Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2007, Síða 18

Skessuhorn - 02.05.2007, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. MAI2007 jotssimui: Astríðufullur tónlistarsafiiari í æskulýðsstarfi vinnu og ég hef séð það að krakkar brenna sig á því þegar komið er út á hinn almenna vinnumarkað þar sem engin miskunn er sýnd. Abyrgðin gagnvart vinnunni hefúr farið minnkandi með árunum, hverju sem um er að kenna. Þetta á ekki við um alla krakkana, aðeins smáhóp, og við munum sérstaklega beina sjóntun að þessu í Vinnuskól- anum. Einar segir mjög mikilvægt að krakkamir gangi í gegnum Vinnu- skólann, læri þar gott vinnusiðferði og ákveðin prinsippmál varðandi vinnu. Það sé svo þeirra sjálffa að fylgja því eftir. Starfsemi Vinnu- skólans hefst á næstu vikum, yfir- menn og krakkar 17 ára og eldri mæta til vinnu um miðjan maí og yngri börnin eftir að skóla lýkur í sumar. Fiðlur og rokk og ról Eingöngu verður mn eina tón- leika að ræða í tilefhi afinælis Einars og verða þeir fyrir boðsgesti. Einar segir svo verða að vera, þetta sé af- mælisveisla og til að hafa stjórn á hlutunum verði hann að hafa þenn- an háttinn á. A eftir verði síðan partý þar sem allt verði mun ff jáls- legra og hver sem er getd stigið á stokk. Ekki er komið á hreint hvar það verður, enda ekki hlaupið að því að fá leigðan sal daginn fýrir kosningar. Fjölbreytt dagskrá verðu í boði á tónleikunum, allt frá frændsystkinum Einars sem munu leika á fiðlu og upp í argasta rokk og ról. Einar segist lánssamur að hafa getað komið tónleikunum á og hann eigi mörgum að þakka að svo geti orðið. „Eg gæti nefnt fjölda fólks sem hafa aðstoðað mig en læt þó nægja að nefna Isólf í Bíóhöll- inni. Það er fýrst og fremst honum að þakka að mögulegt er að hafa þetta á þennan hátt og á hann þakk- ir skildar fýrir,“ segir Einar að lok- um. Eins og áður segir verða tónleik- ar Einars í Bíóhöllinni á Akranesi föstudaginn 11. maí. Daginn eftir rennur upp stór dagur á margan hátt, kosið verður til Alþingis, Is- landsmótdð í knattspyrnu hefst og um kvöldið er Evróvisjón, þó enn sé ekki víst með þátttöku Islendinga á úrslitakvöldinu. Það er því ekki úr vegi að búa sig undir laugardaginn með skemmtilegum tónleikum, skemmtilegum manni til heiðurs. Tónleikarnir hefjast um 20:30 en húsið opnar hálftíma fýrr. kóp Einar Skúlason er Akumesingum og nærsveitamönnum af góðu kunnur. Hann hefur starfað að æskulýðsmálum á Skagantun um áratugaskeið og ófáir Akumesingar hafa alist upp undir handleiðslu hans. Einar varð fimmtugur í febr- úar síðastliðnum og til að fagna slíkum tímamótum kom aðeins eitt til greina; að halda tónleika, enda hefur tónlistin alltaf skipað stóran sess í lífi Einars. þrjátíu ár þannig að það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því.“ Vínyl eins og innbundin bók Þrátt fýrir að tónlistin hafi ætíð skipað stóran sess í lífi Einars hefur hann ekki verið í mörgum hljóm- sveitum. Hann hefur spilað með fé- lögum sínum til að hafa gaman af, en ekki fóstrað neinar hugmyndir um heimsfrægð. „Eg hef verið í þremur, fjómm böndum í gegnum u'ðina og við höfum alltaf haft það að leiðarljósi að hafa gaman af þessu. Eg hef aldrei verið í hljóm- sveit með það fýrir augum að hafa ffamfærslu af henni. Einu sinni var ég í ballspilamennsku og það er eitt það leiðinlegasta sem ég hef lent í. Þetta hefur alltaf snúist um að að spila skemmtilega