Morgunblaðið - 11.06.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
HANDBOLTI
Þýskaland
Leipzig – RN Löwen ........................... 28:26
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 10
mörk fyrir Löwen. Alexander Petersson
lék ekki með vegna meiðsla.
Kiel – Hannover-Burgdorf................. 30:26
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Kiel er frá
keppni vegna meiðsla. Alfreð Gíslason
þjálfar liðið.
Füchse Berlín – Wetzlar..................... 25:27
Bjarki Már Elísson skoraði 1 mark fyrir
Füchse.
Bergischer – Flensburg...................... 24:27
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 8 mörk
fyrir Bergischer.
Bietigheim – Gummersbach .............. 25:25
Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim.
Stuttgart – Erlangen .......................... 27:28
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Lokastaðan:
Flensburg 64, Kiel 62, Magdeburg 54, RN
Löwen 50, Melsungen 42, Füchse Berlín 38,
Bergischer 38, Göppingen 36, Erlangen 30,
Wetzlar 29, Leipzig 27, Lemgo 26, Hann-
over-Burgdorf 26, Minden 25, Stuttgart 23,
Ludwigshafen 14, Gummersbach 14, Bie-
tigheim 14.
Tvö neðstu liðin falla.
B-deild:
Grosswallstadt – Balingen ................. 21:31
Oddur Gretarsson skoraði 2 mörk fyrir
Balingen.
Lübeck-Schwartau – Hamm .............. 37:35
Sigtryggur Daði Rúnarsson náði ekki að
skora mark fyrir Lübeck-Schwartau.
Essen – Hamburg ................................ 31:27
Aron Rafn Eðvarðsson lék ekki með
Hamburg vegna meiðsla.
Hüttenberg – Rimpar ......................... 32:26
Ragnar Jóhannsson lék ekki með Hüt-
tenberg.
Lokastaðan:
Balingen 61, Nordhorn 57, Coburg 55,
Hamm 52, Lübeck-Schwartau 50, Essen
45, N-Lübbecke 43, , Ferndorf 41, Rimpar
39, Hüttenberg 37, Aue 37, Hamburg 35,
Dormagen 33, Emsdetten 33, Elbflorenz
31, Wilhelmshavener 30, Grosswallstadt 24,
Dessauer 24, Hagen 24, Rhein Vikings 9.
Tvö efstu lið fara upp, fimm neðstu falla.
Danmörk
Oddaleikur um meistaratitilinn:
Aalborg – GOG .................................... 38:32
Janus Daði Smárason skoraði 9 mörk
fyrir Alaborg. Ómar Ingi Magnússon lék
ekki með vegna heilahristings. Arnór Atla-
son er aðstoðarþjálfari liðsins.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 10 mörk
fyrir GOG.
Aalborg vann 2:1 og er danskur meistari
2019.
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM karla 2020:
Laugardalsvöllur: Ísland – Tyrkland . 18.45
Í KVÖLD!
Arnór Atlason og Janus Daði
Smárason fögnuðu danska meist-
aratitlinum í handknattleik karla í
annað sinn á þremur árum með liði
sínu Aalborg Håndbold á sunnudag-
inn þegar Álaborgarliðð vann GOG,
38:32, í oddaleik sem fram fór í Jut-
lander Bank Arena í Álaborg að við-
stöddum 5.000 áhorfendum. Uppselt
var á leikinn og það á mettíma.
Ómar Ingi Magnússon er þriðji
Íslendingurinn hjá Alaborg. Hann
gat ekki tekið þátt í oddaleiknum
frekar en tveimur fyrstu leikjum
Aalborg og GOG. Ómar Ingi hafði
ekki jafnað sig af heilahrisstingi sem
hann varð fyrir í undanúrslitaleik við
Bjerringbro/Silkeborg í undan-
úrslitum hinn 26. maí.
Ómar Ingi lék frábærlega með
Aalborg á leiktíðinni og var m.a. val-
inn í lið keppnistímabilsins í Dan-
mörku. Hann var markahæsti leik-
maður liðsins með 169 mörk. Þess
utan varð Ómar Ingi stoðsend-
ingakóngur dönsku úrvalsdeild-
arinnar með 140 sendingar. Ómar
Ingi fylgdist með úrslitaleiknum á
sunnudaginn frá hliðarlínunni.
Janus Daði fór á kostum í úrslita-
leiknum á sunnudaginn og skoraði
m.a. níu sinnum. Janus Daði
blómstraði með liðinu í úr-
slitakeppninni.
Óðinn Þór Ríkharðsson stóð sig
einnig afar vel í liði GOG og skoraði
tíu af 32 mörkum liðsins í leiknum.
Árangurinn á keppnistímabilinu
fer í sögubækur Aalborg Håndbold.
Ekki aðeins vegna þess að liðið var
meistari heldur helst sökum þess að
liðið varð í fyrsta sinn tvöfaldur
meistari en fyrr á árinu vann liðið
bikarkeppnina.
Þetta er í fjórða sinn frá árinu
2010 sem Aalborg verður danskur
meistari í handknattleik karla. Síð-
ast þegar liðið vann danska meist-
aratitilinn lék það undir stjórn Ar-
ons Kristjánssonar. Hann hætti með
liðið fyrir ári og flutti heim eftir að
hafa stokkað upp í leikmannahópn-
um og leggja þar með grunn að
meistaraliði þessa tímabils.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
Aalborg. Við því hlutverki tók hann
síðasta sumar eftir að hafa lagt
keppnisskóna á hilluna eftir langan
og farsælan feril sem leikmaður.
iben@mbl.is
Íslendingatríó er
danskur meistari
Vann titilinn í fjórða sinn á 10 árum
Morgunblaðið/Golli
Öflugir Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason, landsliðsmenn og
Selfyssingar eru leikmenn nýkrýndra meistara í Danmörku, Aalborg.
