Morgunblaðið - 11.06.2019, Page 29
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar
menningarsögu sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til
samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni,
sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkost-
urinn fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér
völl og koma fram með vandaða gripi sem standast alþjóð-
legan samanburð og eru hvort tveggja nytjamunir og/eða
skrautmunir. Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands setti safnið
upp sýninguna 100 ár100 hlutir á Instagram þar sem 100 færslur eru
birtar á jafnmörgum dögum af hönnunargripum í eigu safnsins frá
árunum 1918 til 2018.
1994 SIGURÐUR ÞORSTEINSSON
Barstóllinn Lyra er hluti af stólalínu í mismunandi
hæðum sem margir þekkja og eru framleiddir af
fyrirtækinu Magis. Það sem ef til vill færri vita er að
einn hönnuða hönnunarhópsins sem stendur að baki
honum, Design Group Italia í Mílanó, er íslenski iðn-
hönnuðurinn Sigurður Þorsteinsson (1965).
Stóllinn er gerður úr krómuðu póleruðu stáli og
skálarlaga sæti úr samlímdum beykikrossviði. Hönn-
un stólsins var lokið árið 1994 og hefur hann lengi vel
verið með vinsælli vörum fyrirtækisins Magis. Stóll-
inn var á norrænu farandsýningunni „Scandinavian
design beyond the myth 2003-2006“ og var gjöf til
safnsins að sýningarferðalagi loknu.
Íslensk hönnun - Hönnunarsafn Íslands
Skálarlaga sæti við barinn
Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands/Elísabet V. Ingvarsdóttir skráði
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-350 Limited
Litur: Svartur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 440 Hö,
925 ft of torque með FX4 off-road pakka, upphituð/
loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, auka
bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í hlera
og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
12.350.000 m.vsk
2019 Ford F-350 Lariat
Litur: Ruby red/gray, svartur að innan. (Ath. Myndin er
af eins bíl en neðri litur er meira út í grátt). 6-manna
bíll. 6,7L Diesel, 440 Hö, 925 ft of torque með FX4 off-
road pakka, quad beam headlights, upphituð/loftkæld
sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, Driver altert-pakki,
Trailer tow camera system og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
10.970.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Platinum
Ekinn 10.000 km. Litur: Platinum white/svartur að
innan. Upphækkaður, tölvubreyting 431 hö, lok á
palli, Ceramic húðaður. Quad-beam LED hedlights,
bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart,
20” felgur. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 431 hestöfl
470 lb-ft of torque.
VERÐ
11.790.000 m.vsk
2019 GMC Denali 3500
Litur: Silver, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel,
445 HÖ, 2019 Módel. Vel útbúinn bíll t.d. upphitað
stýri, BOSE hátalarakerfi, dual alternators,
upphituð og loftkæld sæti, geymsla undir aftursæti,
heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki)
og fleira.
VERÐ
11.360.000 m.vsk
Bandaríski rithöfundurinn Tayari
Jones vann til hinna virtu Booker-
verðlauna í flokki skáldskapar
kvenna nýverið og skaut tveimur
höfundum sem áður höfðu unnið
verðlaunin ref fyrir rass, sam-
kvæmt breska tímaritinu The Gu-
ardian.
Bók Jones, An American Marr-
iage, fjallar um ungt nýgift banda-
rískt par af afrískum uppruna og
það þegar annar aðilinn er rang-
lega ásakaður um nauðgun.
Dómarinn Kate Williams sagði
bókina „undraverða rannsókn á
Ameríku og amerísku lífi sem hefur
nánd hjónabandsins í brennidepli á
gríðarstórum pólitískum striga.“
Barack Obama, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna, og Oprah Win-
frey, þáttastjórnandi og athafna-
kona, hafa bæði lýst yfir aðdáun
sinni á bókinni.
Sigraði tvo fyrri verðlaunahafa Booker
Ljósmynd/Rayon Richards
Óvænt Sigurinn kom Jones á óvart en aðr-
ir sterkir höfundar komu til greina.
Söngkonan Madonna hefur nú bæst
í hóp fjölmargra kvenna sem sakað
hafa kvikmyndaframleiðandann
Harvey Weinstein um óviðeigandi
kynferðislega hegðun eða áreitni í
sinn garð. BBC greinir frá þessu.
Söngkonan segir að Weinstein
hafi farið yfir hennar mörk þegar
þau unnu í heimildarmyndinni
Truth or Dare árið 1991. „Hann
daðraði ótrúlega mikið við mig á
kynferðislegan hátt og var mjög
ágengur þegar við unnum saman,“
sagði Madonna í viðtali við The
New York Times. „Hann var giftur
á þessum tíma og ég hafði svo sann-
arlega ekki áhuga,“ bætti hún við.
Heimildarmyndin Truth or Dare
sem fjallaði um líf Madonnu var
framleidd af fyrirtæki Weinsteins,
The Weinstein Company, sem varð
gjaldþrota í fyrra eftir að hafa rek-
ið Weinstein árið 2017.