tónlist með góð- um mönnurn." Uppáhaldslög frá ýmsum tímum Tónleikamir verða haldnir í Bíó- höllinni á Akranesi föstudagskvöld- ið 11. maí. Fjöldi listamanna mun stíga á stokk og segist Einar minnst vita um það sjálfur hverjir það verði. „Oli Palli vinur minn verður kynnir og veislustjóri og hann er að setja saman dagskrá. Eg veit ekki um helminginn af þeim sem koma ffarn, en veit þó að það verður fullt af óvæntum uppákomum." Allar þær hljómsveitir sem Einar hefur leikið með munu spila og hann því standa á sviðinu sjálfur meirihluta tónleikanna. Þar ber helst að telja Herradeild PO en einnig má nefna Melasveitina, en Gísli Gíslason fyrmm bæjarstjóri, er einn meðlima þeirrar sveitar. Þá mun Orri Harð- ar stíga á stokk, en Einar kenndi honum á gítar á sínum tíma. Auk þess mun fullt af gestum koma ffam sem mikil leynd hvílir yfir. Einar segir að hugmyndin á bak við tónleikana sé fýrst og ffemst að ryfja upp kynni af þeim hljómsveit- um sem hann hefur spilað með. „Eg hóa saman þeim mönnum sem ég hef spilað með í gegnum tíðina og við spilum gömul uppáhaldslög mín ffá ýmsum tímum. Meðal annars mun fýrsta hljómsveitin sem ég var í stíga á svið, en ég var aðeins tólf ára þegar hún hóf feril sinn. Við höfum ekki spilað saman í ríflega Einar við gömlu slökkvistöðina þar sem hann er áfullu að undirbúa starf Vinnuskólans í sumar. Tónlistarástríða Einars hefur mun fremur brotdst út í plötusöfn- un, en hann á veglegt plötusafh. Tónlistin hefúr verið hans stærsta áhugamál og hefur hann safnað plötum um áratugaskeið. Líkt og er með fleiri ástríðufulla plötusafnara er Einar mun hrifriari af vínyl en geisladiskum. Hann segist ekki vita hve margar plötur hann eigi, ein- hverjar þúsundir, en maður telji ekki svona hlutd. „Eg á orðið ágætis safú og þá af vínylplötum. Eg vel vínylinn ekki endilega fram yfir geisladiska út af hljóminum, eins og margir nefúa. Mér finnst hann bara mun meiri gripur. Vínylplata er eins og innbundin bók á meðan geisladiskur er eins og kiljuútgáfa. Þegar þú kaupir þér eitthvað sem á að endast kaupir þú ffekar inn- bundna bók en kilju. Eins er það með vínylplötumar." Slepp sem Skagamaður Einar hefur búið á Akranesi síðan hann var níu ára gamall, en þá fékk faðir hans kennarastöðu á Skagan- um. Aður hafði hann búið í Reykja- vík, Raufarhöfn, Reykjaskóla og í Olafsvík, allt eftir því hvar faðir hans var með stöðu hverju sinni. „Eg hef verið hér í 41 ár og ætli það sleppi ekki alveg að ég geti kallað mig Skagamann." Einar lauk stúd- entsprófi ffá Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi og hefur síðan unnið við ýmis störf. „Eg var í fiski eins og margir hér, byggingarvinnu og starfaði sem skrifstofumaður. Þá kenndi ég í lausamennsku við Fjöl- brautaskólann í tíu ár, aðallega við- skiptagreinar. Mér fannst mjög skemmtilegt að kenna en ég var náttúrulega réttindalaus þannig að starfsöryggið var ekki mikið. Árið 1987 hóf ég störf hjá Akraneskaup- stað og hef starfað þar síðan.“ Einar var æskulýðsfulltrúi Akra- ness í fjölda ára og sá þá m.a. um fé- lagsmiðstöðina Arnardal auk Vinnuskólans. Nú hefur verið gerð skipulagsbreyting hjá bænum og nýi titill Einars er Rekstrarstjóri vinnuskóla og annarra sérverkefúa. „Þetta er langur og flottur titill en í þessu felst að ég sé ekki lengur um Arnardal. Eg verð með Vinnuskól- ann, sem fhittur er í gömlu slökkvi- stöðina við Laugabraut, og í sér- verkefnum yfir vetrartímann, þá með aðstöðu á bæjarskrifstofun- um.