Morgunblaðið - 11.06.2019, Page 12
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Eins og fjölmiðlar hafa greint frá
rann fyrirhugaður samruni Renault
og Fiat Chrysler út í sandinn í lok
síðustu viku. Gerðist það í kjölfar
þess að franska ríkið, sem er stærsti
hluthafi Renault, gerði þá kröfu að
bílaframleiðendurnir tveir fengju
blessun Nissan fyrir samrunanum.
Nissan og Renault hafa átt í nánu
samstarfi í um tveggja áratuga skeið
og á Renault rúmlega 43% hlut í jap-
anska félaginu. Á móti á Nissan 15%
hlut í Renault. Urðu afskipti
franskra stjórnvalda til þess að FCA
ákvað að hætta við samrunann.
Nissan er lykillinn
Reuters segir þó ekki alla von úti,
og að þreifingar eigi sér stað á milli
bílaframleiðendanna. Samkvæmt
heimildum Reuters gæti lausnin ver-
ið fólgin í því að Renault minnki hlut
sinn í Nissann í skiptum fyrir stuðn-
ing við samrunann við FCA. Þá hafa
frönsk stjórnvöld sagst vera viljug til
að minnka 15% hlut sinn í Renault ef
það gæti greitt fyrir samrunanum og
styrkt stöðu Renault.
Samband Renault og Nissan hefur
súrnað töluvert eftir handtöku Car-
losar Ghosn síðasta vetur en hann
hafði leitt samstarf fyrirtækjanna.
Batnaði ástandið ekki á mánudag
þegar upplýst var að Renault vildi
hafa meira að segja um fyrirhugaðar
breytingar á stjórnskipulagi Nissan.
Mun Jean-Dominique Senard,
stjórnarformaður Renault, hafa
krafist þess að fyrirtæki hans ætti
fulltrúa í þremur nýjum nefndum hjá
Nissan. Fái Renault ekki sínu fram-
gengt þýðir það að skipulagsbreyt-
ingar Nissan verða ekki að veruleik
því þær þarfnast stuðnings tveggja
þriðju hluthafa.
Krafa Renault kom Nissan í opna
skjöldu því franski bílasmiðurinn
hafði til þessa þótt fylgjandi fyrir-
huguðu nýju stjórnskipulagi, m.a. í
ljósi þeirra áhrifa sem handtaka
Ghosns hefur haft.
Gætu þurft að minnka
hlut sinn í Nissan
Fiat Chrysler og Renault kunna að endurræsa viðræður
Þríhyrningur Vaxandi spenna er í sambandi Nissan og Renault og torveldar
mögulegan samruna við Fiat Chrysler. Ekki virðist öll von úti enn.
AFP
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019
Lyfjalausmeðferð án þekktra aukaverkana.
Bionette er hentugt tæki sem notar ljóstækni til að draga úr einkennumofnæmis-
kvefs s.s. hnerra, kláða, höfuðverk, nefrennsli, nefstíflu og tárvotum augum.
Bionette hentar vel gegn frjókornumúr trjám, grasi, illgresi og blómum.Myglu,
gróum frá plöntum, ryki, rykmaurum, dýrumog öðrum loftbornumofnæmisvökum.
HEILSAÐUVORINU
lgueyðandi ljósameðferð gegn einkennum ofnæmiskvefs
Fæst í apótekum
Sölustaði má finna á facebook.com/bionetteisland
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
óB
Ljósinu er stungið upp í nasirnar, kveikt á því
og haft þangað til það slokknar (um 4mín.).
Má nota tvisvar til þrisvar á dag við upphaf einkenna.
Síðan eftir þörfum þegar einkenni hafa lagast.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
FJARLÆGIR
BLETTI Á ÁKLÆÐI OG TEPPUM
MYNDAR
VÖRN FYRIR BLETTUM OG RAKA
GEFUR
YFIRBORÐINU FALLEGT ÚTLIT
ÁKLÆÐA
ÞURRHREINSIR
FYRIR BÍLA INNRÉTTINGAR
STUTT
● Ríkisstjórn Ítalíu hyggst lengja enn
frekar þann frest sem veittur var til að
bjarga rekstri flugfélagsins Alitalia. Frá
árinu 2017 hefur ríkið haldið rekstri Ali-
talia gangandi, m.a. til að koma í veg fyr-
ir fjöldauppsagnir. Segir Reuters að lest-
arfélag ítalska ríkisins, Ferrrovie dello
Stato, og bandaríska flugfélagið Delta
hafi áhuga á að eignast reksturinn. Virð-
ist þó langt í að samningar náist. Starf-
semi Alitalia heldur áfram að skila tapi
en ítalska ríkið veitti flugfélaginu á sínum
tíma 900 milljóna evra skammtímalán til
að bjarga rekstrinum frá falli. ai@mbl.is
Alitalia fær lengri frest
Nýjust tölur af bandarískum vinn-
markaði benda til að í aprílmánuði
hafi verið 7.449 milljón lausar stöð-
ur hjá fyrirtækjum vestanhafs, þeg-
ar leiðrétt hefur verið fyrir ástíða-
bundnar sveiflur. Framboð af
lausum störfum stóð n.v. í stað á
milli mánaða en fjöldi fólks í at-
vinnuleit dróst saman og fór úr
rúmum 6,2 milljónum í mars niður í
röskar 5,8 milljónir í apríl, að því er
atvinnumálaráðuneyti Bandaríkj-
anna greindi frá á mánudag.
