Morgunblaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa. kl. 9-15. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opið hús t.d. spil kl. 13-15. Bridge kl. 12.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30.. Handavinnuhópur kl. 12-15.30. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Áskirkja Leggjum af stað frá Áskirkju kl 08.30. Heimsækjum Pál lista- mann á Húsafelli. Hádegisverður á Brúarás. Sr Sigurður Jónsson mun síðan messa í Reykholti kl 14. Kaffistopp á Hvanneyri á heimleið. Áætluð heimkoma 18:30. Verð 9000 kr. Skráning hjá Petreu í s 891-8165 fyrir 1. júli Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Þriðjudagur: Bridge og Kanasta kl. 13.00. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Yngingar yoga með hláturívafi kl. 09.00-09.50. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Boccia kl. 10.40- 11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Göngutúr um nágrennið kl. 13.00. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Listasmiðja opin 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Enska kl. 13-15. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Hugmynda- bankinn opin kl 9-16. Allar hugmyndir eru góðar hugmyndir. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Garðabæ Vatnsleikfimi. Sjál kl. 08.00 og 13.00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10.00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gerðuberg 3-5 111 RVK Þriðjudagur Opin handavinnustofa kl.08.30-16.00. Keramik málun kl.09.00-12.00. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13.00-16.00. Leikfimi gönguhóps kl. 10.00-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30-. Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 13.00 Handavinna, kl. 13.30 Alkort. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Bridge í handavinnustofu kl. 13 og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl, 9.45, Lesið upp úr blöðum kl. 10.15, Upplestur kl. 11-11.30, Hádegisverður kl. 11.30-12.30, Kaffihúsaferð á Hrafnistu kl. 14. Seltjarnarnes Nú eiga allir að vera búnir að fá dagskrána sem gildir frá 11. júní - 16. ágúst þar sem Thelma og Jói munu stjórna. Þeirra aðsetur verður í félags og tómstundaraðstöðunni að Skóla- braut 3-5. Í dag er Vatnsleikfimi kl. 07.10. Snallsímanámskeið í slanum á Skólabraut kl. 10.00. Kaffispjall í króknum kl. 10.30 og pútt á golf- vellinum kl. 13.30. Þeir sem vilja far mæti á Skólabr. kl. 13.15. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.00. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smáauglýsingar Húsnæði óskast Húsnæði óskast í sumar í Hafnarfirði. Húsnæði óskast frá 15/06-15/09, í Hafnarfirði, 3-4 svefnherbergi. Helst með húsbúnaði. Vinsamlegast hafið samband við Tómas í brattahlid.accounting@gmail.com eða í síma 8472596 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Annast liðveislu við bókhaldslausnir o.fl. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 200 mílur ✝ Sigurður Z.Skúlason fædd- ist í Reykjavík 9. mars 1928. Hann lést 27. maí 2019. Foreldrar Sig- urðar voru: Svan- laug Einarsdóttir húsmóðir, f. 25. desember 1908, d. 13. mars 2010, Skúli Sigurðsson bifreiðastjóri, f. 13. janúar 1898, d. 24. nóvember 1980. Systkin Sigurðar: Skúli Svan- anum í Hveragerði. Sigurður og Gréta giftu sig 17. júní 1950. Fyrstu árin bjuggu þau í Hveragerði en árið 1957 fluttu þau í Þorlákshöfn í nýbyggt hús að Oddabraut 16 og árið 2004 