Skessuhorn - 17.01.2007, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007
JkissStmö^M
Þarf heilt þorp til þess
að ala upp bam
Leikskólastjórinn Sigríóur Herdís og aöstoðaleikskólastjórinn, Matthildur Soffía. A afmœli
leikskólans var Matthildi fierð blóm í tilffni starfsaldursins, sem erjafn aldri skólans.
Eins og fram kom í síðasta blaði
Skessuhorns, átti leikskólinn á
Grundarfirði 30 ára afmæli fyrir
skömmu þar sem mikið var um
dýrðir. Af því tilefni fengum við
leikskólastjórann, Sigríði Herdísi
Pálsdóttur og elsta starfsmann skól-
ans, Matthildi Soffiu Guðmunds-
dóttur í örlítið spjall, fræddumst um
upphafið á leikskólastarfinu, helstu
áherslur og þá trú marma í Grundar-
firði að það þurfi fleiri en foreldrana
til þess að ala upp bam.
„Það voru upphaflega Rauða
kross sjálfboðaliðar sem komu leik-
skólanum á laggirnar, ásamt sveitar-
félaginu," útskýrir Matthildur, er
hún er spurð um upphafið á starf-
semi skólans. „Starfshópur á vegum
deildarinnar málaði og hreinsaði
húsið, bjó til leikföng og fleira, en
hann var síðan opnaður í janúar
1977. Við emm ákaflega stolt af af-
mælisbarninu, en það er samdóma
álit allra að það hefur þroskast vel og
eram mjög bjartsýn með ffamhald-
ið,“ segir Sigríður Herdís.
„Hér í Grundarfirði era bæjarbú-
ar okkur mjög velviljaðir og foreldr-
ar eiga sérstakt hrós skilið fyrir hvað
þeir eru duglegir að mæta á allar
uppákomur sem við bjóðum til. Það
sýnir okkur einfaldlega áhugann á
því sem við erum að gera og þeirri
stefnu sem við aðhyllumst.“
Sigríður Herdís útskýrir helstu
markmið skólans: „I leikskólanum
er barnið í brennidepli og starfs-
hættir taka mið af þroska og þörfúm
hvers einstaklings. Til þess að svo
megi verða er leikskólastarfinu skipt
í ýmiskonar leiki, nám og samveru-
stundir bæði úti og inni. Starfsemin
byggir mikið á ffjálsum leik, dagleg-
um venjum, söngstundum, sam-
verustundum, útiveru og fleiru“.
Fáar en skýrar reglur
Þegar blaðamaður spyr Matthildi
hvort henni finnist böm hafi breyst
á einhvern hátt í gegnum tíðina seg-
ir hún svo ekki vera. „Eg er nú búin
að starfa við þetta í þrjátíu ár og get
ekki fúndið fyrir því að börn séu á
nokkurn hátt öðravísi en áður. Sam-
félagið hefúr þó vissulega breyst og í
dag finnst mér meiri vakning og
áhugi á leikskólastarfinu en áður
tíðkaðist og það auðveldar kennur-
unum vissulega starfið."
Stöllurnar segja frá þeirri fjöl-
skyldustefnu sem bæjarstjórn
Grundarfjarðar samþykkti á síðasta
ári, þar sem ákveðið var að foreldrar
grunn- og leikskólabarna skyldu
samræma uppeldisaðferðir á böm-
um staðarins. Námskeið eru haldin
fyrir foreldra og starfsmenn í upp-
Bömin voru meó heilmikla söngdagskrá í tilefni afnuelidagsins.
/
,yA moi'gim, segir sá lati...
Lífið er hreint fúllt af tækifærum.
Eitt slíkt kom upp í hendur mínar á
miðvikudag í hðinni viku. Þannig er
að ég kaupi hið ágæta héraðsfrétta-
blað Skessuhorn sem oftast kemur
út nefúdan vikudag. Yfirleitt kíki ég
yfir blaðið fljótlega effir að það
kemur, svo framarlega sem ég finni
gleraugun mín. Rúsínuna í pylsu-
enda þessa blað er langoftast „Pistill
Gísla." Gleymi ég mér þann hluta
til kvölds og tek með mér í rúmið.
Það er fátt betra en að sofúa með
bros á vör, því Gísli er húmoristi hin
mesti og ekki síður góður penni.
Þennan umrædda fimmmdag var
minn maður alveg glataður og mér
varð ekki svefúsamt um nóttina. Þar
talar Gísli um þann hóp öryrkja sem
hann kallar kerfisffæðinga. Telur þá
svíkja út bætur og segir orðrétt:
„Þar á ég við þá sem í raun og vera
eru fúllffískir, líkamlega allavega, en
tekst með einhverjum hætti að
verða sér út um viðeigandi vottorð
sem duga sem bevís upp á bætur.“
Við þetta hef ég margar athuga-
semdir. Hér effir nota ég heitið ör-
yrki og lífeyrisþegi í merkingunni:
Fólk sem ekki getur unnið eða fær
ekki vinnu sem það getur unnið og
framfleitt sér af vegna veikinda
sinna eða fötlunar, áður en til hefð-
bundins effirlaunaaldurs kemur.
