Morgunblaðið - 11.06.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019
Þýskaland
Undanúrslit, þriðji leikur:
Oldenburg – Alba Berlín .................. 89:100
Martin Hermannsson skoraði 23 stig
fyrir Alba Berlin, átti 4 stoðsendingar og
tók 1 frákast.
Alba Berlin vann 3:0.
Úrslitakeppni NBA
Fjórði úrslitaleikur:
Golden State – Toronto...................... 92:105
Staðan var 3:1 fyrir Toronto fimmta leik
liðanna sem fór fram í nótt. Sjá mbl.is/
sport.
KÖRFUBOLTI
HM kvenna í Frakklandi
A-RIÐILL:
Noregur – Nígería.................................... 3:0
Staðan:
Frakkland 1 1 0 0 4:0 3
Noregur 1 1 0 0 3:0 3
Nígería 1 0 0 1 0:3 0
Suður-Kórea 1 0 0 1 0:4 0
B-RIÐILL:
Þýskaland – Kína...................................... 1:0
Spánn – Suður-Afríka .............................. 3:1
Staðan:
Spánn 1 1 0 0 3:1 3
Þýskaland 1 1 0 0 1:0 3
Kína 1 0 0 1 0:1 0
Suður-Afríka 1 0 0 1 1:3 0
C-RIÐILL:
Ástralía – Ítalía......................................... 1:2
Brasilía – Jamaíka.................................... 3:0
Staðan:
Brasilía 1 1 0 0 3:0 3
Ítalía 1 1 0 0 2:1 3
Ástralía 1 0 0 1 1:2 0
Jamaíka 1 0 0 1 0:3 0
D-RIÐILL:
England – Skotland.................................. 2:1
Argentína – Japan.................................... 0:0
Staðan:
England 1 1 0 0 2:1 3
Argentína 1 0 1 0 0:0 1
Japan 1 0 1 0 0:0 1
Skotland 1 0 0 1 1:2 0
E-RIÐILL:
Kanada – Kamerún .................................. 1:0
Staðan:
Kanada 1 1 0 0 1:0 3
Holland 0 0 0 0 0:0 0
Nýja-Sjáland 0 0 0 0 0:0 0
Kamerún 1 0 0 1 0:1 0
Úkraína
Seinni úrslitaleikur um úrvalsdeildarsæti:
Kolos – Chornomorets ............................ 2:0
Árni Vilhjálmsson lék fyrstu 71 mínút-
una fyrir Chornomorets.
Chornomorets féll úr úrvalsdeildinni.
Spánn
B-deild:
Osasuna – Real Oviedo............................ 1:0
Diego Jóhannesson lék ekki með Real
Oviedo sem endaði í 8. sæti af 22 liðum.
KNATTSPYRNA
HM 2019
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Heimsmeistarakeppni kvenna í
knattspyrnu hófst í Frakklandi á
föstudagskvöldið en gestgjafarnir
hófu herlegheitin á öruggum 4:0-
sigri gegn Suður-Kóreu í upphafs-
leiknum. Frakkar eru því efstir í A-
riðlinum en fast á þeirra koma Norð-
menn sem byrjuðu einnig full-
komnlega er þeir lögðu Nígeríu, 3:0.
María Þórisdóttir spilar í vörn
norska landsliðsins og var henni
hrósað í hástert fyrir frammistöðu
sína. Noregur er auðvitað án stór-
stjörnunnar Ada Hegerberg en liðið
virðist fullfært um að ná árangri án
hennar.
Meistaraefnin frá Þýskalandi byrj-
uðu mótið á því að leggja Kína að
velli, 1:0, í B-riðli og var sigurinn
öruggari en úrslitin gefa til kynna.
Hin unga Giulia Gwinn braut ísinn og
skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik
en þær þýsku áttu alls 16 mark-
tilraunir og spiluðu eins og lið sem
ætlar sér lengra en fjórða sætið sem
varð raun Þjóðverja á síðasta móti.
Það eru hins vegar Spánverjar sem
sitja í toppsætinu þökk sé 3:1-sigri
gegn Suður-Afríku en þeir þurfti
síðbúið áhlaup til þess. Þær suðurafr-
ísku tóku óvænt forystuna snemma
leiks og virtust ætla að halda fegnum
hlut með því að liggja aftarlega og
verjast en allt kom fyrir ekki, Jenni-
fer Hermoso skoraði úr tveimur víta-
spyrnum áður en Lucia Garcia inn-
siglaði heppilegan sigur.