fluttu þau að Sunnubraut 2, Þorlákshöfn. Gréta lést 5. september 2018. Börn þeirra eru Skúli Sigfús, maki er Hjör- dís Svavarsdóttir, þau eiga þrjú börn og níu barnabörn. Svan- hildur Soffía, maki er Sævar Sigursteinsson, þau eiga tvö börn, fimm barnabörn og eitt barnabarnbarn. Halldór Þor- lákur, maki er Hugrún Guð- mundsdóttir og hann á þrjú börn og þrjú barnabörn. Útför Sigurðar Z. Skúlason- ar fer fram frá Þorlákshafn- arkirkju í dag, 11. júní 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. berg, f. 1931, d. 2015, Baldvin Ein- ar, f. 1933, d. 2011, Gillý Sigurveig, f. 1937, Ölver, f. 1940, d. 2018, og Elías Skúlason, f. 1943. Sigurður ólst upp hjá foreldrum sínum í Reykjavík og á Kirkjuferju í Ölfusi. Árið 1950 kynntist Sigurður Grétu Sigfúsdóttur, sem stund- aði skólanám í Húsmæðraskól- Við lát pabba hugsum við til baka og þá streyma fram minn- ingar sem rifjast upp við þessi tímamót. Pabbi hafði ekki glímt við stórvægileg veikindi, ekki frekar en margt eldra fólk sem hefur unnið hörðum höndum allt sitt líf. Pabbi var einn af svoköll- uðum frumbyggjum í Þorláks- höfn. Pabbi var einn af stofn- félögum í Kiwanisklúbbnum Ölveri, hann var heiðursfélagi. Eftir að mamma dó fékk pabbi inni á Hjallatúni í Vík í Mýrdal og þar dvaldi pabbi þar til í febrúar. Þá flutti hann á Höfða dvalar- og hjúkrunarheimilið á Akranesi, þar hafði hann dvalið í aðeins í rúma þrjá mánuði er hann lést. Ég man fyrst eftir mér í Hveragerði þar sem mamma og pabbi áttu heima fyrstu æviárin mín en ég var sex ára gamall þeg- ar við fluttum til Þorlákshafnar (1957). Pabbi var vörubílstjóri fyrst í Hveragerði svo eftir að við fluttum til Þorlákshafnar vann hann mikið hjá Meitlinum sem var útgerðarfyrirtæki. Síðari ár- in vann hann hjá Ölfushreppi líka sem vörubílstjóri en hætti störf- um þegar hann var 70 ára. Ég man hve mikla vinnu pabbi lagði á sig til að fæða og klæða fjöl- skylduna. Ég var ekki gamall þegar pabbi leyfði mér að keyra vörubílinn, í minningunni var það stórkostlegur tími. Þegar ég var 4-5 ára man ég eftir því að pabbi var að tala við kollega sinn í Hveragerði, hann skildi mig eftir í vörubílnum, mig langaði að fara út, en gat ekki opnað dyrnar á stýrishúsinu, þegar pabbi kom svo og lagði af stað þurfti hann að beygja, þegar hann beygði datt ég á hurðina og það skipti engum togum að ég datt út úr stýrishúsi vörubílsins niður í stórgrýttan kantinn, en það fór betur en í upphafi leit út fyrir. Pabbi og mamma sögðu mér margar sögur frá þeim tíma sem ég var með pabba í vörubílnum, einhvern tíma stóð ég við hliðina á pabba þegar hann var að keyra, þá voru ekki bílbelti né barnabílstólar, en eitthvað fannst mér hann vera seinn til að flauta á kindur sem voru við veginn og ég sagði við pabba „pabbi flauta, bíb, bíb“ sem hann og gerði. Við þessi tímamót koma upp margar minn- ingar sem of langt mál er að segja frá í stuttri minningar- grein. Síðan ég flutti frá Eskifirði (1995) hef ég reynt eftir fremsta megni að heimsækja mömmu og pabba nær vikulega að Sunnu- braut 2 í Þorlákshöfn sem nú er ómetanlegur tími. Nú er pabbi loksins kominn á þann stað sem hann óskaði sjálfur eftir að kom- ast á eftir að mamma dó, en það var honum mikið áfall og sorg- artími. Elsku pabbi og mamma, það hlýtur að vera yndislegt að hittast aftur og vera saman eins og þið voruð búin að vera í tæp 69 ár. Skúli og Hjördís. Nú er pabbi farinn og þá rifj- ast upp margar góðar minningar sem við