Stærsti einstaki hópur öryrkja er
fólk með geðraskanir sem allmennt
eru ekki taldar til líkamlegra sjúk-
dóma, þó um það séu stundum
deildar meiningar. Annar stærsti
hópur öryrkja er það vegna stoð-
kerfisvandamála t.d. gigtarsjúkdóma
sem iðulega eru ósýnilegir sjúkdóm-
ar, þ.e. það sést ekki á manneskjunni
að hún sé með sjúkdóm. Eg get
ekki sætt mig við, þó Gísli kunni að
vera að gera að gamni sínu, að þá
geri hann það á kostnað fólks sem
oft á mjög erfitt með að verja sig op-
inberlega og hefur í mörgum tilfell-
um upplifað mikla niðurlægingu
vegna veikinda sinna og matferlis til
örorkubóta.
Eg er auðvitað ekki að mæla því
bót að fólk hafi rangt við hvorki í
þessu né örðu. En sjálf dreg ég það í
efa að sá hópur sem hefur rangt við
í hópi öryrkja sé stærri en almennt
gerist með manneskjur. A máli
kirkjunnar væri það ef til vill orðað
eitthvað á þessa leið: Ég hef ekki trú
á því að öryrkjar séu syndugri en
aðrir menn.
Svört vinna er samfélagsmein sem
mikilvægt er að uppræta eins og
kostur er. Ég velti líka vöngum yfir
þeim fyrirtækjum sem borga fólki
svart fyrir fulla vinnu, eitthvað er
ekki í lagi með bókhald og fjármál
þeirra fyrirtækja ef satt reynist.
Einnig ef fyrirtæki eða stofúanir
borga fólki laun á annarra nafni,
eins og Gísli nefúir í umræddum
pisli. Af hverju hefur þá sá einstak-
lingur raunverulega ffamfærslu sem
launin eru skrifuð á? Er sá sem
launaseðillinn er skráður á að fá út
úr þessu aukin lífeyrisréttindi og
borga hærri skatta? Eg botna bara
ekki í þessu. Er Gísli með auka-
vinnu hjá Skattrannsóknarstjóra og
er þá ekki rétt að sú stofnun fari yfir
málið? Er þetta ekki skjalafals? Spyr
sá sem ekki veit.
Hitt veit ég að enginn fer til
lengri tíma ver út úr svartri vinnu en
sá sem hana vinnur. Atvinnurekand-
inn er að hafa af viðkomandi dýr-
mæt og stundum ómetanleg félags-
leg réttindi, eins og veikindarétt, líf-
eyrisrétt, trygginabætur, stéttarfé-
lagaðild o.s.frv. Þetta er þekkt um
allan heim og mikið samfélagsmein
m.a. í Bandaríkjunum. Eg skil held-
ur ekki hvernig þetta má vera í mikl-
um mæli þar sem atvinnuþátttaka á
Islandi er með því mesta sem gerist
í heiminum og vinnutími mjög
langur. Oryrkjum hefur að sönnu
fjölgað á undangengum árum hér á
landi en eru hlutfallslega færri en á
hinum Norðurlöndunum.
A flestan hátt er ég samt glöð og
þakklát að Gísli skrifaði þennan, að
mínu mati vonda pistil, og rændi
mig hluta af nætursvefninum um
leið, því ég hef lengi haft það á verk-
efúaskrá minni að skrifa um málefni
langveikra og fatlaðra en hummað
það ffarn af mér kannski af einskærri
leti.(Eg man reyndar eftir að hafa
heyrt haft eftir geðlækni sem kenndi
Bragi Þór Sigurdársson og Gunnar Ingi Gunnarsson, framkvœmdastjóri Rafteikningar
ásamt Konráði Andréssyni í Borgamesi.
Rafteikning hf. fagn-
ar útibúi á Akranesi
Á föstudaginn var bauð Rafteik-
ing hf. viðskiptavinum sínum til
móttöku þar sem fagnað var opn-
un útibús fyrirtækisins á Akranesi.
Reksturinn hófst þó þann 1. sept-
ember í haust þegar fyrirtækið
eldisstörfum þar sem kynntar era
reglur sem eiga það sameiginlegt að
vera fáar og einfaldar en mjög skýr-
ar. Einn af helstu áhersluþáttunum
eru - að það þarf heilt þorp til þess
að ala upp bam,“ segir Matthildur.
