Skessuhorn - 17.01.2007, Blaðsíða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007
ðK£saunu>.
Vesdensk hrossarækt í mikilli framför
Hrossaræktarsamband Vestur-
lands gekkst fyrir folalda- og
trippasýningu á Mið-Fossum í
Borgarfirði sl. laugardag. Mikill
áhugi var fyrir sýningunni bæði
meðal ræktenda og ekki síður al-
mennings, sem þrátt fyrir erfiða
færð, troðfylltu áhorfendabekki í
höllinni. 64 efnileg ungviði fædd
árin 2005 og 2006 voru sýnd.
Vart geta menn kosið sér betri
aðstöðu til sýningarhalds en nú er
risin á Mið Fossum. Um helmingi
fleiri ungviði voru sýnd nú í ár en á
sambærilegum sýningum síðari ára.
Af einstökum ræktunarbúum komu
flestir gripirnir frá Skáney, eða 13
talsins og 10 frá Mið-Fossum og
Fossabrekku bæjtmum. Af einstök-
um stóðhestum átti Kolfinnur ffá
Kjamholtum flest afkvæmi á sýn-
ingunni eða 6 talsins, undan Sólon
frá Skáney voru 4 og stóðhestarnir
Funi frá Skáney, Aðall frá Nýja Bæ,
Grunur ffá Oddhóli og Aron frá
Strandarhöfði áttu 3 afkvæmi hver.
Dómarar á sýningunni voru þeir
Þorvaldur Kristjánsson og Sigbjöm
Bjömsson.
Sýnilegur árangur
af fjölbreyttu
ræktunarstarfi
Mikil breidd var í sýningunni;
afkæmi t.d. frá mörgum ræktunar-
búum, undan samtals 38 stóðhest-
um. Það var samdóma álit þeirra
áhorfenda sem blaðamaður ræddi
við að menn þyrftu ekki að kvíða
framtíð hrossaræktar á Vesturlandi
miðað við gæði sýningarinnar og
þeirrar breiddar sem nú er í rækt-
un framtíðarhrossa í landshlutan-
um. Mikið af sérlega efnilegum
folöldum og trippum vora leidd
fram á völlinn. Þá er full ástæða til
að hrósa stjórn Hrossaræktarsam-
bandsins fyrir að standa að sýningu
af þessu tagi, en þar fer formaður-
inn, Bjarni Marinósson á Skáney
fremstur í flokki. Sjálfur gaf Bjarni
ekkert eftir á sjálfri sýningunni
þegar hann hljóp á eftir hverju
ungviðinu á fætur öðru til að
áhorfendur gætu sem best séð
kosti þeirra og sló þannig mörgum
yngri sýnandanum við, léttur á
fæti. Bjarni hefur verið í forsvari
fyrir stjórn Hrossaræktarsam-
bandsins sl. 15 ár og sem slíkur
haft t.d. forystu um að fá til notk-
unar í landshlutanum úrval góðra
Ahorfendur völdu Snarpfrá Eyri fallegasta gripinn á sýningunni. Hér er hann ásamt Þytfrá Skáney sem varð í öfrru sæti íflokki hesta
fieddir 2005.
Léttur í spori, þráttfyrir acf vera kominn hátt á sextugsaldur, rekur Bjami hér á eftir einu affolöldunum úr eigin ræktunarhópi.
stóðhesta. Vafalaust á elja hans og
áhugi í þeim efnum stóran þátt í að
ræktendur á Vesturlandi eru að ná
mun sýnilegri árangri í ræktuninni
í samanburði við síðasta áratug lið-
innar aldar. Arangur þessarar
vinnu hefur að mati undirritaðs
hvergi endurspeglaðist betur en á
sýningunni sl. laugardag. Með
Bjama í stjórn HV em þeir Sig-
björn á Lundum og Gísli í Hömlu-
holti. MM
Helstu úrslit
Áhorfendur völdu glæsilegasta gripinn á sýningunni Snarp ffá Eyri.
