Morgunblaðið - 10.07.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 160. tölublað 107. árgangur
BRÆÐUR KEPPA
VIÐ RÍKIÐ Á
BAKKANUM FELDSKERI OG FÉLAGAR
LÍTIL HRIFNING
MEÐAL GESTA
Í ELLIÐAÁRDAL
SPOTTARNIR Í SVÍÞJÓÐ 28 HEIMSÓKN Í DALINN 6VIÐSKIPTAMOGGINN
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Risaflugfélagið Emirates, sem á
heimahöfn í Dúbaí í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, hefur
sent fulltrúa sína hingað til lands til
að kanna innviði á sviði flugrekstrar.
Fyrirtækið hefur um langt árabil
haldið úti daglegu flugi milli Kast-
rup-flugvallar í Kaupmannahöfn og
Dúbaí og þá flýgur félagið einnig á
Gardermoen-flugvöll í Osló og Ar-
landa-flugvöll í Stokkhólmi.
Floti Emirates samanstendur af
breiðþotum sem hafa mikla flug-
drægni. Ekkert flugfélag í heim-
inum heldur úti jafn mörgum A380-
risabreiðþotum og Emirates en í
flota þess eru yfir 100 slíkar vélar.
Þá er fyrirtækið með í pöntun A330-
900neo vélar, sömu tegundar og vél-
arnar fjórar sem WOW air hugðist
taka í notkun á árinu 2018. Heima-
völlur Emirates er alþjóðaflugvöll-
urinn í Dúbaí en um hann fara u.þ.b.
90 milljónir farþega á ári hverju.
Flugtíminn milli Danmerkur og
Dúbaí er um sex og hálf klukku-
stund og þaðan liggja gríðarlega
mikilvægar tengingar inn á Asíu-
markað. »ViðskiptaMogginn
Emirates
A380 Í flota Emirates eru 111 risa-
breiðþotur úr verksmiðjum Airbus.
Risi með
augastað
á Íslandi
Emirates kannar
aðstæður hér á landi
Ungt par í Borgarnesi, þau Fannar
Óli Þorvaldsson og Heba Rós Fjeld-
sted, eignuðust stúlkubarn í vikunni
og heilsast þeim mæðgum vel. Fann-
ar verður 18 ára á þessu ári og Heba
verður 19 ára.
Í sjálfu sér eru þessi gleðitíðindi
ekki í frásögur færandi nema af
þeirri ástæðu að stúlkan litla er
sjötti liðurinn í ætt Fannars sem er
á lífi á sama tíma.
Að sögn Jónasar Ragnarssonar,
sem heldur úti vefnum Langlífi á
Facebook, hefur þetta aðeins gerst
fjórum sinnum áður hér á landi, eftir
því sem best er vitað.
Langalangafi Fannars er Lárus
Sigfússon, sem varð 104 ára þann 5.
febrúar á þessu ári. Lárus hefur því
nú eignast barnabarnabarnabarna-
barn.
Ættliðirnir sex hafa ekki enn
komið saman á mynd en þeir eru:
Lárus, 104 ára, Gréta Lárusdóttir,
78 ára, Hjalti Júlíusson, 60 ára, Þor-
valdur Hjaltason, 41 árs, Fannar Óli,
17 ára, og stúlka Fannarsdóttir,
þriggja daga gömul.
Sex ættliðir voru á lífi á sama tíma
árin 1974, 1989, 2008 og 2010. Til að
þetta náist þarf aldursbil ættliðanna
að meðaltali að vera um 20 ár. »4
Sex ættliðir á lífi á sama tíma
Ljósmynd/Aðsend
Nýfædd Stúlka Fannars- og Hebu-
dóttir, sjötti liður í ætt pabbans.
Lárus, 104 ára, fékk barnabarnabarnabarnabarn Óvissa umhvort, hvenær
eða hvar Sunda-
braut verður
lögð stendur
skipulagningu
Samskipa og
Eimskips til
lengri tíma fyrir
þrifum. Fjárfest-
ingar félaganna eru miðaðar við
allt að 40-50 ára framtíðarsýn.
Samskip eru í erfiðari stöðu en
Eimskip þar eð meginstarfsemi fé-
lagsins er öll fyrir innan fyrirhug-
aða Sundabraut. Auk þess er at-
hafnasvæði Samskipa minna en
Eimskips og stækkunarmöguleikar
takmarkaðir. »14
Sundabraut setur
skipafélög í óvissu
Lokað hefur verið á samskipti við dýr á bænum
Efstadal II í Bláskógabyggð og kálfar verið
sendir í sóttkví eftir að smit í börnum af völdum
E. coli-bakteríunnar hefur verið rakið til bæj-
arins. Bakterían fannst einnig í saursýni frá
kálfum á bænum en ekki er vitað með vissu
hvernig smitið barst í börnin. Í Efstadal er rekin
ferðaþjónusta samhliða landbúnaði og eru ábú-
endur miður sín vegna málsins. »2
Smit í börnum af völdum E. coli-bakteríu rakið til ferðaþjónustubæjarins Efstadals II
Morgunblaðið/Hari
Lokað á samskipti við dýr og kálfar sendir í sóttkví
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Meirihluti skipulags- og samgöngu-
ráðs Reykjavíkur samþykkti nýverið
að vísa tillögum stýrihóps um stefnu-
mörkun í bíla- og hjólastæðamálum
til meðferðar hjá samgöngustjóra og
umhverfis- og skipulagssviði.
Stýrihópurinn lagði m.a. til að
lengja gjaldtökutíma á ákveðnum
svæðum, taka upp gjaldskyldu á
sunnudögum, hækka bílastæðagjald
á tilteknum svæðum og lækka ann-
ars staðar. Fulltrúar minnihlutans í
ráðinu sátu hjá við afgreiðslu máls-
ins en lögðu fram bókanir.
„Markmiðið með vinnu stýrihóps-
ins var að jafna álag og reyna að
tryggja að alltaf séu einhver bíla-
stæði laus þar sem borgin er með
stæði á borgarlandinu,“ segir Gunn-
laugur Bragi Björnsson, annar af
tveimur fulltrúum meirihlutans í
stýrihópnum.
Í bókun sinni segja fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins margt jákvætt í til-
lögunum og mikilvægt að stefna liggi
nú fyrir í málaflokknum. Fulltrúi
Miðflokksins vill fyrstu 15-20 mín-
útur í bílastæði gjaldfrjálsar.
Vilja lengja gjaldskyldu
Borgin skoðar tillögur stýrihóps um stefnumörkun í bíla- og hjólastæðamálum
Leggja til hækkun gjalda, lengri gjaldtöku og rukkað verði líka á sunnudögum
Stýrihópur um bílastæði
» Fulltrúar meirihlutans í
hópnum voru Gunnlaugur
Bragi Björnsson og Kristín
Soffía Jónsdóttir.
» Fulltrúi minnihlutans var
Valgerður Sigurðardóttir.
MVilja tryggja laus bílastæði »4