Morgunblaðið - 10.07.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Lítil hrifning var meðal þeirra vegfar-
enda sem Morgunblaðið náði tali af í
Elliðaárdalnum í gær vegna fyrirhug-
aðrar byggingar á 4.500 fermetra
gróðurhvelfingu, verslunarrými og til-
heyrandi bílastæði norðan við
Stekkjarbakka.
Andsnúnir framkvæmdunum
Spurðir um afstöðu sína gagnvart
framkvæmdunum lýstu allir viðmæl-
endur Morgunblaðsins, sem flestir
búa í grennd við Elliðaárdalinn, yfir
andstöðu sinni við framkvæmdirnar. Í
heimsókn blaðamanns fannst því eng-
inn viðmælandi sem lýsti ánægju með
fyrirhugaðar framkvæmdir.
Í samtali við viðmælendur kom m.a.
fram að íbúar teldu framkvæmdirnar
hafa verið samþykktar í fljótfærni, að
byggingin hentaði ekki svæðinu og að
búist væri við því að byggingin myndi
raska friði svæðisins.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að nokkur hiti hefði ríkt meðal fólks
síðan meirihluti borgarráðs sam-
þykkti framkvæmdirnar á fundi ráðs-
ins á fimmtudaginn í síðustu viku.
Hollvinasamtök Elliðaárdalsins
gáfu í vikunni út yfirlýsingu þar sem
samtökin ítreka andstöðu sína gegn
áformunum og heita því að hefjast
handa við að fá samþykkt borgarráðs
hnekkt.
Telja Hollvinasamtökin máls-
meðferð borgaryfirvalda á nýju deili-
skipulagi á svæðinu gefa tilefni til þess
að málið verði kært til úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlindamála.
Gestir dalsins lítt hrifnir
Vegfarendur í Elliðaárdal sögðust andsnúnir fyrirhuguðum framkvæmdum
„Það er bara fáránlegt að ætla að fara að skemma þetta hérna,“ sagði einn
Morgunblaðið/Hari
Elliðaárdalur Margir eru ósáttir við áform um að byggja stærðarinnar gróðurhvelfingu í Elliðaárdal.
Örn Gústafsson, íbúi í Seljahverfi,
sem gengur um Elliðaárdalinn á
hverjum degi, er síður en svo
ánægður með fyrirhugaðar fram-
kvæmdir í dalnum.
„Mér finnst þetta bara fárán-
legt. Það má ekki vera grænn
blettur í þessari borg þá vilja þeir
byggja á honum. Það er bara
ótrúlegt,“ segir Örn. „Það er bara
fáránlegt að ætla að fara að
skemma þetta hérna. Núna er
þetta fimm sinnum stærra en
þetta átti að vera í upphafi. Þann-
ig að þetta er bara óskiljanlegt
og gert að nóttu til þegar allir
eru í sumarfríi.“
Má ekki vera grænn blettur í borginni
Helga Helgadóttir er ein þeirra
sem nýta sér grenndargarðana í
Smálöndum í Elliðaárdal fyrir
garðyrkju. Segir hún fólk sem nýtir
sér garðana almennt ekki vera
ánægt með fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við jaðar Elliðaárdalsins
en gróðurhúsið mun að öllum lík-
indum rísa í næsta nágrenni við
garðana.
„Við sjáum fyrir okkur að þetta
eyðileggi bara fyrir okkur. Við er-
um búin að vera hérna í tíu ár og
ætluðum einmitt að fara að halda
upp á tíu ára afmælið okkar. Við
sjáum ekki alveg fyrir okkur hvern-
ig þetta verður með fullt af ferða-
mönnum, bílastæðum og fullt af
fólki. Þetta er búið að vera okkar
friðland.“
„Þetta er búið að
vera okkar friðland“
Magnús Hreggviðsson, fyrrverandi
útgefandi, sem hefur búið í ná-
grenni við Elliðaárdalinn í 35 ár,
telur að fyrirhugaðar fram-
kvæmdir í dalnum hafi verið sam-
þykktar í mikilli fljótfærni.
„Miðað við hraðann á afgreiðslu
þessa máls finnst mér orðatiltækið
„kapp er best með forsjá“ eiga vel
við. Ég hefði viljað fá meiri umræð-
ur um þetta, bæði meðal stjórn-
málamanna og embættismanna og
svo okkar sem búum í hverfinu,“
segir Magnús.
