Morgunblaðið - 11.06.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
• 3 svefnherbergi – 2 baðherbergi
• Fataherbergi – Tæki í eldhúsi fylg ja
• Sérgarður með einkasundlaug
• Sameiginlegur sundlaugargarður
• Fallegt útsýni
• Flott hönnun – vandaður frágangur
• Golf, verslanir, veitingastaðir í göngufæri
HÚSGÖGN AÐ EIGIN VALI FYRIR
Ikr. 500.000,- fylg ja með í kaupunum
Alg jör GOLF paradís
Verð frá 46.400.000 Ikr.
(339.000 evrur, gengi 1evra/137Ikr.)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
GLÆSILEGAR GOLFVILLUR
LA FINCA golfvöllurinn
Fallegt umhverfi – stutt frá flugvelli
Heilbrigðisráðherra fagnaði ádögunum nýrri heilbrigð-
isstefnu. Sá fögnuður kemur ekki
á óvart enda hafði Alþingi þá sam-
þykkt, með miklum stuðningi og
mótatkvæðalaust,
þingsályktun-
artillögu ráð-
herrans um stefn-
una. Fögnuðurinn
er þó ekki sá sami
hvert sem litið er.
Verulegar efasemd-
ir hafa komið fram
hjá þeim sem starfa
í einkageiranum að heilbrigð-
ismálum, sem þarf ekki að koma
neinum á óvart miðað við andstöðu
núverandi heilbrigðisráðherra við
einkarekstur í heilbrigðiskerfinu.
Þórarinn Guðnason, formaðurLæknafélags Reykjavíkur,
sagði meðal annars um stefnuna í
samtali við Morgunblaðið: „Það
hefur verið kallað eftir heilbrigð-
isstefnu sem geti ríkt viðtæk sátt
um í samfélaginu. Að sú stefna og
sú sátt lifi lengi, sé nothæf á hverj-
um tímapunkti og að það verði
ekki kollsteypur með nýjum ráð-
herra. Því miður er þetta ekki sú
breiða stefna sem heilbrigð-
isstarfsfólk og þjóðin var að kalla
eftir.“
Hjálmar Þorsteinsson, læknirog framkvæmdastjóri Klínik-
urinnar, sagðist ósáttur við tilurð
heilbrigðisstefnunnar og að þetta
virtist eingöngu vera innanbúð-
arvinna í ráðuneytinu en að fag-
aðilum hefði markvisst verið hald-
ið frá vinnunni við stefnuna og
athugasemdir „algjörlega hunds-
aðar“.
Þetta eru alvarlegar athugs-emdir frá þeim sem starfa í
einkageiranum og sérstaklega um-
hugsunarverðar í ljósi þess að heil-
brigðisstefnan var samþykkt mót-
atkvæðalaust.
Svandís
Svavarsdóttir
Umdeild stefna
samþykkt í sátt
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Við viljum gera þetta aðeins snyrtilegra fyrir
gesti og gangandi. Það er öllum til hagsbóta að
þarna sé tekið til hendinni,“ segir Ásmundur Þór
Sveinsson, einn eigenda Session Craft Bar sem
stendur við Bankastræti.
Ásmundur fékk úthlutað einni og hálfri milljón
króna úr Miðborgarsjóði á dögunum til að efla
Sveinstorg, svæðið fyrir framan Bankastræti 14 -
hús sem hefur verið lengi í eigu fjölskyldu Ás-
mundar. Sveinn Zoega, langafi Ásmundar, byggði
húsið og hefur fjölskyldan nefnt svæðið Sveins-
torg eftir honum. „Húsið átti upphaflega að standa
framar í lóðinni en í ferlinu kom í ljós að það var
ekki hægt að sjá upp að Hallgrímskirkju frá Húsi
málarans. Þá var húsið fært aðeins til baka. Svo
var settur upp blómapottur fyrir framan það sem
Reykjavíkurborg sá lengi vel um en torgið hefur
verið svona frá aldamótum,“ segir Ásmundur.
Hann segir að umrætt svæði, gatnamót Lauga-
vegar, Skólavörðustígs og Bankastrætis, sé einn
fjölfarnasti staður landsins. „Þetta er voða grátt
og leiðinlegt núna. Við ætlum að hressa aðeins upp
á Sveinstorgið og gera þarna skemmtilegt afdrep í
sumar.“ hdm@mbl.is
Hressa upp á grátt torg í bænum
Ein og hálf milljón til
að efla Sveinstorg í sumar
Morgunblaðið/Eggert
Grátt Ásmundur Þór Sveinsson á Sveinstorgi við
Bankastræti 14. Svæðið verður lífgað við í sumar.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur
á vakt hjá Veðurstofunni, segir að
enn sé spáð töluverðum hlýindum í
vikunni. Segir hann líklegt að hæsti
hiti náist upp í 20 gráður inn til
landsins í dag. Hlýjast verði í inn-
sveitunum á Norðausturlandi og á
hálendinu.
Haraldur segir að gangi spáin eft-
ir geti hiti farið upp í 24 gráður, á
Suður- og Suðausturlandi á miðviku-
dag.
Haraldur staðfestir að útlit sé fyr-
ir skýjað og kólnandi veðri á Suð-
vesturlandi í vikunni. Hann segir að
áfram verði bjart veður á höf-
uðborgarsvæðinu næstu daga þó
ekki verði jafn sólríkt og síðustu
daga. Hann segir þó líkur á þoku
fyrir hádegi í dag. Segir Haraldur
hafgolu og norðvestanátt ástæðu
fyrir kólnandi veðri á Suðvest-
urlandi í vikunni.
„Það verður ágætisveður en ekki
svona háar hitatölur eins og við
munum væntanlega sjá á Suðurlandi
á miðvikudaginn,“ segir Haraldur.
Enn spáð yfir 20 stiga
hita víða á landinu
Morgunblaðið/Eggert
Blíða Líklegt er að hæsti hiti nái upp í 20 gráður inn til landsins í dag.