Morgunblaðið - 11.06.2019, Qupperneq 25
EM 2020
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Andrúmsloftið var nokkuð þungt á
blaðamannafundi íslenska karla-
landsliðsins í fótbolta á Laugardals-
velli í gær. Landsliðsþjálfarinn Erik
Hamrén og fyrirliðinn Aron Einar
Gunnarsson sátu þá fyrir svörum.
Fjölmennur hópur tyrkneskra blaða-
manna mætti á fundinn og voru til-
búnir að krefjast svara um þá með-
ferð sem tyrkneska liðið fékk við
komu sína hingað til lands á laug-
ardagskvöld.
Hvorki Hamrén né Aron Einar
vildu tjá sig mikið um atvikið og sner-
ist fundurinn sem betur fer meira um
fótbolta, þótt einn tyrkneskur blaða-
maður hafi verið ósáttur eftir fund-
inn. Tyrkland hefur byrjað gríðarlega
vel í undankeppninni og unnið alla
þrjá leiki sína, skorað í þeim átta
mörk og ekki fengið á sig eitt einasta.
Íslandi hefur hins vegar gengið vel á
móti Tyrkjum í gegnum tíðina, sér-
staklega á Laugardalsvelli. Alls hafa
liðin mæst ellefu sinnum og hefur Ís-
land unnið sjö leiki og aðeins tapað
tveimur. Ísland vann Tyrkland m.a
tvisvar sannfærandi í undankeppni
HM í Rússlandi, en Tyrkneska liðið
er sterkara nú en síðustu ár.
„Ég ber mikla virðingu fyrir tyrk-
neska liðinu. Við erum hins vegar líka
með gott lið og þetta verður spenn-
andi leikur. Ég er spenntur að sjá
hvernig gengur hjá okkur. Tyrkir
voru flottir á útivelli á móti Albaníu
og enn flottari á móti Frökkum,“
sagði Erik Hamrén á fundinum.
Tyrkir hafa unnið fimm síðustu leiki
sína og þar á meðal 2:0-sigur á heims-
meisturum Frakka á heimavelli á
laugardaginn var.
Aron Einar var hrifinn af tyrk-
neska liðinu gegn Frakklandi en
benti á að íslenska liðið muni leika
öðruvísi leik en Frakkland.
„Tyrkirnir líta mjög vel út og þeir
voru flottir á móti Frökkum. Þeir
hleyptu Frökkum ekki í þeirra leik.
Þeir sátu aftur og það virkaði vel hjá
þeim. Við spilum öðruvísi en Frakk-
arnir og vonandi gengur það upp hjá
okkur. Það er uppgangur og meðbyr
hjá Tyrkjunum,“ sagði fyrirliðinn.
Birkir og Jóhann tæpir
Hamrén greindi frá því að allir
leikmenn íslenska liðsins æfðu í gær,
en þeir Birkir Bjarnason og Jóhann
Berg Guðmundsson æfðu létt með
Friðriki Ellerti Jónssyni, sjúkraþjálf-
ara liðsins. Jóhann Berg hefur verið
að glíma við meiðsli og þurfti að fara
snemma af velli í seinni hálfleik gegn
Albaníu. Birkir lék allan leikinn en
hann birti mynd af sér á Instagram í
meðhöndlun hjá sjúkraþjálfara eftir
leikinn.
Allir leikmenn tyrkneska liðsins
sem spiluðu á móti Frakklandi á laug-
ardaginn eru heilir heilsu og sam-
kvæmt tyrkneskum fjölmiðlum mun
Senol Günes landsliðsþjálfari Tyrkja
stilla upp sama byrjunarliði gegn Ís-
landi.
Ísland mætir sterkari Tyrkjum
Ísland mætir Tyrklandi í mikilvægum leik í undankeppni EM í dag Tyrkir
unnið alla leiki sína til þessa og ekki fengið á sig mark Jóhann og Birkir tæpir
Morgunblaðið/Eggert
Upphitun Albert Guðmundsson, Ari Freyr Skúlason, Hörður Björgvin Magnússon og fleiri landsliðsmenn hita upp
fyrir æfingu íslenska landsliðsins í Laugardal í gærmorgun. Stórleikurinn við Tyrki fer þar fram í kvöld.
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019
Undankeppni EM karla 2020
H-RIÐILL:
Ísland – Albanía........................................ 1:0
Moldóva – Andorra .................................. 1:0
Tyrkland – Frakkland ............................. 2:0
Staðan:
Tyrkland 3 3 0 0 8:0 9
Frakkland 3 2 0 1 8:3 6
Ísland 3 2 0 1 3:4 6
Albanía 3 1 0 2 3:3 3
Moldóva 3 1 0 2 2:8 3
Andorra 3 0 0 3 0:6 0
I-RIÐILL:
Rússland – San Marínó............................ 9:0
Belgía – Kasakstan................................... 3:0
Skotland – Kýpur ..................................... 2:1
Staðan:
Belgía 3 3 0 0 8:1 9
Rússland 3 2 0 1 14:3 6
Skotland 3 2 0 1 4:4 6
Kýpur 3 1 0 2 6:4 3
Kasakstan 3 1 0 2 3:7 3
San Marínó 3 0 0 3 0:16 0
J-RIÐILL:
Armenía – Liechtenstein ........................ 3:0
Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein.