Knattspyrnumaðurinn Jón Dagur
Þorsteinsson er sagður vera undir
smásjá forráðamanna danska úr-
valsdeildarliðsins AGF. Vefmiðilinn
433.is greindi frá því í gær að Jón
Dagur væri á leið í læknisskoðun
hjá liðinu og komi ekkert óvænt
upp á skrifi Jón Dagur undir samn-
ing við AGF í Árósum.
Til stendur að AGF kaupi Jón
Dag af enska liðinu Fulham þar
sem hann hefur ekki fest sig í sessi.
Jón Dagur lék sem lánsmaður hjá
danska liðinu Vendsyssel á síðustu
leiktíð við góðan orðstír.
Jón Dagur sagð-
ur á leið til AGF
Morgunblaðið/Hari
Flytur Jón Dagur Þorsteinsson er
sennilega á leiðinni til Árósa.
Handknattleiksmaðurinn Viggó
Kristjánsson fékk tvenns konar við-
urkenningu við lok keppn-
istímabilsins í Austurríki en hann
lék einstaklega vel með West Wien
á leiktíðinni sem er nýlokið.
Í árlegu vali sem forsvarsmenn
austurrísku úrvalsdeildarinnar
stóðu fyrir varð Viggó valinn í úr-
valslið ársins auk þess að vera val-
inn besti erlendi leikmaður deild-
arinnar á keppnistíðinni. .
Hann flytur í sumar yfir landa-
mærin til Þýskalands og leikur með
Leipzig á næsta keppnistímabili.
Fékk tvenn verð-
laun í Austurríki
Ljósmynd/handball-westwien.at
Handbolti Viggó Kristjánsson hef-
ur gert það gott í Austurríki.
Alfreð Gíslason var kvaddur með
miklum virktum eftir síðasta deild-
arleik Kiel undir hans stjórn í
þýsku 1.deildinni í handknattleik á
sunnudaginn. Alfreð hættir nú
þjálfun liðsins eftir 11 sigursæl
keppnistímabil og á þriðja tug titla
á ýmsum sviðum íþróttarinnar.
Meðal annars vann Kiel þýsku bik-
arkeppnina á tímabilinu og EHF-
keppnina.
Kiel vann lokaleikinn, 30:26,
gegn Hannver-Burgdorf og hafnaði
í öðru sæti deildarinnar með 62 stig
af 68 mögulegum. Flensburg öngl-
aði saman tveimur stigum meira og
varð þýskur meistari annað árið í
röð. Kiel tekur sæti í Meist-
arardeild Evrópu á næsta keppn-
istímabili.
Þau tíðindi urðu ljós að loka-
umferðinni afstaðinni að hið sögu-
fræga lið Gummersbach féll úr
deildinni eftir að hafa átt samfellt
sæti í efstu deild í 53 ár og unnið
þýska meistaratitilinn á þeim tíma í
12 skpti. Gummerabach gerði jafn-
tefli við lærisveina Hannesar Jón
Jónssonar í lokumferðinni, 25:25.
Bæði liðin féllu en Ludwigshafen,
sem setið hefur í botninum, nánast
frá fyrstu leik vann Minden, 31:30,
og tókst að klóra sig upp fyrir fall-
sætin tvö.
Ítarlega er fjallað og lokaleik Al-
freð á mbl.is/sport/handbolti.
Alfreð kvaddi
með sigri og silfri
Ljósmynd/THW Kiel
Hættur Alfreð Gíslason stýrði liði
Kiel í síðasta sinn á sunnudag.
Ómar Ingi Magnússon gat ekki gef-
ið kost á sér í íslenska landsliðið í
handknattleik karla sem hélt til
Grikklands í gær en það mætir
landsliði Grikkja í undankeppni
Evrópumótsins annað kvöld í bæn-
um Kozani. Guðmundur Þórður
Guðmundsson valdi ekki aðra örv-
henta skyttu í liðið í stað Ómars og
þess vegna mun mikið mæða á Teiti
Erni Einarssyni, leikmanni Kristi-
ansand, í leiknum í Grikklandi.
Leikmennirnir 16 sem fór til
Grikklands er: Ágúst Elí Björg-
vinsson og Viktor Gísli Hallgríms-
sonar, markverðir. Bjarki Már El-
ísson, Guðjón Valur Sigurðsson,
Aron Pálmarsson, Ólafur Andrés
Guðmundsson, Haukur Þrastarson,
Elvar Örn Jónsson, Janus Daði
Smárason, Teitur Örn Einarsson,
Arnór Þór Gunnarsson, Sigvaldi
Björn Guðjónsson, Arnar Freyr
Arnarsson, Ýmir Örn Gíslason,
Daníel Þór Ingason og Ólafur Gúst-
afsson.
Ísland vann fyrri leikinn við
Grikki sem fram fór í Laugardals-
höll með 14 marka mun, 35:21.
Grikkir hafa tvö stig í riðlinum eftir
fjóra leiki en íslenska liðið hefur
fimm stig eins og Norður-
Makedóníu. Tyrkir eru með fjögur
stig. iben@mbl.is
Teitur stendur vakt-
ina í fjarveru Ómars