Skessuhorn - 17.01.2007, Blaðsíða 23
SSjESSU|g©i2KI
MIÐVIKUDAGUR 17. JANUAR 2007
23
Sláðalyftan biluð í
Grundarfirði
Enn er að koma í
ljós áhrif Þorláks-
messuhvellsins sem
gekk yfir í Grundar-
firði. Ekki var aðeins
að rúður brotnuðu í
húsum víða um bæinn
heldur kom nýlega í
ljós að miðjumastrið í
skfðalyftu bæjarins féll
um koll. Oljóst er
hvenær ráðist verðttr í
viðgerðir. Skíðalyftan er staðsett
fyrir ofan íþróttavöll bæjarins og
ekki hlaupið að því vegna bratta að
komast með tæki til að reisa mastr-
ið og athuga skemmdir. Grundfirð-
ingar hafa verið duglegir að brúka
skíðin þegar nægur snjór hefur ver-
ið í brekkunum og er því þessi bil-
un bagaleg íyrir skíðaáhugafólk.
KH/ljósm. Sverrir
Skagamemi í eldlínunni
á landsliðsæfi n gum
Um liðna helgi voru úrtaksæf-
ingar hjá tveimur af yngri landslið-
um karla í knattspyrnu og þar voru
nokkrir ungir Skagamenn í eldlín-
unni. Lúkas Kostic þjálfari lands-
liðs skipað leikmönnum yngri en
17 ára valdi Trausta Sigurbjörns-
son, Ragnar Þór Gunnarsson,
Ragnar Leósson og Viktor Ymi El-
íasson leikmenn IA til æfinga. Þá
valdi Kristinn Rúnar Jónsson þjálf-
ari landsliðs skipað leikmönnum
yngri en 19 ára til æfinga þá Skarp-
héðin Magnússon, Guðmund
Böðvar Guðjónsson og Isleif Örn
Guðmundsson. HJ
Stúku þarf að stækka til að
halda keppnisleyfi
Knattspyrnufélag IA hefur lagt
íyrir bæjarráð Akraness tvær dllögur
að fjölgun stúkusæta við knatt-
spymuvöllinn á Jaðarsbökkum sem
er forsenda þess að félagið haldi
keppnisleyfi í efstu deild Islands-
mótsins í knattspyrnu. Eins og fram
hefur komið í fréttum Skessuhorns
þarf að fjölga stúkusætum við völl-
inn samkvæmt reglum leyfiskerfi
Knattspymusambands Islands sem
byggt er á reglum evrópska knatt-
spyrnusambandsins. Nú eru 768
stúkusæti við völlin en þeim þarf að
fjölga í 1.000 talsins til þess að IA
haldi keppnisleyfi í efstu deild. Fram
kemur í bréfi Knattspymufélags IA
til bæjarráðs að engar líkur séu til
þess að þessar forsendur breytist.
Með vísan í fyrri samþykktir bæj-
arráðs hefur IA unnið eins og áður
sagði tvær tillögur að lausn málsins.
I þeirri fyrri er gert ráð fyrir að 360
sætum verði komið fyrir í graspöll-
um norðan við leikvöllinn. Lengd
mannvirkisins verði um 30 metrar
og breidd þess um 6,5 metrar. Gert
er ráð fyrir að nota til verksins for-
steyptar einingar ffá Smellinn ehf.
Aætlaður kostnaður við þessa tillögu
er um 24,8 milljónir króna en til
þess að hún geti orðið
að veruleika þarf að
breyta deiliskipulagi
svæðisins.
I síðari tillögunni
er gert ráð fyrir að
núverandi stúka við
sunnanverðan völhnn
verði stækkuð eins og
áður hefur verið
kynnt en þó án
skyggnis. Aætlaður
kostnaður við þessa leið er um 25,5
milljónir króna. Þar er þó gerður
fyrirvari varðandi jarðvinnu og
fleira. I bréfi IA kemur ff am að kost-
urinn við þessa tillögu sé sá að teikn-
ingar, deihskipulag og byggingar-
leyfi liggi fyrir þannig að ekkert sé
að vanbúnaði með að hefja ffam-
kvæmdir þegar minniháttar breyt-
ingar hafa verið gerðar á fyrirliggj-
andi teikningum.
Félagið telur þó hentugra að fá
aðstöðu fyrir áhorfendur norðan við
völlinn „enda verði sátt um staðsetn-
inguna m.t.t. annarra mannvirkja á
svæðinu í ffamtíðinni og ekki verði
tafir á ffamkvæmdum vegna breyt-
inga á deiliskipulagi" segir orðrétt í
bréfi félagsins.
