150 m2
Steyptar stettar................. 1.020 m2
Malbikaðar stéttar................... 130 m2
Þökulagning........................ 310 m2
Raflagnir............................ 400 m
Gagnaveita OR........................ 510 m
Símalagnir......................... 1.100 m
Verklok eru 29 júní 2007.
Útboðsgögn eru til sölu fra og með 16. jan. n.k.
hjá tækni- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar,
Dalbraut 8 á Akranesi fyrir kr. 5.000,-.
Tilboð verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn
31. jan. 2007, kl. 11:30.
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs