Morgunblaðið - 10.07.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið/RAX
Svínafellsjökull Ísklifur í Svínafells-
jökli þar sem nú er hættuástand.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Engar skipulagðar ferðir hafa verið
farnar á Svínafellsjökul í sumar. Enn
er í gildi viðvörun Almannavarna frá
því í júní í fyrra, þar sem mælst var til
þess að ekki yrði farið með hópa á
jökulinn vegna hættu á skriðuföllum
á hann. Þá var því beint til ferðafólks
að staldra stutt við á útsýnisstöðum
við sporð Svínafellsjökuls.
Ástæða þessa er stór sprunga í
Svínafellsheiði sem liggur að jöklin-
um, en vorið 2018 uppgötvaðist að
hún væri lengri en áður var talið.
Vatnajökulsþjóðgarður gaf ferða-
þjónustufyrirtækjum undanþágu til
að fara með hópferðir á Skaftafells-
jökul til loka síðasta árs, en hún gildir
einnig í sumar.
Von á vísindamönnum
„Staðan er óbreytt, en það er von á
vísindamönnum þarna upp með fleiri
mælitæki,“ segir Steinunn Hödd
Harðardóttir, aðstoðarmaður þjóð-
garðsvarðar á suðursvæði í Vatnajök-
ulsþjóðgarði, en á síðasta ári komu
vísindamenn fyrir mælitækjum til að
mæla gliðnun sprungunnar. Steinunn
Hödd segir aðspurð að samstarf við
ferðaþjónustuaðila hafi gengið vel.
„Við hugsum auðvitað um þessi mál
og þetta veldur okkur miklum
áhyggjum. Það er alltaf margt fólk á
svæðinu og störf margra liggja að
veði vegna þessara breytinga. Við er-
um alltaf að meta það hvernig við get-
um komið til móts við ferðaþjón-
ustuna,“ segir hún. „Það er fínt
samband þarna á milli, en það getur
alltaf orðið betra. Við stefnum að því
að halda annan fund í haust og halda
áfram með þessa samvinnu,“ segir
hún, en í Skaftafelli eru haldnir fund-
ir milli þjóðgarðsfólks og ferðaþjón-
ustuaðila vikulega. Þá eru slíkir fund-
ir fyrirhugaðir við Jökulsárlón.
Hrafnhildur Ævarsdóttir, aðstoð-
armaður þjóðgarðsvarðar í Skafta-
felli, segir að ákvörðun um ferðir á
Skaftárjökul hafi breytt flæðinu inn í
þjóðgarðinn, en þó hafi allt gengið að
óskum. Frá því í mars hefur ekki ver-
ið farið í ferðir á Skaftárjökul en á
vorin kemur undan jöklinum og hann
verður ótryggur. Hún segir að ein-
staka ferðamenn hafi farið á Svína-
fellsjökul.
„Það eru merkingar þarna sem
segja til um ástandið við jökulinn, en
öll fyrirtækin fluttu ferðir sínar yfir á
annaðhvort Falljökul eða Skaftafells-
jökul. Það fór eftir gerð ferða. Ís-
hellaferðir voru farnar á Skaftafells-
jökul og þær hættu í mars.
Gönguferðir voru farnar á Falljökul,“
segir hún, en engar frekari ákvarð-
anir verða teknar að hennar sögn
fyrr en hættumat Veðurstofunnar
um svæðið liggur fyrir.
Áfram engar ferðir á jökulinn
Viðvörun Almannavarna vegna Svínafellsjökuls enn í gildi Sprunga í Svínafellsheiði ógnar öryggi
Ferðaþjónustuaðilar fara á Falljökul í staðinn Framhaldið óákveðið þar til hættumat liggur fyrir
Snorri Másson
Þórunn Kristjánsdóttir
„Þetta er náttúrlega bara svolítið
sjokk og sérstaklega að heyra af
þessum veiku börnum. Það er fyrst
og fremst vonandi að þau jafni sig
sem fyrst,“ segir Björgvin Jóhann-
esson, einn eigenda ferðaþjónustu-
bæjarins Efstadals II í Bláskóga-
byggð, en yfirvöld upplýstu í gær að
smit barna af E. coli-bakteríunni að
undanförnu megi í langflestum til-
vikum rekja til kálfastíu á bænum
sem börn hafa heimsótt og leikið sér
við kálfana.
Eins og fram
kom í Morgun-
blaðinu í gær
höfðu tíu börn
verið greind með
þetta smit og tvö
þeirra orðið að
liggja á Barna-
spítala Hringsins
með nýrnabilun
af völdum bakt-
eríunnar. Af
þessum tíu börnum höfðu níu heim-
sótt Efstadal II og talið að tíunda
barnið hafi smitast af systkini sínu.
Stíunni í fjósinu í Efstadal hefur
verið lokað og kálfarnir sendir í
sóttkví. Það var gert um miðja síð-
ustu viku, þegar grunur um smitið
kom upp, og lokað var á samskipti
við dýrin á bænum. „Það er engin
snerting við kálfana lengur í boði,“
sagði Björgvin.