“ Sálusorgari og lærifaðir Einar segir að sér lítist ágætlega á breytingarnar og þetta verði hið fínasta starf. Það verði mun minni yfirlega á honum nú þegar hann sé hættur að starfa í félagsmiðstöð- inni. Hann játar þó að hann muni sakna þess að starfa með ungling- unum í Amardal. „Þetta hefur verið frábært starf og skemmtilegur tími. Eg hef notið þeirra forréttinda að vera í gefandi starfi sem ég hef haft gaman af. I þessu starfi þarf maður að vinna náið með krökkunum og það hefur oft myndast náið sam- band á milli mín og þeirra. Maður er stundum hálfgerður sálusorgari um leið og maður er lærifaðir krakkanna. Eg hef fylgst með þeim fullorðnast og held sambandi við marga þeirra nú mörgum árum síð- ar.“ Einar segir að hann muni ugg- laust sakna þess að starfa með krökkunum í Arnardal en hann sé þó ekki búinn að sleppa tökum á þeim, þau verði undir heraga hjá honum í Vinnuskólanum í sumar. „Það kemur tími á allt í lífinu og ég lít björtum augum ffarn á veg eftir þessar breytingar.“ Skeytíngarleysi gagnvart mætingu Mikið hefur verið rætt undanfar- in ár um aukið agaleysi í þjóðfélag- inu og hafa margir áhyggjur af því. Eftir tuttugu ára starf með ungling- um sem eru að stíga sín fýrsta skref á vinnumarkaði, er Einar í góðri að- stöðu til að meta þá þróun mála. Hann segist geta tekið undir þessar áhyggjuraddir að einhverju leyti, sérstaklega þegar kemur að mæt- ingu og viðveru í vinnu. „Það er ótrúlegt skeytingarleysi hjá hópi unglinga þegar kemur að mætingu í vinnu. Þetta hefur aukist til muna síðustu ár. Eg man eftir því að eitt sinn komu krakkar hálfgrenjandi yfir því að mæta of seint og voru al- veg eyðilagðir. I dag þykir sumum ekkert sjálfsagðara en að sofa aðeins lengur, eða jafúvel að taka sér dags- frí án nokkurs fýrirvara til að fara til Reykjavíkur og kaupa föt.“ Minnkandi ábyrgð gagnvart vinnunni Einar segist ekki vita hverju þessi þróun er um að kenna. Hluti skýr- ingarinnar sé þó sá að sjálfsaflatekj- ur skiptd unglinga minna máli í dag en áður. I dag hafi unglingar mun óheftari aðgang að fjármagni for- eldra sinna og leggi því ekki eins mikið upp úr því að afla sér tekna sjálfir. „Það er náttúrulega bara agaleysi að mæta seint og illa til Herbert að spila undir í spinning á Sólarsporti. Herbert tók áskorun í Ólafsvík Það bar óvæntan gest að garði á líkamsræktarstöðinni Sólarsporti í Olafsvík sl. laugardag. Þar var Her- bert Guðmundsson, söngvari og bóksölumaður á ferð blaðskellandi og spilaði á gítar sinn og söng fýrir gesti stöðvarinnar sem þar æfðu spinning í gríð og erg. Hvort söng- urinn eða spinning væri erfiðara skal ósagt látið, en engu að síður draup svitann af Herberti eins og líkamsræktarfólkinu. Eins og margir vita er Herbert með memaðfyllstu bóksölumönn- um landsins og notar hvert tækifæri sem hann getur tdl að selja bækur. Astæða þess að hann tók að sér að spila í Sólarsporti var einmitt út af sölumennsku. Hann var á Snæfells- Herbert og Rögnvaldur Ólafsson með nýju bókina sína. nesi að selja bækur og Rögnvaldur Ólafsson, einn viðskiptavinur hans, keypti eitt bindi af honum og sagði við Herbert að ef hann myndi spila á Sólarsporti ætlaði hann að kaupa aðra bók af honum. Herbert tók að sjálfsögðu áskoruninni og Rögn- valdur keypti aðra bók. af

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.