Voru því samtals um 1,625 millj-
ónir fleiri starfa í boði en fólk í at-
vinnuleit og segir Reuters að mun-
urinn á framboði og eftirspurn
vinnuafls hafi ekki verið meiri síðan
mælingar hófust.
Starfsmannavelta í apríl mældist
2,3% og hefur haldist nær óbreytt í
ellefu mánuði. Þykir þetta nokkuð
hátt hlutfall, í sögulegu tilliti, en þó
í samræmi við þá hegðun sem
vænta má þegar aðstæður á vinnu-
markaði eru launþegum í hag.
ai@mbl.is
AFP
Góðæri Gestir á starfakaupstefnu.
Launþegar BNA standa vel að vígi.
Offramboð af störfum
Aldrei meiri munur á eftirspurn og
framboði vinnuafls í Bandaríkjunum
Lúxushótelið The Retreat við Bláa
lónið hlaut á dögunum verðlaun
bandaríska hönnunartímaritsins
Hospitality Design fyrir bestu
hönnun lúxushótels. Tvo hótel
kepptu í flokki lúxushótela og
þurfti The Shanghai Edition að
lúta í lægra haldi fyrir íslenska
hótelinu sem opnaði á páskum í
fyrra.
Alls bárust dómnefnd yfir þús-
und verkefni og vörur til að meta
en ríflega hundrað fengu tilnefn-
ingu í 37 flokkum sem spanna allt
frá lúxus- og hversdagshótelum
yfir í veitinga- og skemmtistaði.
Hospitality Design er rit sem á
sér nærri fjögurra áratuga sögu
og þykir eitt virtasta fagtímaritð á
sínu sviði. ai@mbl.is
Retreat hlýt-
ur hönnun-
arverðlaun
11. júní 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.37 123.95 123.66
Sterlingspund 156.88 157.64 157.26
Kanadadalur 92.35 92.89 92.62
Dönsk króna 18.599 18.707 18.653
Norsk króna 14.18 14.264 14.222
Sænsk króna 13.036 13.112 13.074
Svissn. franki 124.02 124.72 124.37
Japanskt jen 1.1359 1.1425 1.1392
SDR 170.67 171.69 171.18
Evra 138.91 139.69 139.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.8921
Hrávöruverð
Gull 1334.3 ($/únsa)
Ál 1732.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.4 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Samningar hafa náðst um samruna
bandarísku stórfyrirtækjanna
United Technologies (UTC) og Ra-
ytheon. Að sögn Wall Street Jo-
urnal mun hið sameinaða fyrirtæki
fá nafnið Raytheon Technologies
Corp. og verður það næststærsta í
heimi á sviði flugbúnaðar- og her-
gagnaframleiðslu mælt í sölu-
tekjum, næst á eftir Boeing. Vöru-
úrval fyrirtækisins mun spanna
allt frá Patriot-flugskeytum og
sætum í farþegaþotur, yfir í
hreyfla fyrir F-35 herþotur.
Áætlað er að markaðsvirði Rayt-
heon Technologies verði rúmlega
100 milljarðar dala og árstekjur fé-
lagsins í kringum 74 milljarða
dala.
Samruninn markar endalokin á
löngu og viðamiklu uppstokk-
unarferli hjá UTC sem hefur jafnt
og þétt breyst frá því að vera risa-
vaxin samsteypa yfir í að sérhæfa
sig í framleiðslu búnaðar fyrir
flug- og hergagnamarkað.
Samruninn þykir vera svar við
aukinni samþjöppunar- og hagræð-
ingarkröfu markaðarðins, en þess
er vænst að Bandaríkjastjórn muni
draga úr útgjöldum vegna her-
gagnakaupa. ai@mbl.is
Raytheon
og UTC
sameinast
Nýr flug- og
hergagnarisi fæðist