Morgunblaðið - 11.06.2019, Side 2

Morgunblaðið - 11.06.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019 olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn. 8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu. Einnig mikið úrval aukabúnaða. Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400 Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakk i - 601 Akureyr i Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is maxipodium 500 Hestakerrur frá Fautras maxipodium 500 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Minna vatn en elstu menn muna  „Hamfaraástand“ í laxveiðiám í Borgarfirði  Lax ratar ekki upp í árnar  Leysingar snemma valda Snorri Másson snorrim@mbl.is „Áin er algerlega vatnslaus. Ég hef aldrei séð hana svona,“ segir Þórður Þorsteinsson, leið- sögumaður við Þverá og Kjarrá og tíðindamað- ur Morgunblaðsins á staðnum. Laxveiðiár á vesturhluta Íslands sýna þess ótvíræð merki að miklir þurrkar hafa verið síðustu daga og vik- ur. Veiðin í þeim ám sem þegar hafa opnað í Borgarfirði hefur verið sögulega lítil. Vatns- leysið er verulegt áhyggjuefni. Opnunardaginn í Norðurá í Borgarfirði 4. júní veiddust sjö lax- ar og síðan hefur ekki veiðst einn einasti, eins og komið hefur fram í Sporðaköstum á mbl.is. Svipað ástand ríkir í Kjarrá og Þverá, sem eru sama á. Þar er ástandið slíkt að elstu menn í sveitinni hafa ekki séð annað eins, að sögn Þórðar. Í opnunarhollinu kom einn lax á land og það er allt og sumt. Þórður segir að vatns- magnið sé minna í ánni en elstu menn í sveit- inni muna til að hafa séð. Nokkur silungur hafi veiðst en aðeins einn lax frá því að áin var opn- uð á laugardaginn, 8. júní. Þórður bendir á að oft hafi vart verið veiðandi í ánni út af flóðum við opnun hennar í byrjun sumars. Slíku er ekki að heilsa nú. Aðrir eins þurrkar hafa svo sem sést en vandinn er sá að í ár voru vorleysingar helst til snemma. Það veldur því að þegar vorið er síðan sjálft eins þurrt og raunin er, geta árnar ekki reitt sig á vatnið úr leysingunum, sem vanalega koma sterkar inn í maí eða jafnvel júní. Árnar eru því sums staðar verulega skrælnaðar og jafnvel þó fari loks að rigna, sem ekki er séð fram á að verði fyrr en um næstu helgi, mun jarðvegurinn í kringum árnar þá fyrst þurfa að sækja í sig nokkuð af vatni áður en hann getur farið að miðla því í árnar. Þegar svona lítið vatn er í ánni liggur laxinn í súrefnislitlu vatni á dýpstu stöðum árinnar og hefur engan áhuga á að taka flugur frá veiði- mönnum. Fiskurinn sem er í ánni núna er að mestum hluta fiskur sem gekk upp í árnar í maí, því ekki getur hann gert það núna í þurrk- inum. „Þetta er hamfaraástand, sem verður bara verra og verra. Fiskurinn nær ekki að komast upp í árnar,“ segir Þórður og bætir því við að þegar svo verði sé þó hugsanlega ekki að vænta mikils lax upp í árnar, þar sem ekki hafi verið að veiðast mikið í ósunum. Morgunblaðið/Einar Falur Þurrkur Veiðin er mjög léleg í vatnslítilli Kjarrá og Þverá. Einnig í Norðurá. Kríuvarp hefur farið seint af stað á þeim stöðum sem mælingar hafa far- ið fram á landinu. Þetta segir dr. Freydís Vigfúsdóttir líffræðingur sem hefur áralanga reynslu af kríu- rannsóknum og stundar m.a. mæl- ingar á kríuvarpi á Suðvesturlandi. Segir Freydís varpið nú formlega hafið en það hafi byrjað viku seinna en áður. Hún segir enn of snemmt að segja til hvernig varpið muni ganga en tekur fram að lykilatriði sé að æti sé til staðar þegar ungarnir klekjist. Freydís segir góðs viti að kríur sýni árásargirni í nálægð við varps- væði sín enda gefi það vísbendingu um að þær séu í góðu líkamsástandi og að varpið sé farið af stað. Kríuvarp seint í gang í ár  „Góðs viti að kríur sýni árásargirni“ Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Árás Kría steypir sér yfir konu skammt frá kríuvarpi við Skálanes. Eins og sjá má á myndinni til hliðar er á milli Hveragerðis og Selfoss unnið að breikkun vegar. Þar var umferð nokkuð mikil í gær eftir að fjölskyldu- og tónlistarhátíðinni Kótelettunni lauk, sem haldin var í tíunda skipti á Selfossi um helgina. Hátíðin hófst á föstudag og stóð fram á mánudags- morgun þegar tónleikum lauk um fimmleytið. Í samtali við Morgunblaðið sagði Einar Björnsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, allt hafa gengið vel og að um tvö þúsund manns hefðu sótt böll hátíðarinnar, sem haldin voru öll kvöld. Þá sagði hann að óformlegar mælingar bentu til þess að um tuttugu þúsund manns hefðu sótt hátíðina á laugardaginn, en þá átti eiginleg grillhátíð Kótelettunnar sér stað, þar sem Guðni. Th. Jóhannesson forseti var á meðal þeirra sem munduðu grill- töngina. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar höfðu 12.242 bílar farið um Hellisheiði á milli miðnættis og klukkan 21 í gær- kvöld. Aðspurður sagði Einar að umferð hefði gengið nokkuð vel fyrir sig á leið út úr bænum í gær, enda hefðu ferða- langar verið að tosast úr bænum yfir allan daginn. Hann sagði umferð hins vegar óneitanlega hafa verið nokkuð þunga á leið inn í bæinn á föstudag og laugardag, og sagði að á tímabili á laugardag hefði maður sennilega verið fljótari fótgangandi en á bíl á milli Hveragerðis og Selfoss. teitur@mbl.is Fyrstu ferðahelgi sumars lokið  Á tímabili fljótari fótgangandi en á bíl á milli Hveragerðis og Selfoss  Um 20.000 manns heim- sóttu Kótelettuna á laugardag  Umferð gekk nokkuð vel fyrir sig á leið frá Selfossi í gær Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.