Skessuhorn - 17.01.2007, Blaðsíða 15
■ IM...
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 2007
15
Loðnir toppar
leynast víða
Bóndi nokkur var snöggur til
svara en oít talsvert seinhepp-
inn í tilsvörum sínum. Eitt sinn
var hann við slátt ásamt dóttur
sinni, gjafvaxta sem Asta hét og
stóð hún ofar í teignum. Kom
þá til hans í slægjuna nágranni
og tók að fárast yfir því hve
góða slægju hann hefði. „Þetta
er nú ekki mikið góði,“ svarar
bóndi, „en ef þú kæmir hérna
uppundir hana Astu mína, þá
gætirðu kannski séð loðinn
topp!“
Bleildr vangar
Ymis konar óáran hefur
gengið yfir Grundfirðinga að
undanförnu. A Þorláksmessu
var svo mikið rok á svæðinu að
ekki var stætt og menn þurftu
að njörfa niður eigur sínar til að
ekki hirfu á haf út. Nú ganga
menn þar um með fölbleika
vanga og eiga tíðar heimsóknir í
nágrannabæina til að sækja sér
súrefni! Hvort það hefur fokið á
haf út með rokinu er erfitt að
segja en eins og oft áður hefur
ein bára ekki verið stök í
Grundarfirði.
Gróði af því
að drekka
Piltar tveir í Borgarfirði hafa
legið með hausa sína í bleyti
vegna vinnu sem krefst mikillar
hugsunar. Til að létta sér störf-
in og lundina hafa þeir eirmig
sopið drjúgt af öli. Tarnir stórar
og miklar voru teknar og sjálf-
sagt að reyna að fá eitthvað
skilagjald fyrir umbúðirnar sem
eftir lágu og safnast höfðu fyrir
eftir haustið. Ekki treystu þeir
sér til að koma magninu fyrir í
bíl sínum svo gripið var til þess
ráðs skömmu fyrir jól að fá léð-
an sturtuvagn til flutninganna.
Er í Borgarnes kom, féllust
starfsmönnum Fjöliðjunnar
hendur og báðu um lengri ffest
en venja er og kváðust ekki geta
lofað talningu á dósunum fyrr
en eftir jól, slíkt var magnið.
Umbúðirnar gáfu heilar tuttugu
og fimm þúsund í vasann og var
hermt eftir þeim kumpánum að
það væri stórgróði af fyrirtæk-
inu.
Aldrei dáið
ráðalaus
Leifur Finnbogason bóndi í
Hítardal var skarpur maður og
ráðagóður. Þau hjón kunnu að
gera mikið úr litlu, eins og
margir af þessari kynslóð. Leif-
ur safnaði ekki holdum, og var
snarpholda alla sína tíð. Eitt
sinn barst honum bréf ffá Skatt-
stjóra þar sem fundið er að bók-
haldi hans. Gefið var í skyn í
bréfinu að ekki gæti verið að
búið hefði svona litlar tekjur,
eitthvað hlyti að vera gruggugt!
Leifur var ekki að gera mál úr
litlu og sendi Skattstjóra mynd
af sér. Er ekki getið um að fleiri
athugasemdir hafi borist úr
þeirri átt.
Ekki meira úr sveitinni að
sinni.
Umsjón: Birna
Konráðsdóttir
Udán Bókasafns Akraness svipuð milli ára
Starfsemi Bókasafns Akraness var
með hefðbundnum hætti árið 2006
og aðsókn mjög góð. Utlánuð safn-
gögn voru 52.325 gögn, sem er
mjög svipað og árið 2005, en þá
voru útlán 52.831 safngögn. Þetta
samsvarar því að hver Akurnesing-
ur hafi fengið um 8,88 safngögn að
láni yfir árið sem eru aðeins færri
eintök á íbúa en árið 2005, en þá
lánuðust úr 9,1 gögn. Ibúum hefur
fjölgað í bænum frá fyrra ári og má
því segja að útlánin dragist örlítið
saman.
Sem fyrr eru bækur vinsælastar
meðal lánþega eða um 75% þess
sem lánað var út. Næst koma tíma-
rit (10%) og þá hljóðbækur (9%).
Bækur Amaldar Indriðasonar eru
vinsælastar hjá
viðskiptavinum
Bókasafns Akra-
ness eins og í
fyrra og má segja
að þær séu aldrei
uppi í hillu. Utlán
og gestakomur
eru nijög jöfh allt
árið en stærstu
útlánamánuðirnir
voru janúar, mars og júlí.
Gestakomur í Bókasafii Akraness
voru taldar sérstaklega tímabilið
maí til ágúst og komu að jafiiaði um
112 gestir á dag í safnið og sam-
kvæmt því eru gestir um 32.000 á
ári.
kaffítölvur safnsins og eru m.a. er-
lendir verkamenn duglegir að not-
færa sér þá þjónustu.