Hann er jarpur að lit, stór og fasmikill með sérlega fallega ffambygg-
ingu og ekkert virðist skorta á viljann. Hann vann einnig folaldasýning-
tma í fyrra. Snarpur er undan Aðli ffá Nýja Bæ og Speki ffá Haffafells-
tungu. Eigandi og ræktandi er Hrossaræktarbúið að Eyri sem Benedikt
Líndal og fleiri era í forsvari fyrir. Eigendur efstu gripanna fengu við-
urkenningar og í aðalverðlaun í hverju flokki gáfu Sigbjörn og Ragna á
Lundum II folatolla undir efhilega stóðhesta sína.
Hryssur fæddar 2005 (7 sýndar):
1. Birta frá Fossabrekku, F. Adam. M. Aríel firá Höskuldsstöðum. Eig.
Armann Armannsson.
2. Sól ffá Fossabrekku. F. Orri. M. Saga ffá Stangarhöfða. Eig. Armann
Armannsson.
3. Orka ffá Skáney. F. Ftmi. M. Glóðarblesa frá Skáney. Eig. Bjami
Marinósson.
Hestar fæddir 2005 (11 sýndir):
1. Snarpur frá Eyri. F. Aðall. M. Speki ffá Haffafellstungu. Eig. Hrossa-
ræktarbúið Eyri.
2. Þytur ffá Skáney. F. Gustur frá Hóli. M. Þóra ffá Skáney. Eig. Bjarni
Marinósson.
3. Álfgrímur frá Gullberastöðum. F. Álfur ffá Selfossi. M. Eir ffá Gull-
berastöðum. Eig. Karí Berg.
Hryssur fæddar 2006 (23 sýndar):
1. Védís ffá Hellubæ. F. Álfasteinn frá Selfossi. M. Vaka frá Hellubæ.
Eig. Gíslína Jensdóttir.
2. Rún frá Skáney. F. Funi ffá Skáney. M. Rán ffá Skáney. Eig. Steinunn
Þorvaldsdóttir.
3. Elja ffá Skáney. F. ? M. Þrenna ffá Skáney. Eig. Steinunn Þorvalds-
dóttir.
Hestar fæddir 2006 (23 sýndir):
1. Hljómur frá Laxholti. F. Kolfinnur ffá Kjarnholmm. M. Mist ffá
Hvítárholti. Eig. Toddi Hlöðversson.
2. Takmr ffá Stóra Ási. F. Bjarmi ffá Lundum. M. Nóta ffá Stóra Ási.
Eig. Lára og Kolbeinn í Stóra Ási.
3. Loffur frá Skáney. F. Kolfinnur. M. Sokka ffá Skáney. Eig. Bjarni
Marinóssson.
Karí á Gullherastöðum, Bjami á Skáney og Benni á Stað, eigendur hæst dæmdu hest-
annafi 2005.
Eigendur hæst dæmdu hestfolaldanna. Frá vinstri eru Lára Gísladóttir,
Bjami á Skáney og Toddi Hlöðversson.
Þær áttu hæst dæmdu hryssumar f. 2006; systumar Steinunn og Sigrtður
í Hjarðarholti, sevt unnu sér innfolöld sín í vinnumennsku á Skáney í
sumar, og Gíslína á Helluhæ eigandi Védísar. Hjá henni er sonurinn
Sveinbjöm Sigurðsson.
Auðvitað var gamla kempan hún OUa í Nýja Bæ mætt með hluta úr
ræktunarhópi sínum.
Hér sýnir Þórdís Fjeldsted frá Ölvaldsstöðum folald sitt Bassa. Eigandinn
situr sjálf móðurina Víólu ogfór vel á með þeim stöllum.
Armann hóndi á Miðfossum og Bjami á Skáney áttu hæst dæmdu
hryssumar í eldri árganginum.
Hæst dæmdu hryssumar frá 2006. Frá vinstri Védtsfrá Hellubæ, Rún
og Eljafrá Skáney.