Morgunblaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 32
Hægt og hljótt – vandaðar hurðapumpur í úrvali Rafknúnar hurðapumpur eru mikilvæg öryggistól sem tryggja fötluðum og öldruðum aðgengi og eru til þægindaauka fyrir okkur öll. Rétt stillt hurðapumpa kemur í veg fyrir slys á fólki. Eigendum og umsjónar- fólki fasteigna ber skylda til að tryggja öryggi þeirra sem leið eiga um. ÍVélum og verkfærum fást margar gerðir af rafknúnum hurðapumpum, m.a. rafeinda- stýrðar, fyrir inni- og útihurðir og eldvarnarhurðir. Sérfræðingar okkar veita allar nánari upplýsingar. SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Face SW2 Fyrir innihurðir allt að 200 kg (ekki þar sem er mikill dragsúgur). Silfur, mjög nett H:82 mm/D: 117 mm/L:443 mmVottuð samkvæmt EN 16005. Ath. skoða þarf aðstæður hverju sinni. EMO Rafeindastýrð hurðapumpa. Hámarks hurðarbreidd 1400 mm. Hámarksþyngd hurða- blaðs 210 kg. Ekki fyrir eldvarnarhurðir eða útihurðir. Ath. skoða þarf aðstæður hverju sinni. EMSW Rafknúin. (Getur einnig lokað mekanískt). Hentug fyrir eldvarnar- og útihurðir. Hámarks hurðarbreidd 1600mm. Hámarksþyngd hurðar- blaðs 250 kg.Vottuð samkvæmt EN 16005. Ath. skoða þarf aðstæður hverju sinni. PSW250 Mjög nett en öflug raf- eindastýrð pumpa. Getur einnig lokað mekanískt. Hentug fyrir eldvarnar- hurðir og útihurðir. Hámarksþyngd hurðar- blaðs 250 kg.Vottuð samkvæmt EN 16005. Ath. skoða þarf aðstæður hverju sinni. Verð 93.310 kr. m. vsk* Verð 144.770 kr. m. vsk* Verð 165.726 kr. m. vsk* Verð 187.550 kr. m. vsk* *Verð miðað við gengi EUR 1.2.2019 Stórskáldið nefn- ist leikrit eftir Björn Leó Björns- son sem verður frumsýnt í Borg- arleikhúsinu í haust. Í því segir frá heimildar- myndagerðarkon- unni Rakel og elskhuga hennar Andra sem komin eru í niðurníddan iðnaðarbæ í Amasónregnskóginum til að gera heimildarmynd um Bene- dikt, sérvitran nóbelsverðlaunahafa og föður Rakelar, sem er dauðvona. Benedikt leikur Jóhann Sigurð- arson og var hlutverkið skrifað sér- staklega fyrir hann en aðrir leikarar verða Hilmar Guðjónsson og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Leikstjóri er Pét- ur Ármannsson. Stórskáldið skrifað með Jóhann í huga ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Mikilvægi 1:0 sigursins á Albönum á Laugardalsvellinum á laugardag- inn er óumdeilt og það var undir- strikað enn frekar sama kvöld þeg- ar Tyrkir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu frönsku heimsmeistarana 2:0 í Konya. Þau úrslit breyta stöð- unni í H-riðlinum á afgerandi hátt og setja leik Íslands og Tyrklands í í undankeppni EM karla í knatt- spyrnu á Laugardalsvelli í kvöld í annað og stærra samhengi. »24 Sigur Tyrkja á Frökkum breytir leiknum í kvöld ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Vegna fjarveru Ómars Inga Magn- ússonar er Teitur Örn Einarsson eina örvhenta skyttan í íslenska landsliðshópnum í handknattleik sem fór til Grikklands í gær til þess að keppa við landslið heimamanna í undankeppni Evrópumótsins. Ómar Ingi Magnússon hefur ekki jafnað sig eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir undir lok síðasta mán- aðar í kappleik í dönsku úrvals- deildinni. Guð- mundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, ákvað að kalla ekki inn aðra örvhenta skyttu í stað Ómars Inga. Teitur Örn