Styrkur úr Þróunarsjóði
I lokin upplýsir Sigríður Herdís
blaðamann um nýlegan styrk sem
leikskólinn hlaut úr Þróunarsjóði
menntamálaráðuneytisins. Hann
var veittur fyrir ferlamöppur, en
með þeim er stefút að markvissu
upplýsingaflæði milli skóla og
heimilis. Sérstakur vinnuhópur
innan leikskólans mun vinna að
gerð þessara mappa og voru menn
að vonum afar glaðir með styrkinn.
Hann hefði mikilvæga þýðingu fyr-
ir skólann og væri enn frekari
hvatning á því góða starfi sem þar
er unnið.
KH
keypti rekstur teiknistofu þeirrar
er Bragi Þór Sigurdórsson raf-
virkjameistari rak um árabil á
Akranesi. Bragi Þór er útibússtjóri
Rafteikningar á Akranesi.
Rafteikning er ein af stærstu
verkfræðistofum landsins með yfir
40 ára reynslu á sviði rafmagns-
verkfræði. Helstu viðfangsefni
stofunnar eru á orku- og iðnaðar-
sviði svo og hönnun rafkerfa í
stórum sem smáum byggingum.
Sem dæmi má nefna að starfsmenn
fyrirtækisins unnu að hönnun
Kárahnjúkavirkjunar.
Gunnar Ingi Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Rafteikningar segir
að með opnun útibús fyrirtækisins
á Akranes vilji það sinna sem best
þeim sívaxandi markaði sem á
Vesturlandi er enda hafi fyrirtækið
á að skipa úrvals starfsfólki undir
stjórn Braga Þórs. Bragi Þór segir
verkefni stofunnar næg og starfs-
menn hennar á Akranesi séu þrír í
dag og fjölgi í fjóra innan tíðar.
Hann segir útibúið sinna að mestu
þörfum viðskiptavina í sínu næsta
nágrenni en einnig hafi stofan
sinnt stórum verkefnum á höfúð-
borgarsvæðinu.
HJ
«
læknanemum að það mætti færa fyr-
ir því nokkur rök að leti væri sjúk-
dómur, í það minnsta hafi leti sum
þau sömu einkenni og þunglyndi
þar sem vantar allan vilja til að lifa
athafúasömu og skapandi lífi og fólk
hefur verið rænt allri löngun til að
huga að sjálfum sér og sínum í sum-
um tilfellum).
Geðraskanir af ýmsum toga eru
þau veikindi sem hrekja fólk af
vinnumarkaði í okkar heimshluta
hvað mest. Þessir sjúkdómar eru
lífshættulegir og valda ekki einungis
þeim sem af þeim þjást hörmunum
heldur líka fjölskyldu þeirra. Þessi
sjúkdómaflokkur er því sérstaklega
erfiður en reynslan hefur sýnt að
fordómar draga úr möguleikum til
að ná árangri í meðferð, en opin,
upplýst og fordómalaus umræða og
umhverfi hjálpa hinum þjáðu og
þeim er næst þeim standa mest.
Nauðsynlegt er að heilbrigt um-
hverfi haldist í hendur við fjöl-
breytta heilbrigðis- og félagsþjón-
ustu í nærsamfélagi viðkomandi.
Allra best er að þjónustan sé ein-
staklingsmiðuð, þ.e. að þjónustan sé
veitt í samvinnu við viðkonandi ein-
stakling, fjölskyldu eða hóp. Fagað-
ilar hafa þekkingu og reynslu á sínu
sviði en hver og einn þekkir sjálfan
sig á þann hátt að enginn annar er
þar ffernri. Þessi aðferð er tímaffek
og krefjandi í upphafi en sparar
mikinn tíma og fyrirhöfú síðar í
ferlinu, auk
þess sem hún
byggir upp
traust milli að-
ila ef vel er að
staðið. Traust-
ið er ein af
grunnforsendum samstarfsins.
Eg hef verið öryrki í um áratug og
af líkum haft miklu meiri tíma og
betri aðstæður til að kynna mér
þetta málefúi en Gísli, sem mér
virðist ef marka má afköst hans í
fjölmiðla- og skemmtanabransan-
um, vera störfum hlaðinn maður,
með fullri virðingu fyrir afköstum
dugnaðarforka eins og Gísla Einars-
sonar úr Lundareykjardal. Eg hef
tekið þetta verkefni mitt alvarlega
og rejmt að kynna mér flestar hliðar
þess og orðið margs vísari sem lík-
lega er best að gera ffekari skil síðar
í annarri grein eða greinaflokki.
Hér er best að láta staðar numið
þannig að ritstjóri Skessuhorns
treysti sér til að birta greinarkornið.
Eg vona líka að Gísla heilsist vel,
hann fái ekki letikast og haldi áfram
að færa mér skemmtilega pistla í
rúmið á miðvikudagskvöldum og ég
geti svifið inn í nóttina með bros á
vör.
Jóhanna Leópoldsdóttir.