Fyrsti sigur Ítala í 20 ár
Óvæntustu úrslitin í Frakklandi til
þessa komu á laugardaginn er Ítalía
skellti Ástralíu, 2:1, í C-riðlinum. Ás-
ralska liðið á að vera með þeim sterk-
ari á mótinu en Ítalía var að taka þátt
í fyrsta sinn síðan 1999. Það virtist
allt ætla fara eftir bókinni í Stade du
Hainaut þegar hin öfluga Samantha
Kerr kom Áströlum yfir snemma
leiks en Barbara Bonansea jafnaði
metin snemma eftir hlé og skoraði
svo dramatískt sigurmark seint í
uppbótartíma og er vart hægt að lýsa
gleði og fögnuði leikmanna og stuðn-
ingsmanna Ítalíu í leikslok. Þá batt
Brasilía sömuleiðis enda á bið eftir
sigri í hinum leik riðilsins er liðið
vann 3:0-sigur á Jamaíku. Brasilíska
landsliðið var búið að tapa níu leikj-
um í röð en gamla kempan Cristiane
Rozeira skoraði þrennu og sló þar
með met sem Cristiano Ronaldo átti.
Hún er nú elsti leikmaðurinn til að
skora þrennu á lokakeppni HM.
Metáhorf á grannaslaginn
Nágrannaþjóðir öttu kappi í fyrsta
leik D-riðils er Englendingar höfðu
betur gegn Skotum, 2:1, en við-
ureignin laðaði að sér fleiri sjónvarps-
áhorfendur en nokkru sinni fyrr er um
sex milljón manns stilltu sér upp fyrir
sjónvarpið á Englandi. Þær ensku
þykja sigurstranglegar í Frakklandi,
rétt eins og Japan sem einnig leikur í
riðlinum. Japanir máttu sætta sig við
brons á síðustu keppni og svo óvænt
jafntefli í fyrsta leik í ár, markalaust
gegn Argentínu sem aldrei hafði feng-
ið stig á lokakeppni HM áður.
Síðasti leikurinn helgarinnar fór svo
fram annað kvöld er Kanada vann 1:0-
sigur á Kamerún í heldur lítilfjör-
legum leik en þó þær kanadísku hafi
aðeins skorað einu sinni var sigurinn
aldrei í hættu enda yfirburðir þeirra
miklir. Síðar í dag mætast svo hin lið-
in í E-riðlinum, Nýja-Sjáland og Hol-
land, en í kvöld hefja svo heimsmeist-
ararnir sjálfir, Bandaríkjamenn,
keppni er þeir spila við Tæland í F-
riðlinum.
Mikil stemning er fyrir mótinu og
hefur umgjörðin aldrei verið betri.
Það er viðeigandi enda keppa margar
af færustu knattspyrnukonum heims
í Frakklandi. Skemmtilegir og jafn-
vel óvæntir leikir um helgina gefa
góð fyrirheit um það sem koma skal á
heimsmeistaramótinu í ár.
Meistaraefnin fara vel
af stað í Frakklandi
María Þórisdóttir frábær með Noregi Fyrstu stig Argentínu komu gegn silfurhöfunum
AFP
Fögnuður Leikmenn kanadíska landsliðsins fagna sigri sínum á landsliði Kamerún í Montpellier í gærkvöld.
Portúgal vann Þjóðadeild UEFA
eftir sigur á Hollandi, 1:0, í úrslita-
leiknum í Porto á laugardagskvöld.
Goncalo Guedes skoraði sig-
urmarkið eftir um klukkutíma leik.
Hollendingar komust lítt áleiðis í
sóknarleik sínum lengst af.
Það voru Portúgal og Holland
sem mættust í fyrsta úrslitaleiknum
um Þjóðadeildina eftir að Portúgal
sigraði Sviss og Holland lagði Eng-
lendinga í undanúrslitunum fyrr í
vikunni. Heimamenn í Portúgal
voru betri í leiknum, þá sérstaklega
eftir hlé er þeir færðu sig upp á
skaftið og brutu loks ísinn. Það
gerðist eftir um klukkutíma leik
þegar Bernardo Silva kom bolt-
anum á Guedes rétt utan teigs en
hann skoraði með föstu skoti í fjær-
hornið. Jasper Cillesen var í bolt-
anum í marki Hollendinga og hefði
hugsanlega átt að verja skotið.
Hollendingar reyndu hvað þeir
gátu síðasta hálftímann til að jafna
metin en en þeim tókst aðeins að ná
einu skoti á mark Protúgals í leikn-
um. sport@mbl.is
AFP
Sigurgleði Leikmenn portúgalska landsliðsins voru glaðr í bragði.
Portúgalar unnu
fyrstir Þjóðadeildina