„Kapp er best með
forsjá“ á vel við
„Ég segi að það sé algjörlega
ótímabært að gera þetta. Fyrir
það fyrsta er svo margt annað
sem við þurfum að forgangsraða
áður en við gerum þetta. Svo
held ég að þó að staðsetningin sé
freistandi vegna náttúrunnar
henti svona stórhýsi ekki hér.
Það er mín skoðun,“ segir Aðal-
heiður Diego, sem hefur búið alla
sína ævi í hverfinu, aðspurð
hvernig henni lítist á fyrirhug-
aðar framkvæmdir í dalnum. „Þó
þetta sé mjög spennandi held ég
að við höfum eiginlega ekki efni
á svona núna. Ég vil sjá pen-
ingana fara í annað,“ bætir Aðal-
heiður við og eiginmaður hennar,
Sigurður Arnþórsson, tekur undir
með henni.
Hundurinn Snúður vildi ekki
tjá sig um málið.
Margt annað sem þurfi að forgangsraða
Arnar Þór Ingólfsson
arnarth@mbl.is
Vigfús Ólafsson, karlmaður á sex-
tugsaldri, var í gær dæmdur í fimm
ára fangelsi fyrir að valda eldsvoða í
einbýlishúsi við Kirkjuveg á Selfossi
31. október síðastliðinn, en tvær
manneskjur létust í brunanum.
Hann var dæmdur fyrir stórfellda
brennu og manndráp af gáleysi.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðs-
dómi Suðurlands.
Kona sem einnig var ákærð í mál-
inu, fyrir að koma fólkinu sem lést
ekki til bjargar, var sýknuð af ákær-
unni. Farið hafði verið fram á sex
mánaða fangelsisvist yfir henni.
Kolbrún Benediktsdóttir, sak-
sóknari í málinu, sagði í málflutningi
sínum í júnímánuði að hæfileg refs-
ing Vigfúsar vegna málsins væri allt
að átján ára fangelsi. Í samtali við
mbl.is sagði Kolbrún að Vigfús hefði
verið dæmdur fyrir manndráp af gá-
leysi og stórfellda brennu, en hún
var einungis rétt svo búin að líta á
niðurstöðu dómsins er blaðamaður
náði tali af henni í dómshúsinu á Sel-
fossi. Í málflutningi sínum við aðal-
meðferð málsins benti Kolbrún m.a.
á að aldrei hefði nokkur maður verið
sakfelldur hér á landi fyrir tvö
manndráp sem hlotist hefðu af sama
verknaðinum.
Óvíst um áfrýjun
Ekki var fallist á aðalkröfu
ákæruvaldsins þess efnis að Vigfús
yrði dæmdur fyrir að hafa valdið
brunanum og þar með andláti þeirra
tveggja sem voru stödd á efri hæð
hússins er eldurinn kom upp, af
ásetningi á lægra stigi. Hvort málinu
yrði áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins
gat Kolbrún ekki tjáð sig um á þess-
um tímapunkti, en sú ákvörðun er í
höndum ríkissaksóknara.
Vigfúsi er gert að greiða aðstand-
endum hinna látnu á þriðja tug millj-
óna í miskabætur vegna málsins,
auk þess sem hann ber allan sakar-
kostnað í málinu.
Morgunblaðið/Eggert
Frá vettvangi Vigfús var dæmdur
fyrir að hafa valdið eldsvoða.
Fimm ár
fyrir
brunann
Betur fór en á horfðist þegar eldur kom
upp í lítilli íbúð á neðstu hæð á stúd-
entagörðum á Eggertsgötu 24 í Reykja-
vík síðdegis í gær. Mikinn reyk lagði frá
húsinu í fyrstu, að sögn sjónarvotta, og
var allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins sent á vettvang auk
sjúkrabíla og lögreglu.
Vitni sáu konu koma hlaupandi út úr
íbúðinni, með reykmökkinn á eftir sér,
og lét hún öllum illum látum á vettvangi,
að sögn lögreglu. Var konan í annarlegu
ástandi og flutt í fyrstu á slysadeild til
aðhlynningar. Reyndist hún ekki alvar-
lega slösuð en grunur var uppi um reyk-
eitrun.
Greiðlega gekk hjá reykköfurum
slökkviliðsins að ráða niðurlögum elds-
ins. Íbúðin er töluvert skemmd og lagði
mikinn reyk í aðrar íbúðir hússins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eggertsgata Reykkafarar að störfum en þeir náðu að slökkva eldinn.
Engan sakaði en mikið tjón
Íbúi á vettvangi í
annarlegu ástandi