áttum með honum og mömmu bæði frá B götu 16 og Sunnubraut 2. Pabbi hugsaði vel um okkur systkinin og mömmu. Það var alla tíð gott samband milli okkar og barna okkar og þeirra. Pabbi var alltaf tilbúinn að aðstoða okkur og átti mörg handtök bæði í bílum og húsinu okkar. Pabbi og Sævar voru með mikla jeppadellu og þar voru Ford Econoline fremstir sem var þeirra sameiginlega áhugamál og studdu þeir hvor annan heilshug- ar í því. Við ferðuðumst mikið saman um hálendi Íslands, og meðal annars margar ferðir í Þórsmörk og var hann ætíð fremstur, hann hafði mestu reynsluna í að keyra yfir árnar. Svo þegar þangað var komið voru allir drifnir í göngutúr sem var alla lifandi að drepa en þetta var hans líf og yndi. Einnig voru margar veiðiferðir bæði í Þóris- vatn og Kvíslarveitur og eru þetta ógleymanlegar ferðir. Veitt vel og allir ánægðir þegar heim var komið. Eins voru ferðir út um allt land, síðustu hálendisferðirnar voru þegar við fórum Gæsa- vatnaleið og komum niður í Öskju, svo þegar við fórum Skæl- ingana frá Eldgjá og yfir í Langasjó, þetta var síðasta há- lendisferð þeirra. Það er marks að minnast. Eftir að við fluttum til Noregs komu pabbi og mamma fimm sinnum í heimsókn og þá var spurt hvort ekki væri eitthvað hægt að gera, jú, það þurfti að vinda lopa og hann fór í það. Við keyrðum mikið um Nor- eg með þau og fannst þeim það mjög gaman. Við eigum margar góðar minningar frá þessum heimsóknum. Við töluðum mikið við þau í gegnum Skype og svo við hann í gegnum síma daglega síðasta árið. Það verða mikil við- brigði að geta ekki verið með honum þegar við komum til Ís- lands. Hans er sárt saknað en minn- ingarnar eru margar og góðar. Svanhildur og Sævar. Elsku Siggi pabbi og tengda- pabbi, nú er komið að kveðju- stund og þú kominn til hennar Grétu þinnar, sem þú saknaðir svo mikið, það var 5 september 2018 ( fyrir átta og hálfum mán- uði síðan) sem hún kvaddi, eftir stutt veikindi. Þú fórst þá í hvíld- arinnlögn á Hjallatún í Vík í Mýr- dal og varst þar í 5 mánuði. Það var hugsað vel um þig þar, en í byrjun febrúar fengum við þig fluttan á Höfða á Akranesi, mikið nær okkur. Það var vel hugsað um þig þar, við gátum kíkt á þig oft eftir vinnu og um helgar. Það var skrítið fyrir þig að flytja á Akranes og segja heima þar. Þú varst búinn að búa í 62 ár í Þor- lákshöfn, þar reistuð þið fallegt hús að Bgötu 16 og síðar fluttu þið á Sunnubraut 2. Þið voruð meðal frumbyggja í Þorlákshöfn. Margs er að minnast, oft hljóp ég á móti pabba niður götuna þegar hann var að koma í mat, fékk ég far heim með honum. Margar ferðirnar fórum við sam- an með fiskflutninga suður í Garð, fórum í gegnum Reykjavík og þurfti þá að greiða vegatoll á Keflavíkurveginum. Á unglings- árum mínum tók ég meira þátt í að hjápa til, meðal annars hand- dæla olíu á bíl af heimatanki og ef komið var heim á sprungnu, var skipt um dekk á meðan pabbi snæddi. Í dagslok var oft farið að gera við dekk, ekki var þá dekkjavél til í skúrnum. Hann var ábyrgur og öruggur bíls- stjóri, bílar hans voru allir hrein- ir og fallegir. Hann var alltaf boð- inn og búinn að hjálpa öllum. 