Madonna ásakar Harvey Weinstein
AFP
Madonna „Ég var meðvituð um að fleiri
konur í bransanum lentu í honum.“
Sýning Magneu Ásmundsdóttur,
Fjallið flutti í nótt, var opnuð 6. júní
á kaffihúsinu Mokka og lýkur 8.
ágúst. Magnea sviðsetur dulsögur –
sögur sem láta ekki allt uppi við
fyrsta augnatillit áhorfandans en
eru þeim mun meira krefjandi þeg-
ar betur er skoðað, eins og því er
lýst í tilkynningu.
„Magnea ögrar áhorfendum með
því að umbreyta íslensku landslagi,
endurvinna það; smækka það stóra
og stækka það smáa. Markviss og
nákvæm vinnubrögð listakonunnar
byggjast á hefðum fluxus-listar,
gjörninga og tímatengdrar listar.
Þessa þætti notar hún til að ögra og
tæla sýningargesti til þátttöku í
verkunum sem hægt er að hand-
leika og umbreyta,“ segir þar enn
fremur og að á þennan óvenjulega
hátt sverji verk Magneu sig í ætt
við íslenska landslagshefð án þess
að gestir skoði landslagið eingöngu
utan frá á tvívíðum fleti. Hér gegni
leikur og snerting lykilhlutverki.
„Annar veigamikill þáttur í inn-
setningunni Fjallið flutti í nótt er
hið stóra í því smáa og smáa í því
stóra. Í meðförum Magneu verða
þessir kraftar að yin og yang þar
sem andstæðupör tvíhyggjuhugs-
unar leysast upp og verða eitt í öllu
og allt í einu. Til að vera fær um að
vinna á þennan hátt þarf Magnea
að þekkja íslenska náttúru, heiðar
og hraunbreiður, fjöll og hæðir. Þá
vinnu hefur Magnea innt af hendi
enda iðkaði hún fjallgöngur og hef-
ur alltaf verið hrifin af fjöllum. Ann-
að sem hefur fylgt henni er steina-
safn foreldra hennar og hefur það
safn orðið veigamikill þáttur í
myndhugsun hennar svo og stein-
völur sem hún hefur tínt upp á
förnum vegi. Steinana hefur hún
svo ljósmyndað og sést afrakstur
þeirrar vinnu glöggt á þessari sýn-
ingu. Við vinnsluna á steinunum
öðlast þeir nýtt og óvænt líf sem er
ekki af þessum heimi. Annað sem
einkennir þessa innsetningu er að
Magnea umbreytir fjöllunum í
púsluspil og duft sem gestir geta
hellt í lófa sér og skoðað ummynduð
fjöll og steinvölur sem geta fokið út
i veður og vind þegar minnst varir,“
segir í tilkynningunni en textann
ritar Ynda Gestsson listfræðingur.
Magnea lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskólanum í Reykjavík og
hélt síðan til náms við Listaaka-
demíuna í Þrándheimi og Myndlist-
arakademíuna í Karlshruhe í
Þýskalandi. Hún hefur haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í sam-
sýningum bæði hér á landi og er-
lendis.
Smækkar það stóra
og stækkar það smáa
Magnea Ásmundsdóttir heldur sýningu á Mokka
Steinn Magnea sýnir ljósmyndir á
sýningunni Fjallið flutti í nótt.
There We
Go nefnist
einkasýning
myndlistar-
mannsins
Þórs Sigur-
þórssonar
sem stendur
nú yfir í
Gallerí Porti
við Lauga-
veg. Þar
sýnir Þór
skúlptúra úr
misleitum
efnivið sem lenda á óvæntum
stefnumótum í gamansamri, fram-
andlegri endurskoðun, eins og seg-
ir á Facebook. Sýningunni lýkur 13.
júní.
Skúlptúrar á
stefnumótum
Frá sýningu Þórs.
Ríkissjónvarp Rússlands vinnur að
nýrri gerð af hinum lofuðu sjón-
varpsþáttum Chernobyl. Í rúss-
nesku gerð þáttanna verður brugð-
ið allverulega frá fléttu þáttaraðar
framleiðandans HBO. Þar verður
sagt frá njósnara bandarísku leyni-
þjónustunnar, CIA, sem á að hafa
verið staddur í Chernobyl þegar
kjarnorkuslysið varð.
Rússneskir fjölmiðlar hafa sakað
HBO um hlutdrægni og er þátta-
röðin, sem sýnd verður á NTV sjón-
varpsstöðinni í Rússlandi, sögð
uppfylla kröfur um þjóðernislegri
frásögn af atburðunum.
Leikstjóri Chernobyl-þátta HBO
lagði mikið upp úr að hafa allt sem
nákvæmast en rússneska útgáfan
leyfir sér mun meira frelsi. Sam-
kvæmt vef The Guardian er sagan
af bandaríska njósnaranum upp-
spuni en leikstjóri rússnesku þátt-
anna heldur því þó fram að þeir
muni sýna áhorfendum hvað raun-
verulega átti sér stað þegar kjarn-
orkuslysið varð í Chernobyl.
Rússar endurgera Chernobyl
Endurgerð Stilla úr sjónvarpsþáttum
HBO sem Rússar hyggjast endurgera.