Óskað er eftir því að tekin verði
ákvörðun í málinu sem allra fyrst þar
sem félagið þurfi að gera grein fyrir
stöðu málsins í gögnum sem senda
þarf leyfisnefnd KSI í janúar eða
byrjtm febrúar. Sú nefnd kemur
saman í byrjun mars til þess að
ákveða um keppnisleyfi félaga í efstu
deild. „Grundvallaratriði í því efni
er að fyrir liggi að ffamkvæmdir
hefjist við nauðsynleg mannvirki
fljótlega og að krafa um fjölda sæta á
Jaðarsbakkavelli verði uppfyllt áður
en Islandsmótið hefst um miðjan
maímánuð" segir í bréfi félagsins.
Bæjarráð vísaði málinu til um-
sagnar ffamkvæmdanefndar mann-
virkja hvað staðsetningu mannvirk-
isins varðar. HJ
Erlendu leikmennimir
Erlendu leikmennirnir unnu 22
stiga sigur á þeim íslensku, 142-
120, í Stjörnuleik Körfuknattleiks-
sambandsins, sem ffam fór síðdegis
13. janúar í DHL Höllinni. Fjöl-
miðlar völdu fyrst sjö menn í liðið.
Meðal þeirra sem valdir voru má
nefna Hlyn Bæringsson og Sigurð
Þorvaldsson leikmenn Snæfells.
Hlynur gaf hins vegar ekki kost á
sér í leikinn. Benedikt Guðmunds-
son þjálfari liðsins valdi því átta
menn til viðbótar og meðal þeirra
voru Axel Kárason og Pétur Már
Sigurðsson leikmenn Skallagríms.
Þórsarinn Kevin Sowell var val-
inn maður leiksins en hann skoraði
27 stig fyrir erlenda liðið. Magnús
Þór Gunnarsson var stigahæstur í
íslenska liðinu með 21 stig. Skalla-
grímsmaðurinn Axel Kárason vann
þriggja stiga keppnina sem fór fram
samhliða leiknum. Kevin Sowell
skoraði 27 stig fyrir erlenda liðið,
Lamar Karim var með 18 stig og
Nemanja Sovic hjá Fjölni var með
15 stig fyrir erlenda liðið. Hjá ís-
lenska liðinu skoraði Keflvíkingur-
inn Magnús Þór Gunnarsson mest
eða 21 stig, Hreggviður Magnús-
son úr IR var með 19 stig og Pétur
Már Sigurðsson úr Skallagrími
uiinu stjömuleik KKI
skoraði 18 stig.
Kevin Sowell var í miklu stuði,
sýndi ffábær tilþrif og magnaðar
troðslur, bæði í leiknum sem og í
sérstarki troðslusýningu í hálfleik.
Sowell sýndi þá ásamt Lamar
Karim hjá Tindastól, Isamail
Muhammad hjá Keflavík og Agústi
Dearborn hjá Þór úr Þorlákshöfn,
hvernig menn fara af því að troða
boltanum á sem glæsilegastan hátt í
körfúna.
Axel Kárason vann þriggja stiga
keppnina en hann fékk mestu sam-
keppnina frá félaga sínum í Skalla-
grímsliðinu, Dimitar Karadzovski.
Stjornuleikir KKI
1007
laugardaginn Í3,janúar 2007
Oflugt blaldíf í Snæfeflsbæ
Helgina 13.-14. janúar komu góð-
ir gestir í heimsókn til Snæfellsbæj-
ar. Það var Marek, aðalþjálfari ís-
lenska kvennalandsliðsins í blaki.
Hann þjálfar einnig undir 17 ára og
18-19 ára landslið Islands í blaki og
KA á Akureyri. Þrír þjálfarar frá Ak-
ureyri mættu, þ.e. Marek , Filipp og
þeim til fulltyngis var landsliðsmað-
ur í blaki úr Snæfellsbæ, Hilmar Sig-
urjónsson.