Safnkostur bókasafnsins er um
55.000 safhgögn, bækur, tímarit,
myndefni og tónhst og er leitarbær
á www.gegnir.is.
Margir gestir sækja daglega í net-
('fréttatilkynning)
Dalabúð klædd
Sveitarstjórn Dalabyggðar gerir
ráð fyrir því í fjárhagsáætlun sveit-
arfélagsins að verja ríflega sjö millj-
ónum króna til að klæða utan hluta
félagsheimilisins Dalabúðar. Þetta
er sá hluti hússins þar sem tónlist-
arskólirm hefur aðstöðu. Engin lán
eru tekin fyrir þessum framkvæmd-
um frekar en öðrum þeim sem í
gangi eru í Dalabyggð þar sem
jöfnunarsjóður kemur að fram-
kvæmdum í sveitarfélaginu upp á
tæpar 139 milljónir króna á þessu
ári.
BGK Dalabúð er til vinsfí'i á myndinni en skólinn t.h. Ljósm. BAE.
Samdráttur í afla á Vesturlandi
á síðasta ári
A Vesturland komu á land á síðasta ári 51 tonn aflúðu.
Hér erjóhannes Eyleifsson á Leifa AK með nokkur kíló af
þeim afla.
Á síðasta ári var
landað 87.021 tonni
af sjávarfangi í höfn-
um á Vesturlandi.
Árið áður var aflinn
98.067 tonn og er
samdrátturinn því
rúm 11 % á milli ára.
Af helstu fisktegund-
um má nefna að
þorskafli dróst sam-
an á milli ára úr
31.678 tonnum í
27.202 tonn eða um
rúm 14%. Ysuafli var
11.297 tonn í fyrra
og hafði dregist sam-
an um rúm 7% og
loðnuafli dróst sam-
an úr 31.220 tonnum
í 9.929 tonn eða rúm
68%. Kolmunnaafli var hins vegar
14.527 tonn í fyrra en var enginn
árið áður. Þá jókst ufsaafli á milli
ára úr 3.356 tonnum í 4.665 tonn
eða rúm 39%.
Af einstökum höfnum má nefna
að á Akranesi varð samdráttur í
afla. Hann var 47.958 tonn árið
2005 en 41.220 tonn á nýliðnu ári.
I Rifi var landað 14.476 tonnum á
síðasta ári en árið áður var aflinn
13.425 tonn. I Olafsvík var landað
13.468 tonnum en 12.510 tonnum
árið áður. I Grundarfirði var á síð-
asta ári landað 12.958 tonnum en
árið áður var aflinn 16.748 tonn. I
Stykkishólmi stóð aflinn nánast í
stað á milli ára. Þar var í fyrra
landað 3.613 tonnum en 3.641
tonni árið áður.
HJ
Sýning í Leifssafn í sumar
Stefnt er að því að setja irm einhverja sýn-
ingu í Leifssafti í Búðardal nk. sumar. Áfanga-
lok eru að verða í uppbyggingu á húsinu sem
í grunninn er gamla kaupfélagið í Búðardal.
Þá er lokið tveimur þriðju af áætlaðri upp-
byggingu á húsinu sem nefnt hefur verið
Leifssafn.
Að sögn Gtmnólfs Lárussonar, sveitarstjóra
Dalabyggðar hefur ekki enn verið ákveðið
hvaða sýning verður ofan á því margt kemur
til greina. Einnig er verið að ræða um að setja
upplýsingamiðstöð ferðamála í húsið. BGK
Frá malbikunarfi'amkvæmdum við Gamla kaupfélagið - Leifssafn t Búðardal
á sl. ári.
Friðþjófur viniiur að málefiium
Ljósmyndasafiis
Bæjaráð Akraness hefur sam-
þykkt tillögu menningarmála- og
safnanefndar um að leggja niður
starfshóp, sem skipaður var á síð-
asta ári til að vinna að málum
Ljósmyndasafns Akraness. Jafn-
framt hefur forstöðumanni safns-
ins verið falið ásamt Friðþjófi
Helgasyni að vinna þá vinnu sem
starfshópnum var upphaflega falið
og leggja tilögur sínar fyrir nefnd-
ina.
Það var á fyrri hluta síðasta árs
sem Friðþjófur, Jón Gunnlaugsson
og Guðni Hannesson voru skipað-
ir í umræddan starfshóp. Hópnum
var ætlað að móta samþykktir fyrir
safnið, móta stefnu um hvers kon-
ar myndum verður safnað, hvernig
safnið taki við væntanlegum safn-
munum og hvernig myndir verði
settar fram, skráðar og varðveittar.
Þá var hópnum einnig falið að
ákveða hvernig farið skuli með
höfundarrétt, verðskrá og fleiri at-
riði er þurfa þykir.
HJ
MODEL
AKRANESI