Að hans sögn benda rannsóknir
til þess að smitið tengist kálfunum
en ekki matvælunum sem seld eru á
bænum í veitingasölunni eða ísbúð-
inni.
„Við höfum þegar sent sýni úr öll-
um matvælunum okkar og þær nið-
urstöður hafa verið mjög jákvæðar
fyrir okkur,“ sagði Björgvin, og er
sá rekstur því enn í gangi. „Auðvit-
að er fólk slegið yfir þessu og það er
mikilvægt, eins og sóttvarnalæknir
bendir á, að þar sem samneyti hvers
konar er við dýr þar er lykilatriði að
passað sé upp á hreinlæti,“ segir
Björgvin og bætir við að þrátt fyrir
að Matvælastofnun hafi metið alla
ferla á staðnum góða hafi verið farið
í að herða viðbragðsferlið.
E. coli-bakterían sem sýkti börn-
in fannst einnig í saursýni frá kálf-
um á bænum en ekki er vitað með
vissu hvernig smitið barst í börnin
sem eru á aldrinum 20 mánaða til 12
ára.
Vona að börnin jafni sig
Eigendur ferðaþjónustubæjarins Efstadals II miður sín vegna E. coli-smitsins
Morgunblaðið/Hari
Efstidalur Eigendur ferðaþjónustubæjarins eru miður sín eftir að E. coli-smitið kom upp á dögunum. Þar er rekin ferðaþjónusta samhliða landbúnaði.
Björgvin
Jóhannesson
Hæstiréttur hafnaði að taka fyrir
mál Sigríðar Sæland Jónsdóttur
gegn Tryggingastofnun. Gildir því
dómur Landsréttar frá því í maí síð-
astliðnum sem er Sigríði í vil. Hann
kveður á um að skerðing Trygg-
ingastofnunar á lífeyrisgreiðslum
eldri borgara í janúar og febrúar
2017 hafi ekki haft lagastoð. Heild-
arskerðing lífeyrisgreiðslnanna á
þessum tveimur mánuðum voru 5
milljarðar króna, sem ríkinu ber nú
að endurgreiða þeim sem fyrir
henni urðu.
Talið er að mistök hafi orðið við
lagasetningu í árslok 2016 sem
gerðu það að verkum að ákvæði,
sem heimilaði skerðingu ellilífeyris
vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum,
féll út. Þrátt fyrir mistökin skerti
TR greiðslur lífeyrisþega um næstu
mánaðamót og var lögunum breytt
afturvirkt til að heimila skerð-
inguna.
„Stórt slys“
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for-
maður Landssambands eldri borg-
ara, segir aðspurð ekki gleðjast yfir
málalyktum:
„Skerðingar hafa verið allan tím-
ann og mismiklar en aldrei eins há-
ar og núna, 45%. En þetta mál er
bara algjörlega óháð því. Þetta er
bara stórt slys. Ég vorkenni bara
fólkinu sem reiknaði vitlaust eða las
ekki betur yfir.“ Flokkur fólksins
stóð að málsókninni en málið var
rekið í nafni Sigríðar. Sigríður er
móðir Ingu Sæland, formanns
Flokks fólksins. Inga sagði í gær í
samtali við mbl.is að réttlætið hefði
sigrað. Á sama tíma hefðu málalykt-
ir verið áfall fyrir ríkið, enda þyrfti
að greiða út háa fjárhæð.
Lögmaður Sigríðar, Jón Steinar
Gunnlaugsson, sagði í samtali við
mbl.is þegar dómur Landsréttar
féll í maí síðastliðinn að bækur
réttarríkisins leyfðu ekki að lög-
unum um greiðsluskerðingar í jan-
úar og febrúar væri breytt
afturvirkt, að hans mati.
veronika@mbl.is
Ríkinu gert að greiða ellilíf-
eyrisþegum fimm milljarða
Sigríður Sæland hafði betur gegn Tryggingastofnun
Útlendingastofnun fær 100 milljóna
króna fjárveitingu, umfram það
sem áætlað var, á næstu árum.
Eiga fjármun-
irnir meðal ann-
ars að styðja við
framkvæmd
nýrrar reglu-
gerðar í mál-
efnum hælisleit-
enda.
Upplýsinga-
fulltrúi stofn-
unarinnar, Þór-
hildur Hagalín,
segir stofnunina hafa til skoðunar
hvernig hægt sé að hraða máls-
meðferð tiltekinna mála og hvernig
nýta megi fjármunina til þess. Nú
er Útlendingastofnun heimilt að
taka mál barna til efnislegrar með-
ferðar, hafi þau dvalist á Íslandi í
10 mánuði en áður voru það 12
mánuðir. Breytingin hefur í för
með sér fleiri efnislegar meðferðir
sem kalla á aukið fjármagn.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar,
dómsmála og nýsköpunar, hefur
sagt að í haust verði smíðað frum-
varp um breytingar á útlendinga-
lögum en ekki liggi enn fyrir hverj-
ar þær verða.
Fá 100
milljóna
fjárveitingu
Aukinn stuðningur
við Útlendingastofnun
Þórhildur Hagalín