Það voru blaklið umf. Víkings
Ólafsvíkur og umf. Rejmis Hell-
16 milljónir til
aðildarfélaga
Stjórn Knattspyrnusambands
Islands ákvað 13. janúar að
greiða rúmar 16 milljónir króna
til aðildarfélaga sinna. Þetta er
sjötta árið sem félögin fá greitt
ffá KSI með þessum hætti. Alls
eru það 56 aðildarfélög, sem
sendu lið til keppni í mótum á
vegum KSI í yngri aldtu-sflokk-
um utanhúss 2006, sem fá ffam-
lag ffá sambandinu. Félög sem
sendu lið til keppni í yngri flokk-
um beggja kynja fá nú 300 þús-
und krónur hvert. Félög sem
sendu aðeins lið til keppni í yngri
flokkum annars hvors kynsins fá
nú 200 þúsund krónur. HJ
issandi sem sem stóðu fyrir heim-
sókn þessara félaga. Blakæfingar
stóðu alla helgina fyrir blakarana;
tvær á laugardag og ein á sunnu-
dagsmorgun og voru þeir hörðustu í
sex klukkustundir í blaki um helgina.
Mikill áhugi var á æfingunum og
lærðu blakararnir allir eitthvað nýtt.
Eftir síðustu æfinguna í hádeginu á
sunnudag var krökkunum í krakka-
blakinu boðið að fara á æfingu hjá
þeim félögum og mættu 30 krakkar
á aldrinum 12-15 ára.
Það er samdóma álit allra sem
tóku þátt í þessum æfingum að það
hafi verið vel til fúndið af stjórnum
félaganna að ráðast í þessa æfinga-
búðir. I Snæfellsbæ eru yfir 50
krakkar á aldrinum 10 til 15 ára sem
æfa reglulega blak hjá ungmennafé-
lögunum í bænum. Þess má geta að
hluti Islandsmótsins í krakkablaki
var haldið í Snæfellsbæ haustið 2005
og aftur verður hluti þess í Snæfells-
bæ 21 .-22. apríl í vor. Þá var Islands-
mót öldunga í blaki haldið í Snæ-
fellsbæ sl. vor og mættu þar hátt í
hundrað blaklið allsstaðar að af
landinu. I Snæfellsbæ eru reglulega
æfingar hjá þremur blakliðum; þ.e.
umf. Víkingi Ólafsvík (karla og
kvenna) og umf. Reynir Hellissandi.
VG
Skallagríinur féll
úrbikamum
Urvalsdeildarlið Skallagríms féll
úr bikarkeppninni í körfuknattleik
þegar það tapaði fyrir liði IR í
íþróttahúsi Seljaskóla á þriðjudag í
liðnni viku. Er þetta annar leikur-
inn sem Skallagrímsmenn tapa fyr-
ir IR á stuttum tíma því skömmu
fyrir áramót mættust hðin í úrvals-
deildinni. Leikurinn var sveiflu-
kenndur en munur á liðunum var
þó aldrei mjög mikill. Eftir fyrsta
leikhluta leiddu IR-ingar og í hálf-
leik voru leikmenn Skallagríms
einu stigi yfir. I þriðja leikhluta
sigu leikmenn IR framúr og lauk
leiknum með sigri þeirra 92-88.
Stigahæstir í liði Skallagríms
voru Darrell Flake með 25 stig,
Jovan Zdravevsi skoraði 18 stig og
Axel Kárason 15 stig. HJ
Róbert ráðinn
aðstoðarþjálfari ÍA
Róbert Magnússon hefur verið
ráðinn aðstoðarþjálfari úrvals-
deildarliðs IA í knattspyrnu. Mun
hann starfa við hlið Guðjóns Þórð-
arsonar og mun einnig starfa sem
sjúkraþjálfari liðsins. Róbert lék á
sínum tíma með FH sem miðvörð-
ur og var um tíma fyrirliði liðsins.
Leiðir þeirra Guðjóns hafa áður
legið saman því á árunum 2003-
2004 störfuðu þeir saman hjá
enska liðinu Barnsley. HJ
7
Urslitakeppni
kvenna á Akranesi
Knattspyrnusamband Islands
hefur óskað eftir því að tveir leikir í
úrslitakeppni Evrópukeppni
kvenna í knattspyrnu, landsliða
skipuðum leikmönnnum undir 19
ára aldri, fari ffam á Akranesi. Ósk-
að var eftir því að þessi keppni færi
ffam á Islandi á þessu ári vegna 60
ára afmælis KSI. Fer mótið ffam
dagana 18.-29. júlí í Reykjavík og
nágrenni. Bæjarráð Akraness hefur
samþykkt fyrir sitt leyti að leikimir
tveir fari fram á Akranesvelli og er
reiknað með því að þeir verði dag-
ana 20. og 23. júh'. HJ