Finnland – Bosnía .................................... 2:0
Grikkland – Ítalía ..................................... 0:3
Staðan:
Ítalía 3 3 0 0 11:0 9
Finnland 3 2 0 1 4:2 6
Bosnía 3 1 1 1 4:5 4
Grikkland 3 1 1 1 4:5 4
Armenía 3 1 0 2 4:4 3
Liechtenstein 3 0 0 3 0:11 0
2. deild karla
Þróttur V. – Fjarðabyggð........................ 2:1
Tindastóll – Leiknir F.............................. 1:2
Vestri – ÍR ................................................ 2:1
Selfoss – KFG........................................... 2:0
Staðan:
Selfoss 6 4 1 1 14:4 13
Víðir 6 4 1 1 15:9 13
Leiknir F. 6 3 3 0 12:6 12
Völsungur 6 3 1 2 8:9 10
Fjarðabyggð 6 3 0 3 10:8 9
KFG 6 3 0 3 9:10 9
Vestri 6 3 0 3 9:10 9
Þróttur V. 6 2 2 2 7:8 8
Dalvík/Reynir 6 1 4 1 7:7 7
ÍR 6 1 2 3 6:9 5
Kári 6 1 2 3 8:13 5
Tindastóll 6 0 0 6 4:16 0
3. deild karla
Vængir Júpíters – Einherji ......................0:3
Höttur/Huginn – Augnablik.................... 2:2
KV – KF .................................................... 2:1
Sindri – Skallagrímur ...............................5:2
Staða efstu liða:
KV 6 5 0 1 15:7 15
Kórdrengir 6 4 2 0 13:5 14
KF 6 4 1 1 13:6 13
V. Júpiters 6 3 0 3 9:9 9
2. deild kvenna
Völsungur – Álftanes ............................... 2:1
Staða efstu liða:
Völsungur 3 3 0 0 7:3 9
Grótta 3 2 1 0 8:1 7
Álftanes 3 2 0 1 11:3 6
KNATTSPYRNA
Sindri Magnússon vann til brons-
verðlauna í tugþraut 20 til 22 ára á
Norðurlandameistaramótinu í fjöl-
þrautum sem fór fram í Uppsala í
Svíþjóð um helgina.
Sindri varð þriðji í 110 metra
grindarhlaupi og fjórði í kringlu-
kasti en Ari Sigþór Eiríksson var
þar fjórði. Ari Sigþór stökk svo
næst hæst allra í stangarstökki og
var Sindri fyrstur í 1.500 metra
hlaupi á tímanum fjórar mínútur og
41 sek. Ari Sigþór varð fjórði og
Gunnar Eyjólfsson hreppti fimmta
sætið. sport@mbl.is
Sindri fékk brons
á NM í Uppsala
Ljósmynd/FRÍ
Brons Sindri Magnússon hafnaði í
þriðja sæti á NM í tugþraut.
Dagbjartur Sigurbrandsson og
Ragnhildur Kristinsdóttir, bæði úr
GR, báru sigur úr býtum á Síma-
mótinu í golfi á Hlíðavelli í Mos-
fellsbæ sem fram fór um helgina.
Dagbjartur, sem vann einnig Eg-
ils Gull-mótið í síðasta mánuði, spil-
aði þriðja og síðasta hringinn á
fimm höggum undir pari en hann
lauk keppni á alls sex höggum und-
ir. Ragnhildur lék hringina þrjá á
samtals tíu höggum undir pari eftir
frábæra spilamennsku á lokadeg-
inum. Saga Traustadóttir var önn-
ur á 18 höggum yfir pari.
Dagbjartur og
Ragnhildur efst
Ljósmynd/GSÍ
Best Ragnhildur Kristinsdóttir og
Dagbjartur Sigurbrandsson.
Gestrisni Íslendinga og upp-
þvottaburstar hafa verið helsta um-
ræðuefni síðustu daga, frekar en
knattspyrnan í aðdraganda leiks Ís-
lands og Tyrklands á Laugardals-
vellinum í undankeppni Evr-
ópumeistaramótsins í kvöld. Tyrkir
voru óhressir með miklar tafir í
Leifsstöð er þeir komu til landsins
sem og ónefndan ferðamann sem
otaði þvottabursta að Emre Belö-
zoglu, fyrirliða Tyrkja, við komuna.
Þessi framkoma er okkur Íslend-
ingum til minnkunar að mati Senol
Günes, landsliðsþjálfarans, en hann
var heldur óhress á blaðamanna-
fundi í Laugardalnum í gærkvöldi.
„Ég er búinn að vera í fótbolta í 53
ár og aldrei lent í þessu. Ég kom til
Íslands 1976, völlurinn ykkar er
eins en fólkið er öðruvísi,“ sagði súr
Günes áður en hann sneri sér loks
að fótboltanum en Tyrkir eru í
góðri stöðu í riðlinum eftir frækinn
sigur á heimsmeisturum Frakka.
„Ég hef alltaf sagt að leikurinn við
Ísland er mikilvægari en leikurinn
við Frakka.“
Það mátti heyra á bæði Günes og
Ýrfan Kahveci, leikmanni, að Tyrk-
ir væru fullir sjálfstrausts enda
með gott lið og nýbúnir að leggja
heimsmeistaranana. Hins vegar var
líka ljóst að atburðarrás undanfar-
inna daga situr í þeim og kemur
brátt í ljós hvaða áhrif það hefur.
Apagrímur gerðu út um HM vonir
Wales-verja á sínum tíma er þeir
mættu öskureiðum Íslendingum.
Það skyldi þó ekki vera að upp-
þvottabursti verði okkur að falli að
þessu sinni? kristoferk@mbl.is
Laugardalsvöllur eins,
Íslendingar öðruvísi