17. júní 2018 (á 68 ára brúðkaups- afmælinu ykkar) buðum við ykk- ur út að keyra, við fórum á Eyr- arbakka í hádegisverð, og svo Flóahringinn. Síðan fórum við í Hveragerði þar sem þið kynntust og áttuð heima fyrstu búskapar- árin ykkar. Þið voruð svo dugleg og nægjusöm, um 20. ágúst 2018 voruð þið að bera á pallinn hjá ykkur. Þið voruð ekki að biðja um aðstoð, svo dugleg voruð þið, pabbi 90 ára og mamma 86 ára. Það eru 23 ár síðan ég kom með Halldóri syni ykkar á Odda- braut 16 eða B-götu 16 og þið tókuð mér opnum örmum. Betri tengdaforeldra er ekki hægt að hugsa sér. Margar stundir áttum við saman bæði í útilegum, sum- arbústaði, Þorlákshöfn og á Bakkastöðum . Við söknum þín og þökkum all- ar góðu stundirnar og ekki síst núna síðustu mánuðina. Kveðja, þinn sonur Halldór og Hugrún. Elsku afi, nú er kveðjustundin komin. Nú ertu komin í sumar- landið til ömmu. Sé ykkur fyrir mér knúsa hvort annað ham- ingjusöm sameinuð á ný. Það voru forréttindi að fá að alast upp hjá ykkur með annan fótinn. Þú kenndir mér svo margt og varst alltaf svo góður við mig. Það rifj- ast upp margar minningar, þú varst alltaf í bílskúrnum að gera og græja ef þú varst ekki að keyra vörubílinn. Þú varst alltaf í bláa sloppnum með verkfæri í hendi. Ein minningin er sú að þegar ég var lítil og það voraði þá fór ég með hjólið mitt niður eftir til þín. Hjólinu var skellt á hvolf svo fékk ég skiptilykil til að herða á og smurolíukönnu til að smyrja keðjuna og svo bónað með mjallabóni á eftir. Það var ein- hvern veginn bæði með þig og ömmu að alltaf fékk ég að taka þátt í öllu. Ég fékk að fara í ófáar útilegurnar með ykkur og svo þegar áhuginn fór að koma á að keyra þá fórstu með mig upp á gamla veg og þar kenndir þú mér að keyra. Mér verður hugsað til þess þegar þú og amma komuð í síð- ustu heimsóknina til okkar fjöl- skyldunnar. Það var um verslun- armannahelgina í fyrra, þið voruð hress og kát í bragði eins og alltaf þegar þið komuð. En eftir þá helgi, þá fór heilsan að stríða þér smátt og smátt og þú náðir þér aldrei eftir það .Það gerðist margt á stuttum tíma. Við reyndum að vera dugleg að koma til þín bæði á Vík og Akra- nes. Alltaf tókstu á móti okkur brosandi. En þetta var erfiður tími fyrir þig, miklar breytingar. Það er sárt að sakna. Mikið sem ég er búin að sakna ömmu og nú mun ég sakna ykkar beggja. En þá er gott að eiga góðar minningar Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Ykkar Sigrún Björk. Þegar ég hugsa til baka þá koma margar skemmtilegar minningar með afa, frá því að vera með honum í bílskúrnum, vörubílnum og ferðalögum uppi á fjöllum. Hann var alltaf tilbúinn að hjálpa mér og lærði ég mikið af honum í bílaviðgerðum og hvernig átti að haga sér á fjöll- um. Margar góðar stundir áttum við í ferðalögum upp á hálendinu eða Þórsmörkinni. Í einni af þessum skemmtilegu fjölskyldu- ferðum á leið inná Fjallbak þá var ég með afa og ömmu í græna Bronconum og skyndilega stopp- ar afi og segir við ömmu: Nú leyf- um við stráknum að keyra. 10 ára gamall var ég settur undir stýri og keyrði af stað. Það gekk á ýmsu og héldu allir að sá gamli væri orðin vitlaus því það var allt komið á yfirsnúning en þá var bara strákurinn undir stýri með allt í botni í lága drifinu. Það var alltaf gott að koma til afa og ömmu því þar var tekið vel á móti mér hvort sem ég var í pössun þar eða ekki. Þegar ég kom til þeirra þá var alltaf byrjað að fara í skúrinn því þar var afi að dunda. Afi var hlýr og góður og gaf sér alltaf tíma til að kenna og segja mér sögur um gamla tíma og gát- um við setið lengi við að tala sam- an um bíla og lífið og tilveruna. Þín verður sárt saknað og eftir standa allar góðu minningarnar. Sigursteinn Sævarsson. Sigurður Zophanías Skúlason Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.