Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 11
aikUSimu^.
MIÐVIKUDAGUR 2. MAI 2007
11
Eiturefiiaúrgangsskrínisli
Edda Björgvinsdóttir leikkona og
áhugamanneskja um hollan mat,
eins og hún segir sjálf, heldur fyrir-
lestur í Borgamesi og Stykkishólmi í
byrjun maí og fjallar meðal annars
um öll þau eitur- og gerviefni sem
liggja í matvælum hér og þar og bíða
þess að komast ofan í líkama okkar,
til þess eins að mgla hann.
Edda sagði í samtali við Skessu-
hom að hugmyndin hefði komið úr
bók sem dr. Gillian skrifaði og heit-
ir „Þú ert það sem þú borðar." En
kjarninn í námskeiðinu fjallar um
það hvernig þú getir lifað heilbrigðu
lífi ef þú nennir ekld eða getur ekki
eldað salat. „Líkami okkar er líkam-
lega og andlega mengaður af því
sem við erum að láta ofan í okkur
hvern dag. Hvað erum við að gera
við kroppinn og hausinn sem ekki
fær rétta næringu til að starfa rétt.
Hinsvegar er ekki nóg að borða
hollan mat, þú getur verið gangandi
eiturefnaskrímsli þótt þú borðir
heilbrigða fæðu, svo það þarf að taka
á hreinstm á öllum sviðum, bæði
andlega og líkamlega. Ein megin-
reglan er sú ef þú vilt forðast að
borða þessi efni sem líkaminn veit
Edda Björgvinsdóttir, leikkona.
ekkert hvað hann á að gera við að
lesa innihaldslýsingar á því sem ver-
ið er að kaupa. Og ef þú getur ekki
borið orðið ffam, þá skaltu alls ekki
kaupa vöruna.“
Andlegar
leikfimisæfingar
„Ég kenni fólki líka andlegar leik-
fimisæfingar. Það er nefnilega nauð-
synlegt að hafa gleðina með í öllu því
sem fólk tekur sér fyrir hendur og
ekld skemmir að geta hlegið dátt.
Hins vegar er ég þess fullviss að fólk
í sveimm landsins er upp til hópa að
borða hollari mat en við hin sem
troðum í okkur pakka-dósa og
skyndibitamat í gríð og erg. Þar er
allt fullt af gervi þessu og hinu, meira
að segja í venjulegu Cheerios er
gervijám. Hvemig á líkaminn eigin-
lega að meðhöndla það? Gamla fólk-
ið okkar nær svona háum aldri, að
mínu mati, af því að það var að borða
betri fæðu en við. Jafnvel þótt matur-
inn væri saltaður, reyktur og leginn
og hvað þetta heitir allt saman. Við
ættum að gera út á þetta, að geta
ffamleitt heilbrigðan mat heldur en
vera að planta niður stóriðju út um
allar koppa grundir. I grunninn er ég
sjálf heilmikið eiturefnaskrímsli og
hef orðið að taka á því í mínu h'fi.
Bæði er að mér finnst fátt spennandi
af því hráefni sem notað er í salat og
eins er ég ómögulegur kokkur. Ég
æda að segja fólld ffá minni leið og
vona að hún getd nýst einhverjum,"
sagði Edda Björgvinsdóttir að lokum.
bkg
Bæklingur um eldvamir á sjö tungumálum
Eignarhaldsfélagið Brunabótafé-
lag Islands (EBI) hefur gefið út bæk-
linga um grunnatriði eldvama á sjö
erlendum tungumálum, auk ís-
lensku. EBI býður slökkviliðum
landsins bæklingana til notkunar án
endurgjalds og eru þeir þegar komn-
ir í talsverða dreiftngu víða um land.
Efnið er ædað innflytjendum og út-
lendingum sem búa og starfa hér á
landi um lengri og skemmri tíma.
Bæklingamir em tveir og í þeim er
fjallað um reykskynjara, flótta úr
brennandi íbúð, slökkvitæki og fleiri
grunnatriði eldvama á heimilum.
Þá er fjallað um neyðamúmerið,
112, og Hjálparsíma Rauða krossins
en Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
hafði áður gefið efhið út í samvinnu
við 112 og Rauða kross Islands. Al-
þjóðahúsið þýddi efnið á ensku,
pólsku, rússnesku, litháísku,
spænsku, tælensku og serbnesku.
mrn
Fire Preparedness
Sistémas contra
incendiOS
Pf9t»9leii«oWvjáavi.i snlud
fn^ija-jnuðnð/io
Protívpozarne mere
Ofl.tn.s*! twnstt'-dtvpMa.6aAweI(VzdrnvTt(i
/ ^
Eldvarnír
Instrukcje
przecivvpozarowe
noxcapHast 6e3onacHocTb
Priesgaisnne npsaugn
\
KENNARAR
EFTIRFARANDI STÖÐUR KENNARA
VIÐ MENNTASKÓLA
BORGARFJARÐAR ERU LAUSAR TIL
UMSÓKNAR
Menntaskóli Borgarfjarðar er nýr framhaldsskóli sem mun
taka til starfa haustið 2007 í nýju og glæsilegu
skólahúsnæði í Borgarnesi.
// DANSKA 50% STAÐA
// NÁTTÚRUVÍSINDI 50% STAÐA
II Námsráðgjafi 100% STAÐA
Námsráðgjafi er ráðinn til starfa I samstarfi víð Grunnskóla
Borgarbyggðar og mun starfa á vettvangi grunnskóla jafnt
sem menntaskólans.
Reíknað er með að ofangreindir starfsmenn taki tíl starfa (
hlutastarfi 1. júní 2007 vegna skipulagningar
skólahalds og að fulíu frá og með 1. ágúst 2007.
Umsóknír með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu hafa borist Ársæli Guðmundssyni, skólameistara,
Bjarnarbraut 8, 310 Borgames, eða á netfangið:
menntaborg@menntaborg.ís eigi siðar en þriðjudaginn
8. mal 2007.
Nánari upplýsingar veitir Ársæll Guðmundsson, skólameistari
í síma 895 2256.
MENNTASKÓLI BORGARFJARÐAR
www.skessuhorn.is
Kröftugt samfélag
- fjölbreytt atvinna
Ingibjörg Inga er í baráttusæti -
tryggjum henni sæti á Alþingi -
Inga er kona sem berst fyrir jafnrétti
og fyrir landsbyggðina alla leið.
Framtíðin varðar okkur öll
\ VINSTRIHREYFINGIN
grænt framboð
Vinstri græn - hreinar línur