er eina örv- henta skyttan í liðinu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Framsýnar konur stofnuðu Kven- félagið Heklu í Minneapolis í Banda- ríkjunum 1925 og nú, tæplega öld síðar, hafa þær hleypt körlum í fé- lagið í þeim tilgangi að fjölga rödd- um, efla félagið og styrkja. Hekla er elsta starfandi Íslend- ingafélagið í Bandaríkjunum og átti sína fulltrúa á 100. þjóðrækn- isþinginu, sem fór fram í Winnipeg í Kanada ekki alls fyrir löngu. Pat Brennecke er formaður og Ásrún Ýr Kristmundsdóttir varaformaður. Tilgangurinn með stofnuninni var að treysta bönd fólks af íslenskum ætt- um, hlúa að íslenskri arfleifð og að- stoða hjálparþurfi fólk, ekki síst ungar konur, sem fluttu frá Minne- sota og nágrenni til borgarinnar. „Konurnar úr sveitinni höfðu ekkert félagslegt stuðningsnet í borginni og félagið var hugsað sem hjálparhella fyrir þetta unga fólk, nokkurs konar félagslegt kerfi,“ segir Katrín Sig- urðardóttir kjörræðismaður, sem vinnur náið með stjórn félagsins. Til að byrja með var félagið saumaklúbbur 17 kvenna. Þær urðu að vera frá Minnesota, vera giftar og af íslenskum ættum í báðar ættir. Reglurnar hafa breyst mikið í tím- anna rás en konurnar hafa samt ekki viljað opna félagið fyrir körlum fyrr en nú. Ágengir karlar Katrín segir að ekki verði horft framhjá þeirri staðreynd að fé- lagsmenn séu í eldri kantinum og þörf sé á nýju blóði. „Nýliðun hefur til þess að gera verið lítil en af og til hafa borist fyrirspurnir frá karl- mönnum, sem sótt hafa um inn- göngu, en þeim hefur öllum verið hafnað,“ segir hún. Til dæmis sótti Vestur-Íslendingurinn Steingrímur Steinólfsson um inngöngu 1993. Hann fór bónleiður til búðar og þá stofnaði hann ásamt öðrum Íslend- ingafélagið The Icelandic American Association of Minnesota 1994. Kvenfélagið hefur alla tíð haldið uppi reglulegri starfsemi, sem færð hefur verið til bókar, haldið fé- lagsfundi mánaðarlega á veturna og látið gott af sér leiða. Helsta verk- efnið er Samkoma, nokkurs konar árshátíð en um leið aðalfjáröfl- unarkvöldið, fyrst og fremst fyrir Styrktarsjóð Val Bjornson, sem aft- ur styrkir nemendur úr Minne- sota-háskóla til náms í Háskóla Ís- lands og öfugt. Til þessa hafa 43 nemendur frá Íslandi fengið styrk úr sjóðnum. Hann styrkir jafnframt önnur málefni og nýlega var til dæmis ákveðið að styrkja Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Margrét „Maddý“ K. Arnar kom jólaballi fyrir börnin á dagskrá fyrir áratugum og nýtur það mikilla vinsælda. Katrín segir að undirbúningur að inngöngu karla hafi hafist í fyrra- sumar. Færð hafi verið rök fyrir því að þátttaka karla, sem hefðu áhuga á því sem tengdist Íslandi, myndi auka líftíma félagsins og lífga upp á starf- semina. Breyting á lögum félagsins í þessa veru hafi síðan verið samþykkt á félagsfundi fyrr í mánuðinum. „Skrefið hefur verið stigið, allir fé- lagsmenn eru stoltir af upprunanum og karlmenn eru velkomnir,“ segir Katrín. Hún leggur áherslu á að ekki þurfi að breyta nafni félagsins því það sé Icelandic Hekla Club. Framsýnar konur Frá vinstri: Ásrún Ýr Kristmundsdóttir, Katrín Sigurðardóttir og Ólöf Indriðadóttir. Kvenfélag fyrir karla  Hekla, elsta starfandi Íslendingafélagið í Bandaríkjun- um, hleypir inn nýju blóði til þess að auka líftímann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.